Aftur
á forsíðu->
Sýning um sögu mótmælaaðgerða gegn
fegurðarsamkeppnum 23.maí 2003
Salvör Gissurardóttir tók
myndir á opnun sýningarinnar og setti upp á vef.

Elísabet, Katrín, Auður og Sóley
Staðalímyndahópur
Femínistafélags Íslands skipulagði uppákomu
í kringum Ungfrú Ísland keppnina 23. maí
2003. Þau dreifðu bæklingum fyrir utan Broadway þar
sem keppnin var haldin og gáfu þátttakendum bleika
boli frá Femínistafélaginu. Lögreglan kom
á staðinn. Síðan kl. 20:30 um kvöldið
opnuðu þau sýninguna Afbrigði af fegurð
- sýning um sögu mótmælaaðgerða gegn
fegurðarsamkeppnum í húsakynnum kvikmyndagerðarinnar
Cut’n Paste, Íslandi, Síðumúla 12.
Þar eru sýnd sögubrot allt frá árinu
1970 þegar slagorðið "Manneskja ekki markaðsvara"
kom fyrst fram.
Sýningin
Afbrigði af fegurð heldur síðan áfram
á Veitingahúsinu Prikinu, Bankastræti 12, frá
og með sunnudeginum 25. maí.

Allt frá 1. maí 1970 hafa ýmsir hópar
vakið athygli á því fyrir hvað fegurðarsamkeppni
stendur og frægt var þegar borgarfulltrúar Kvennaframboðsins
mættu á borgarstjórnarfund í síðkjólum
með kórónur og borða með merkingum eins
og "Ungfrú spök" og "Ungfrú meðfærileg"
árið 1985. Það vakti ekki síður athygli
þegar félagar í Rauðsokkahreyfingunni krýndu
kýrina Perlu Fáfnisdóttur um leið og ungfrú
Vesturland var krýnd á Akranesi snemma á áttunda
áratugnum.

Markmið Staðalímyndahóps Femínistafélags
Íslands með þessum uppákomum er að hvetja
fólk til gagnrýninnar hugsunar um hvað fegurðarsamkeppni
í rauninni er og vekja athygli á því sem
gert hefur verið í gegnum tíðina. Lögð
er áhersla á að markmiðið er ekki að
gagnrýna þátttakendur í fegurðarsamkeppni.

Lilja var í 1. maí göngunni 1970 og sér
sjálfa sig á myndinni.
Hún heyrði auglýsingu í útvarpinu
um að konur á rauðum sokkum væru hvattar til
að mæta og ganga aftast. Hún átti enga rauða
sokka en hún og vinkonur hennar mættu með klúta
og fleira í rauðu. Konurnar gengu aftast með frauðplaststyttuna
Manneska - ekki markaðsvara. Aðilar frá
verkalýðsfélögunum vildu banna konum að
ganga og leituðu til lögreglu. En það þótti
ekki stætt á því þar að neita
konum um að ganga niður Laugaveginn.
Femínistafélag Íslands hefur m.a. það
markmið að berjast gegn neikvæðum ímyndum
og auglýsingum og hefur skipulagt uppákomur í
tengslum við fegurðarsamkeppnir. Þegar fegurðarsamkeppnin
Ungfrú Ísland.is var haldin fyrir u.þ.b. mánuði
dreifðu félagar í staðalímyndahóp
bæklingum til gesta, gáfu keppendum boli merkta Femínistafélagi
Íslands og efndu til sýningar á kvikmyndinni
Í skóm drekans eftir Hrönn og Árna Sveinsbörn.

Gerla flytur
opnunarávarp.

Kristín Ása og Auður Magndís skoða myndir

Birna ráðskona í ungliðahóp og fleiri sýningargestir.
Margt kornungt fólk hefur gengið í félagið
á síðustu vikum.

Unnur Dís bendir á eitthvað áhugavert.

Unglingar í félaginu

"Þarna er ég" segir Lilja og segir Unni söguna
af 1. maí göngunni 1970
Þar gengu konur á rauðum sokkum, um haustið var
Rauðsokkuhreyfingin stofnuð.
Guðrún,
Embla, Ásta og Kristín undir myndinni af Magdalenu Scram
og Guðrúnu Jónsdóttur borgarfulltrúum
Kvennaframboðsins árið 1985. Þá mættu
Magdalena og Guðrún á borgarstjórnarfund
í síðkjólum með kórónur
og borða með merkingum eins og "Ungfrú spök"
og "Ungfrú meðfærileg" .


Hlustað á
opnunarávarp sýningarinnar


Við opnun sýningarinnar mættu margar mæðgur.
Það er ekkert kynslóðabil í Femínistafélaginu.

Sýningargestir
skoða bæklinginn sem dreift var við mótmælin




Þorgerður með dóttur sinni. Þorgerður stofnaði
femínistapóstlistann.

Nokkrar
vefslóðir
Ófagrar
hliðar Ungfrú Heims (Soffía Kristín,
Deiglan 4.des.2002)
Klónuð
fegurð (Salvör, 22.maí 2001)
Í
útsaumuðum lótusskóm (Salvör, 19.
mars 2002)
Sett
á vefsíðu 24. maí 2003
Salvör Gissurardóttir
Á forsíðu vefs Femínistafélags
Íslands


|