| Karlakvöld
Radio X Myndir
af fólki í biðröðinni fyrir utan Jón
forseta áður en karlakvöldið hófst. Það
voru um 20 femínistar að dreifa bleikum blöðum og
um 300 ungir karlmenn í biðröð. Leitast hefur verið
við að hafa eingöngu myndir af fólki sem er samþykkt
myndbirtingunni. Myndhlutar á sumum myndum eru þess vegna
gerðir óskýrir svo fólkið þekkist ekki.
Femínistar voru eingöngu fyrir framan Jón forseta áður
er dagskráin hófst. Myndir
af því sem fór fram innan dyra má hins
vegar sjá á beygla.is og hérna er
brot úr viðtali á X-inu sem lýsir einnig
aðstæðum. |
|
Staðalímyndahópur Femínistafélags Íslands skipulagði móttöku fyrir utan veitingastaðinn Jón forseta fyrir gesti á karlakvöld útvarpsstöðvarinnar Radio X 26 mars 2004. Tilefnið var að þau atriði sem boðið var upp á voru blautbolskeppni og strípidansmeyjar sem mættu á staðinn. Staðalímyndahópur vill vekja fólk til umhugsunar um þau skilaboð sem felast í því þegar fyrirtæki sjá sér ekki fært að skemmta karlmönnum öðru vísi en að bjóða þeim upp á sýningar á vatnsblautum eða berum konum. Tilgangur móttökunnar er að mótmæla því að konur séu notaðar eins og hverjir aðrir sýningargripir í þeim tilgangi að þjóna kynhvöt karla. Við búum því miður ekki í þjóðfélagi þar sem jafnrétti ríkir og á meðan konur eru sífellt hvattar til að þóknast karlmönnum kynferðislega á forsendum karla þá munum við ekki ná jafnrétti, hvorki á heimilum né á vinnumarkaði. Við viljum með þessu hvetja karlmenn til að hugsa með gagnrýnu hugarfari um hvað raunverulega er verið að selja þeim. Jafnframt viljum við vekja athygli á þátt markaðsafla í klámvæðingunni sem nú tröllríður öllu.
Við munum dreifa miðum með eftirfarandi texta fyrir utan keppnina: Manneskja ekki markaðsvara Þegar klám kom fyrst fram á sjónarsviðið,
í þeirri mynd sem við þekkjum það í
dag, var því hampað sem hjálparmeðali fyrir
þá sem ekki hefðu annað. Æsir þig lyktin af sílikoni? Á Íslandi er framkvæmd ein brjóstastækkun á dag. Aðgerðin er stórfelld. Hún kallar á fulla svæfingu, tvo ca. 4-6 cm skurði undir vöðva, endurtaka þarf aðgerðina á allavega 10 ára fresti. Aðgerðin er lífshættuleg eins og allar stórar skurðaðgerðir eru og getur haft alvarlegar aukaverkanir. Verður ástin þín næst undir hnífinn? Dóttir þín? Allir eru sammála um að æfingin skapi meistarann, reiði skapi óöryggi, hrós veiti sjálfsöryggi en þegar kemur að kynjabundnu uppeldi manna er viðhorfið að genin ráði ferðinni en ekki umhverfið. Sumir þykjast þó vita að séu drengir aldir upp í bleiku með dúkkur verði þeir aumingjar – hvert hurfu genin? Hurfu þau þangað sem gen kvenna hverfa þegar það þarf að hvetja þær og espa upp í að afklæðast? Hurfu þau þangað sem gen karlmanna hverfa við stöðugan áróður um að karlmennska byggi á neyslu á berum kvenmannskroppum? Ef eðlislægir eiginleikar þarfnast markaðsuppeldis kallast það lærð hegðun. Nakin kona getur verið gáfuð og sterk en við þekkjum hana betur gegnum kvikmyndir, auglýsingar, glansblöð og klám sem veiklundaða konu með eitt hlutverk – að þjóna kynhvöt karla. Konur eiga að líta út á vissan hátt. Horfa á vissan hátt. Allt til að trufla ekki einbeitingu karlsins. Ert þú að kaupa það? Stífnar stoltið? Meðan viðhorf þjóðfélagsins eru slík
að karlmennska byggi á neyslu kvenfólks kemst ekki á
jafnrétti. Ekki inná heimilunum og ekki útá
vinnumarkaðnum. Íhugaðu stöðu þína.
Sýndu sjálfum þér og öðrum virðingu.
Taktu ábyrgð.
|