Kosningar 2003
FEMÍNISTAFÉLAG ÍSLANDS
Framsóknarflokkur


Heimsókn í kosningaskrifstofu Framsóknarmanna 1.maí 2003

Framsóknarflokkurinn:

Úr kosningastefnuskrá 2003

JAFNRÉTTI ER RÉTTLÆTI
• Ráðast verður að launamun kynjanna sem er ljóður á jafnri stöðu karla og kvenna.
• Fylgja þarf fast eftir lögum um jafna stöðu og rétt karla og kvenna.
• Gera þarf sérstakt átak til að auka áhrif kvenna í atvinnulífinu bæði hjá hinu opinbera og á almennum vinnumarkaði.
• Efla verður rannsóknir á kjaramun kynjanna í samvinnu við atvinnulífið, birta niðurstöður þeirra og stuðla að opinni umræðu um þær.
• Hvetja ber fyrirtæki til að vinna að jafnréttismálum og stuðla að frekari samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs.

Úr ályktunum 27. flokksþings framsóknarmanna 2003

Jafnréttismál
Í jafnréttismálum leggur Framsóknarflokkurinn áherslu á eftirfarandi:
• Lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla verði fylgt fast eftir og markvisst unnið að því að tryggja sömu laun kvenna og karla fyrir sambærileg störf.
• Bæta skal sérstaklega stöðu kvenna í ljósi ójafnrar stöðu eftir búsetu, m.a. með aukinni fræðslu og ráðgjöf.
• Haft sé að leiðarljósi að vinna að jöfnum áhrifum kvenna og karla við ákvarðanatöku og stefnumótun í samfélaginu.
• Við stefnumótun allra málaflokka verði tekið mið af jafnrétti kynjanna.
• Opinberu átaki verði hrint af stað til að auka hlut kvenna í stjórnmálum og stjórnunarstörfum.
• Leitað verði leiða til að hvetja fyrirtæki til að vinna jafnréttisstefnunni framgang og þannig verði stuðlað að jöfnum launum kynjanna og samræmingu á fjölskyldu- og atvinnulífi.
• Leggja skal fram hugmyndir um útvíkkun  á jafnréttishugtakinu fyrir næsta flokksþing Framsóknarflokksins



Heimsókn í kosningaskrifstofu Framsóknarmanna 1.maí 2003

Salvör Gissurardóttir tók ljósmyndir og setti á vefsíðu 7.maí 2003