|
Hér fyrir neðan eru stærri myndir














Hittið
er svaðaleg samkoma femínista á 2. hæð á
Kaffi Sólon Bankastræti 7a fyrsta þriðjudag í
hverjum mánuði milli kl. 20-22.
ANNAÐ HITTIÐ Í REYKJAVÍK VAR 7. OKTOBER 2003 KL.
20-22
Hittið er staður
og stund…
…til að
fá umræðu af stað
…til að varpa fram spurningum
…til að vera í góðum félagsskap
…til að bjóða nýliða Femínistafélags
Íslands velkomna
…til að kynna niðurstöður rannsókna sem
snúast um jafnréttismál
…til að kynna útskriftarverkefni sem snúast um
jafnréttismál
…til að flytja ræður um femínisma og jafnrétti
hér heima og erlendis
…þar sem femínistum er velkomið að tjá
sig
…þar sem fólk úr stjórnmálum og
viðskiptalífi getur komið og kynnt sér mál
sem
snúast um jafnrétti og femínisma
…þar sem okkur gefst tækifæri til að sjá
andlitin á bak við nöfnin á netinu
…fyrir starfandi hópa innan félagsins til að hittast,
kasta fram hugmyndum og
bralla eitthvað skemmtilegt og bráðnauðsynlegt.
Dagskráin 7. október 2003:
Undirbúningur að femínistaviku 24 október til
1 nóvember. Ráðskonur femínstafélagsins
sögðu frá hvað væri í bígerð.
Andrea Róbertsdóttir
skipulagði og sá um Hittið.
Síðast
uppfært
23-oct-03
Salvör Gissurardóttir
|