Femínistafélag Íslands

Hittið á Sólón 2. september 2003
Á forsíðu->
Ræða Katrínar Önnu talskonu félagsins á Hittinu 2. september->
Salvör Gissurardóttir tók myndir og setti á vef









 

Hittið er svaðaleg samkoma femínista á 2. hæð á Kaffi Sólon Bankastræti 7a fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði milli kl. 20-22.

FYRSTA HITTIÐ VAR 2. SEPTEMBER 2003 KL. 20-22

Hittið er staður og stund…

…til að fá umræðu af stað
…til að varpa fram spurningum
…til að vera í góðum félagsskap
…til að bjóða nýliða Femínistafélags Íslands velkomna
…til að kynna niðurstöður rannsókna sem snúast um jafnréttismál
…til að kynna útskriftarverkefni sem snúast um jafnréttismál
…til að flytja ræður um femínisma og jafnrétti hér heima og erlendis
…þar sem femínistum er velkomið að tjá sig
…þar sem fólk úr stjórnmálum og viðskiptalífi getur komið og kynnt sér mál sem
snúast um jafnrétti og femínisma
…þar sem okkur gefst tækifæri til að sjá andlitin á bak við nöfnin á netinu
…fyrir starfandi hópa innan félagsins til að hittast, kasta fram hugmyndum og
bralla eitthvað skemmtilegt og bráðnauðsynlegt.


Dagskráin 2. september 2003:
Katrín Anna Guðmundsdóttir talskona Femínistafélags Íslands sagði okkur frá því sem er búið að gerast hjá félaginu og hvað er framundan.

Kristín Ástgeirsdóttir fyrrum þingmaður og ráðskona sagði okkur frá ráðstefnu sem fjöldi fræðikvenna fóru á í Lundi í ágúst. Hvað eru femínistar að bralla erlendis? Hver er staðan í jafnréttismálum á klakanum og erlendis? Hvað er á seyði í fræðaheiminum? Mansal? Konur og stríð?…

Kynnir er Erla Hulda Halldórsdóttir sagnfræðingur sem ætlar að splæsa atriðum kvöldsins saman og stjórna umræðum.

Andrea Róbertsdóttir skipulagði og sá um Hittið.

Síðast uppfært 1-oct-03
Salvör Gissurardóttir