| Ræða
Katrínar Önnu talskonu
Hittið á Sólón 2. september 2003
Á forsíðu->
Myndir
frá Hittinu 2. september->
Salvör Gissurardóttir tók
myndir og setti á vef
Góða
kvöldið kæru femínistar.
Eru virkilega svo fáir femínistar á Íslandi
að þeir þekkja allir hvern annan? Þessari spurningu
sá ég varpað fram í tölvupósti fyrir
stuttu síðan. Ég geri ráð fyrir því
að spurningin hafi verið sett fram fyrir stofnun póstlistans
okkar góða sem leiddi síðan til stofnunar Femínistafélags
Íslands. Upphafið á rætur sínar að
rekja til nokkura stórmerkilegra kvenna sem ákváðu
að stofna póstlista fyrir þá örfáu
femínista sem til væru á Íslandi.
Væntingarnar
voru ekki miklar. Þær vonuðust til að fá kannski
eins og 40 femínista á listann. En viti konur – annað
kom í ljós. Brátt voru 200 femínistar skráðir
á listann og hópurinn fór sífellt stækkandi.
Áður en þær vissu af voru áskrifendur á
listanum orðnir 600 og umræðurnar margbreytilegar og fjörugar.
Það kom nefnilega í ljós að á Íslandi
er til heill aragrúi af femínistum sem þrá
jafnrétti og vilja leggja sitt af mörkum til að vinna
að þeim málum. Ég er ein af þeim manneskjum
og á hverjum degi þakka ég þessum merkilegu
konum fyrir að skapa okkur vettvang til að vinna að jafnréttismálum.
Femínistafélag
Íslands fór af stað með miklu meiri krafti heldur
en nokkur okkar þorði að vona. Þjóðfélagið
hefur sýnt því sem við erum að gera mikinn
áhuga og það segir okkur að það er mikil
þörf á félagi eins og Femínistafélaginu
– vettvangi fyrir þá sem vilja stuðla að jafnrétti
kynjanna, vettvang þar sem við getum sýnt samtakamátt
okkar í verki.
Frá
stofnun félagsins hefur verið svo mikið í gangi
að ég hef ekki nægan tíma til að telja það
allt upp.
Ég
ætla samt að stikla á stóru. Starfsemin fór
af stað rétt fyrir kosningar og er óhætt að
segja að tilurð félagsins hafi gert það að
verkum að jafnréttismálin fengu mun stærri sess
í kosningabaráttunni en annars hefði verið. Haldnir
voru fundir með stjórnmálaflokkunumbæði fyrir
og eftir kosningar.

Við
ákváðum líka að láta í okkur
heyra fyrir fegurðarsamkeppnirnar. Gáfum út bækling
til að efla sjáflstyrkingu kvenna, fórum í viðtal
í beinni útsendingu á keppninni Ungfrú Ísland.is,
sýndum myndina Í skóm drekans og síðast
en ekki síst þá settum við upp sýninguna
Afbrigði af fegurð sem er sýning á sögu mótmælaaðgerða
gegn fegurðarsamkeppnum frá árinu 1970 til dagsins í
dag.
Við
marseruðum í bleiku 1. maí og héldum veglega
dagskrá í Þjóðleikhúskjallaranum.
Þar var troðið út úr dyrum. Við héldum
19. júní hátíðlegan – fengum önnur
kvenréttindafélög í lið með okkur og
tókst að virkja stóran hluta þjóðarinnar
til að mála bæinn bleikan. Við seldum merki sem á
stóð “Ég kaupi konur” fyrir utan nektarstaðinn
Goldfinger. Við höfum haft samband við auglýsendur
og birtingaraðila auglýsinga vegna auglýsinga sem við
teljum lítilsvirðandi fyrir kynin.
Við
sendum frá okkur ályktun vegna hæstaréttardóms
þar sem manni var talið það til refsilækkunar
í líkamsárásarmáli að fyrrum sambýliskona
hans hafði ítrekað reitt hann til reiði. Við sendum
jafnframt frá okkur ályktun vegna uppsagna fréttakvenna
á Stöð 2.
Karlmennskukvöld var haldið fyrir fullu húsi á
Grand Rock Café.
Fyrir verslunarmannahelgina var öflugt forvarnarstarf í gangi,
gefnir frisbeediskar með áletruninni “Nauðgar vinur
þinn” og tóku nokkrar vinsælustu hljómsveitir
landsins þátt í því átaki.
Við
vorum í Stígamótum og í Skífunni á
menningarnótt – annars vegar með kærleiksboðskap
og hins vegar með sýnishorn af karlmennskuímyndinni.
Við vöktum líka athygli á áætlunum
um að fjölga vændishúsum í Grikklandi vegna
Olympíuleikanna sem halda á á næsta ári
og hrófluðum við því máli í
heimspressunni. Til viðbótar eru ótal útvarps-,
sjónvarps- og blaðaviðtöl sem femínistar hafa
farið í þar sem tækifæri hefur gefist til
að ræða málin og koma umræðunni af stað.
Að auki er félagið með öfluga útgáfustarfsemi.
Heimasíðan er uppfærð reglulega, rafrænt fréttabréf
er sent út í hverjum mánuði og félagið
starfrækir póstlistann sem ég minnist á í
upphafi.
Einnig
er búið að setja upp umræðukerfi á vefnum
sem ég hvet ykkur öll til að kíkja á. Slóðin
þangað er feministinn.is/umraedur. Umræðukerfið
er mjög auðvelt í notkun þannig að ég
vona að sem flest ykkar skráið ykkur þar inn og takið
virkan þátt í urmæðunni. Af nógum
málefnum er að taka, svo mikið er víst.
Af
þessu sést að það hefur ekki verið nein
lognmolla í kringum Femínistafélagið og vonandi
verður svo ekki enn um hríð. Við erum að skipuleggja
öflugt starf núna í vetur. Þessi hittingur er
byrjunin á því. Markmiðið með hittingnum
er að veita vettvang fyrir femínista til að hittast í
góðra vina hópi og ræða femínisk málefni.
Hittingurinn verður á sínum stað fyrsta þriðjudag
í hverjum mánuði, hér á efri hæðinni
á Sólon. Dagskráin verður mismunandi mikið
skipulögð. Bleika pontan verður hér alltaf og er hún
opin öllum femínistum sem vilja miðla okkur af visku sinni
og skoðunum.
Í
lok október munum við standa fyrir femínistaviku.
Femínistavikan verður sneisafull af femíniskum atburðum.
Má þar nefna að við munum hvetja allar konur til
að biðja um launahækkun til að jafna launamismunin og
launagreiðendur til að bera saman hjá sér laun karla
og kvenna og leiðrétta launamismun ef einhver er, við verðum
með listviðburði, sýningar, fyrirlestra, örnámskeið,
samkeppnir, ráðstefnur, fyrirmyndakvöld og fleira.
Allir hópar
félagsins verða með viðburði í vikunni.
Miðað er við að sem flestir atburðir verði utan
hefðbundins vinnutíma, t.d. á morgnana, hádeginu,
kvöldin og um helgar. Vikunni lýkur 1. nóvember með
ráðstefnu. Þema ráðstefnunnar er framtíðin
og hvernig femínistar vilja sjá hana. Að loknum fyrirlestrum
verða pallborðsumræður um útópíu
femínista.
Af öðrum viðburðum sem eru framundan þá
er sænski jafnréttismálaráðherran, hún
Margareta Winberg að koma til landsins. Ellefu kvennahreyfingar á
landinu standa að heimsókninni undir forystu og frumkvæði
Stígamóta. Margareta Winberg hefur vakið athygli fyrir
að vera ófeimin við að viðra upphátt skoðanir
sem mörgum finnst óþægilegar en eru nauðsynlegar
í baráttunni fyrir jafnrétti. Þetta er sem
sagt hörkukona og einstakt tækifæri fyrir okkar að
fá að hlusta á hana. Hún verður með fyrirlestur
á Grand Hótel á laugardaginn kemur, 6. september,
milli kl. 10-12. Það kostar ekkert inn og aðgangur er opinn
öllum. Salurinn rúmar 200 femínista svo ég hvet
ykkur eindregið til að missa ekki af þessari stórmerkilegu
konu og mæta á Grand Hótel.
Að lokum
vil ég hvetja ykkur öll til að taka sem mestan þátt
í starfinu. Það að taka þátt er besta
leiðin til að hafa áhrif á framkvæmdina og
eins veitir okkur ekki af sem flestu góðu fólki til
að þoka jafnréttismálunum áfram.
Mín
framtíðarsýn er sú að Ísland verði
fyrsta landið í heiminum til að ná jafnrétti
kynjanna. Ég vona að sem flest ykkar deili þessari framtíðarsýn
með mér því markmiðið er verðugt og
málstaðurinn góður.
Ef að
þið eruð ekki nú þegar skráð í
einhvern hóp á vegum félagsins og langar til að
taka þátt þá hvet ég ykkur til að
tala við mig eða einhverjar af ráðskonunum núna
á eftir. Við getum sagt ykkur hvaða hópar eru starfandi
og hvernig þið getið haft samband við viðkomandi
ráðskonur. Einnig getið þið fundið allar
upplýsingar um hópana og tengiliði á heimasíðunni
okkar, feministinn.is.
Ég
óska ykkur síðan gleðilegs hittings og farsæls
komandi femínistaárs.
|