Kosningar 2003
FEMÍNISTAFÉLAG ÍSLANDS
Frjálslyndi flokkurinn

 
Mynd úr göngu femínista á 1.maí 2003  

Jafnréttisáætlun

Landsþing Frjálslynda flokksins haldið í Reykjavík 19.-20. janúar 2001 lýsir þeim vilja sínum að jafna stöðu karla og kvenna á vettvangi stjórnmálanna með sérstökum aðgerðum. Í því skyni þarf að auka hlut kvenna.

Áætlunin kveður á um það hvernig Frjálslyndi flokkurinn getur unnið að jafnrétti kvenna og karla í stjórnmálum.

Markmiðið er að ná jafnri þátttöku kvenna og karla í starfi á vegum flokksins, ákvarðanatöku og ábyrgð.

1. Áætlunin tekur til allrar starfsemi flokksins.

2. Þrír fulltrúar skulu eiga sæti í jafnréttisnefnd, skipaðir af framkvæmdastjórn.

3. Jafnréttisnefnd hefur það hlutverk að sinna jafnréttismálum innan

Frjálslynda flokksins og ýmsum erindum sem þennan málaflokk varða.

4. Jafnréttisnefnd skal starfa á vegum flokksins og koma með tillögur og ábendingar til framboðsaðila. Jafnréttisnefnd er flokksfélögum, kjördæmisráðum, þingflokki, framkvæmdastjórn og miðstjórn til ráðgjafar í jafnréttismálum og sérstaklega við að vinna að efldri stöðu kvenna í starfi flokksins.

5. Við skipan í nefndir, starfshópa og stjórnir á vegum flokksins skal leitast við að hlutföll kynja séu sem jöfnust.

6. Við röðun á framboðslista skal reynt að tryggja að hlutur kynjanna verði sem jafnastur í fulltrúatölu á Alþingi og í sveitarstjórnum.

 

Salvör Gissurardóttir tók ljósmyndir og setti á vefsíðu 7.maí 2003