Margareta Winberg kemur til Íslands
Fundur íslenskar kvennahreyfingar á Grand Hótel
6 .september 2003

Salvör Gissurardóttir tók myndir og setti á vefsíðu

Ræða Margaretu Winberg 6 september á fundi á Grand Hótel á vegum 11 kvennahreyfinga.
Ræða Margaretu Winberg 5. september á fundi í Norræna húsinu






Hér fyrir neðan eru svo stærri myndir.


Það mættu alþingismenn á fundinn frá öllum flokkum nema einum.


Katrín gefur Margaretu Winberg bleikan bol frá Femínistafélaginu


Margareta Winberg varaforsætis- og jafnréttisráðherra Svíþjóðar flutti erindi á vegum íslenskrar kvennahreyfingar á Grandhóteli Sigtúni 38, laugardaginn 6. sept. Kl. 10-12.

Svíar hafa sýnt að þori maður og vilji, þá er hægt að bylta lagaumhverfi og vinna ötullega gegn misrétti og ofbeldi. Jafnréttisumhverfi í Svíþjóð og lög er varða kynferðisofbeldi eru fyrirmynd kvennahreyfinga víða um heim. Svíar skilgreina vændi sem kynferðisofbeldi og hafa ein landa í heiminum bannað kaup á því.

Kvinnofrid-lögin í Svíþjóð eru ekki kynhlutlaus eins og almenn lög, en ganga útfrá raunveruleika kvenna sem búa við ofbeldi og byggja m.a. á þekkingu kvennahreyfingunnar á aðstæðum þeirra. Nefna má að þann 1. sept. taka gildi lög sem heimila að fjarlægja ofbeldismenn af sænskum heimilum í stað þess að þær eða þau sem fyrir ofbeldinu verða þurfi að flýja heimili sitt. Svíar hafa auk þessa stofnað sérstakan brotaþolasjóð sem er fjármagnaður af sektum sakamanna og nýtist til rannsókna og fyrirbyggjandi aðgerða.

Margareta Winberg jafnréttisráðherra hefur sýnt mikið frumkvæði og áræði í baráttunni gegn hvers kyns kynferðisofbeldi á alþjóðavettvangi og nýtur mikillar virðingar. Hún mun segja Íslendingum frá sænsku leiðinni þann 6. sept.. Kvennahreyfingin er bjartsýn. Við erum fullvissar um að íslensk stjórnvöld muni hlusta vandlega á Margaretu Winberg nú rétt fyrir þingbyrjun og leita nýrra leiða til að sporna gegn misrétti og ofbeldi á Íslandi.


Eftirfarandi samtök standa að heimboðinu

Briet Félag ungra feminista
Feministafélagið
Kvenfélagasambandið
Kvennakirkjan
Kvennaráðgjöfin
Kvenréttindafélagið
Neyðarmóttaka vegna nauðgunar
Rannsóknarstofa í kvenna- og kynjafræðum
Stígamót
Tímaritið Vera
Unifem á Íslandi

Integrering av ett köns- och jämställdhetsperspektiv i NMRs verksamhet. mars 2003

 

 

Salvör Gissurardóttir tók myndir og setti á vefsíðu 6-sep-03