Ráðsfundur
FEMÍNISTAFÉLAG ÍSLANDS
3.júlí 2003 á Tapasbarnum

Aftur á forsíðu->

Tvö talblogg frá fundinum: fyrsta og annað.

Ráð Femínistafélags Íslands kom saman á Tapasbarnum 3. júlí 2003. Mættar voru Bryndís Ísold, Auður, Andrea, Katrín, Erla, Dagný,Kristín, Margrét, Guðrún og Salvör. Fulltrúar voru frá öllum hópum nema stjórnmálahóp. Rætt var starfið framundan og atburðir líðandi stundar.

Ákveðið var að stefna að þátttöku femínista í Menningarnótt. Menningarhópur tekur það að sér og kynnti Dagný hugmynd um viðfangsefni. Ákveðið var að stefna að femínistaviku í október þar sem allir hópar reyndu að hafa einhvers konar dagskrá. Rætt var um að byrja vikuna 24 október.


Katrín og Erla


Auður og Andrea


Dagný og Kristín

Fundargerð

Fundur í ráði Feministafélags Íslands á Tapasbarnum 3. júlí 2003 kl. 19.00

Mættar voru: Katrín Anna, Dagný, Erla, Andrea, Salvör, Margrét P., Guðrún Agnarsd., Auður Magndís, Bryndís og Kristín Ástgeirsdóttir sem ritaði fundargerð.

1. Ólympíuleikar í Aþenu og vændi.
Undanfarið hefur mikil umræða átt sér stað um þau áform borgaryfirvalda í Aþenu að fjölga vændishúsum vegna Ólympíuleikanna 2004. Grísk kona sem var á ráðstefnu Stígamóta o.fl. upplýsti okkur um þessar ráðagerðir. Ákveðið var að skrifa bréf til Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands til að vekja athygli þess á málinu. Að bréfinu stóðu Feministafélag Íslands, Kvenfélagasamband Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Kvennakirkjan og Stígamót. Íþróttasambandið brást við og sendi bréf til Alþjóða Ólympíunefndarinnar og til Aþenu til aðmótmæla þessum áformum “ef sönn reynast”. Sama dag og bréf þeirra var sent birtist frétt þess efnis að Rétttrúnaðarkirkjan í Grikklandi hefði mótmælt þessum sömu áformum. Fréttin um frumkvæði íslenskra feminista og viðbrögð íslensku íþróttahreyfingarinnar flugu út í heim og hafa birst fréttir í Dagens Nyheter, Guardian og BBC. Nauðsynlegt er að þýða upphaflega bréfið á ensku og koma því á framfæri við samtök erlendis. Kristín Ástgeirs. tekur að sér að halda áfram utan um málið.

2. Menningarnótt.
Hugmyndir hafa verið á lofti um að félagið efni til einhvers konar samkomu á
Menningarnótt í Reykjavík sem verður haldin 16. ágúst. Málið var rætt fram og aftur og komu m.a. fram hugmyndir um bókmenntakvöld. Dagný ætlar að taka málið inn í menningarhópinn en það er ljóst að sá hópur vill ræða stöðu kvenna í menningarmálum, en ekki vera dagskrárhópur.

3. Feministafrumvörp
Rætt var um þá hugmynd Kristrúnar Heimisdóttur að feministar ættu að semja
frumvörp eins og við viljum hafa þau og senda þingmönnum sem treysta má til að bera þau áfram. Málið bíður haustsins.

4. Hvað greinir Feministafélag Íslands frá fyrri feministahreyfingum?
Dagný sagðist hafa hugleitt það í dvöl sinni í Danmörku hver væri sérstaða
Feministafélagsins í sögulegu ljósi. Niðurstaða hennar er eftirfarandi:

  1. Félagið fæddist á Netinu
  2. Þessi þriðja bylgja byggist ekki á trú á þing- og
    framboðsleiðinni eða því að beina sjónum aðallega að stjórnmálamönnum,
    heldur er “kýlt á fjölmiðlana”.

Í framhaldi af þessu kom fram að ungliðahópurinn hefur sett sér það markmið að heimsækja framhaldsskóla og félagsmiðstöðvar, gera myndband og annað fræðsluefni. Það á sem sagt að nýta tæknina.

5. Verslunarmannahelgin.
Guðrún Agnarsdóttir upplýsti að dómsmálaráðuneytið hefur hert mjög reglur um útihátíðir. Hún lagði til að Feministafélagið, Stígamót, V-dagurinn o.fl. sameinuðust um aðgerðir gegn ofbeldi og nauðgunum. Fram kom að hópur af strákum (óháðir okkur) eru að undirbúa eins konar jafningjafræðslu um áhrif ofbeldis gegn konum.

6. Útvarpsþættir.
Enn einn Víðsjárþáttur er framundan en þar hafa feministar mætt til leiks um nokkurra vikna skeið. Ákveðið að biðja Dagnýju um að mæta á fimmtudag.

7. Feministavika í október.
Stefnt er að því að hún hefjist 24. október og standi til 1. nóvember. Ætlunin er hver hópur sjái um a.m.k. einn lið á dagskránni.

Hugmyndir eru uppi um að fá konur eins og Vigdísi Finnbogadóttur, Valgerði Sverrisdóttur o.fl. til að koma og segja frá reynslu sinni af því að vera í valdastöðu. Ein hugmyndin er að búa til kynjagleraugu, heilbrigðishópurinn er að velta fyrir sér ráðstefnu, hugsanlega nokkur síðdegi þessa viku. Þá komu upp hugmyndir um að heimsækja skóla, fá leyfi borgarinnar til að skreyta
heilan vegg með myndum úr sögu kvennabaráttunnar, vinnustaðafundir, kvikmyndahátíð o.fl. Katrín hefur sett fram þá hugmynd að 24. okt. fari allar konur og biðji um 25% launahækkun. Fram hefur komið hugmynd að rætt verði við handhafa bleiku steinanna um aðgerðir þeirra í jafnréttismálum. Rætt um að gefa út greinasafn, framleiða bleika sokka o.s.frv. Allar hugmyndir eru vel þegnar.

8. Uppsagnir á Stöð 2 og víðar.
Konum hefur verið sagt upp störfum í mun ríkara mæli en körlum og fer atvinnuleysi kvenna vaxandi. Uppsagnir fréttakvenna á Stöð 2 hafa vakið mikla athygli og hefur KRFÍ þegar mómælt þeim. Katrínu var falið að semja ályktun frá Feministafélaginu.

9. Hvernig á að virkja nýja félagsmenn?
Hugmynd kom upp um að bjóða nýjum félagsmönnum á einhvern ákveðinn stað til að ræða málin. Rætt hefur verið um að útbúa einhvers konar pakka fyrir nýliðana. Katrínu, Salvöru og Auði falið að fylgja málinu eftir.

Fleira var ekki rætt og var formlegum fundi slitið kl. 22.00.
Kristín Ástgeirsdóttir.

Salvör Gissurardóttir tók myndir og setti upp á vef 6-jul-03
Á forsíðu vefs Femínistafélags Íslands