Ávarp Gyðu á stofnfundi Femínistafélags Íslands 14. mars 2003 Komið
þið sæl.
Mig langar
að segja ykkur frá draumi sem mig dreymdi. Mig dreymdi
Veru. Veru var boðið út að borða og í leikhús
af Kunningja sínum. Kunningi bauð Veru síðan í
kaffi heim til sín þar sem hann nauðgaði Veru. Vera
fór upp á bráðamótttöku í
leigubíl, öll rifin og tætt. Þar hringdi hún
í Ofbeldisvarnarhóp FEMÍNISTAFÉLAGSINS.
Þau fóru saman heim til Kunningja og límdu miða
á bílrúðurnar á bíl Kunningjans.
Á miðunum stóð: „SVONA GERIR MAÐUR EKKI“.
Kunningi átti í mestu vandræðum með að
ná miðunum af; þurfti að þola illt auga nágrannanna;
á meðan hann skrapaði og skrapaði. Kunningi þurfti
einnig að útskýra seinkun sína í vinnuna.
Þau biðu líka nokkur úr Ofbeldisvarnarhópi
FEMÍNISTAFÉLAGSINS fyrir utan vinnustaðinn
eftir að vinnutíma lauk. Kunningi komst ekki hjá því
að sjá þau. Þau sögðu ekkert, horfðu
bara á hann og hann vissi að þau vissu. FEMÍNISTARNIR
voru viss um að skömmin og niðurlægingin hefði
fundið sinn heimastað. Mig dreymdi
Freyju. Freyja settist inn á bar og pantaði sér drykk.
Við hlið Freyju settist Ferðamaður. Ferðamaður
spyr Freyju hvort Ísland hafi ekki átt fyrsta lýðræðisiskjörna
kvenkyns forseta í heiminum. Freyja játar því
með stolti í röddinni. Ferðamaður spyr hvort Freyja
sé ekki til í tuskið. Freyja biður Ferðamann
að láta sig í friði. Ferðamaður lætur
sér ekki segjast, heldur áfram að áreita Freyju
kynferðislega.. Enda uppfullur af hugmyndum um meint lauslæti
íslenskra kvenna. Hvaðan ætli Ferðamaður hafi
þ ær hugmyndir? Freyja stendur á fætur, kemur
auga á félaga sinn í FEMÍNISTAFÉLAGINU.
FEMÍNISTINN er með fljótandi sápu í
fórum sínum. Þær hella sápu í
bjór Ferðamanns. Segja honum að drekka; Ferðamanni
veiti ekki af að þvo á sér sorakjaftinn. Mig dreymdi
draum
|