8.mars 2004
Ráðstefna í Norræna húsinu
Opnun hjá Stígamótum

(March 8th 2004 in Reykjavik, Iceland : Conference about Nordic Feminism in the
Nordic House and open house at Stigamot (center for survivors of sexual violence)

Aftur á forsíðu->

Amnesty International hóf þennan dag átakið "Stop Violence against Women" með þessari yfirlýsingu:

Violence against women is the greatest human rights scandal of our times. From birth to death, in times of peace as well as war, women face discrimination and violence at the hands of the state, the community and the family.


Á Íslandi bauð Stígamót gestum að skoða ný húsakynni sem eru gamla gasstöðvarhúsið við Hlemm. Í hádeginu héldu verkalýðsfélögin fund á Grand Hótel (sjá ávarp), það var friðarfundur síðdegis og um kvöldið var ráðstefna í Norræna húsinu : Norrænn feminismi á 21. öldinni þar sem norrænir femínistar sögðu frá hvað er helst á baugi í sínum löndum. Þar var einnig kynnt greinasafnið FEMKAMP.

Myndirnar hér fyrir neðan eru frá ráðstefnunni í Norræna húsinu og frá opna húsinu hjá Stígamótum.









Stand up by Shabana Rehman from Norway (her family is orginally from Pakistan)




Í kjölfar Píkutorfunnar...
Norrænn feminismi á 21. öldinni

Ráðstefna í Norræna húsinu mánudaginn 8. mars 2004 kl. 19:30 - 22:30
Í tilefni af útgáfu norræna greinasafnsins FEMKAMP - bang om nordisk feminism sem sænska forlagið Bang gaf nýverið út verða haldnar ráðstefnur um feminisma í Reykjavík, Osló, Helsinki og Kaupmannahöfn en sú fyrsta fór fram í Kulturhuset í Stokkhólmi 4 febrúar s.l.

Á ráðstefnunni í Norræna húsinu munu norrænir feministar segja frá því sem er efst á baugi í hverju landi. Sérstakur gestur ráðstefnunnar er Shabana Rehman sem er pakistönsk að uppruna og búsett í Noregi. Hún er einkum þekkt sem uppistandari og hefur vakið mikla athygli fyrir gagnrýni sína á stöðu innflytjendakvenna í Noregi. Hún mun bæði halda fyrirlestur og troða upp. Gunilla Edemo og Ulrika Westerlund ritstjórar FEMKAMP segja frá tilurð greinasafnsins og því sem sænskir feministar eru að fást við. Heli Suominen blaðamaður, m.a. hjá tímaritinu Tulva ræðir um feminísk skrif og stöðu feminismans í Finnlandi. Danska dagskrárgerðarkonan Louise Witt-Hansen segir frá heitri umræðu um auglýsingaherferð mjólkursamlagsins Arla Foods. Fulltrúi íslenskra feminista er Guðrún Margrét Guðmundsdóttir mannfræðingur en hún mun ræða um feminískt uppeldi. Fundarstjóri er Brynhildur G. Flóvenz lögfræðingur.

Boðið verður upp á túlkun frá skandinavísku málunum yfir á íslensku.
Túlkur: Borgþór Kjærnested.

Í bókinni FEMKAMP er landslag feminismans á Norðurlöndum í dag skoðað, einkum með tilliti til þeirrar vakningar sem orðið hefur í kjölfar Píkutorfunnar og segja má að hafi markað upphafið að þriðju bylgju feminismans.

Greinarhöfundar spyrja ýmissa spurninga: Af hverju notar mjólkursamsalan Arla Foods naktar konur í auglýsingum sínum á danska markaðnum? Af hverju liðu tíu ár áður en finnskir stjórnmálamenn tóku á sívaxandi vanda vegna mansals og vændis? Af hverju eru fegurðarsamkeppnir mikilvægar fyrir Íslendinga? Af hverju var verkfalli fagfélags fólks sem vinnur á vegum sveitarfélaga (meirihluti félagsmanna eru lágt launaðar konur) mætt með slíkri þögn í Svíþjóð? Og hvernig stendur á því að konur í hinu ríka landi Noregi fá lægri laun en konur á hinum Norðurlöndunum?
Bókin verður seld á ráðstefnunni og kostar kr. 1.250.-

Dagskrá

19:30 - 19:40 Brynhildur G. Flóvenz fundarstjóri opnar ráðstefnuna

19:40 - 20:00 Gunilla Edomo / Ulrika Westerlund (SVÍ) ritstjóra greinasafnsins FEMKAMP - bang om nordisk feminism kynna bókina og segja frá því sem gerst hefur í Svíþjóð eftir að bókin Fittstim (Píkutorfan) var gefin út.

20:00 - 20:20 Louise Witt-Hansen (DAN) dagskrárgerðarkona á Danmarks radio segir frá heitri umræðu um auglýsingar mjólkursamsölunnar Arla Foods á nýjum mjólkurafurðum.

20:20 - 20:40 Guðrún Margrét Guðmundsdóttir (ÍSL) mannfræðingur segir frá persónulegri reynslu sinni af feminísku barnauppeldi á tímum klámvæðingar.

20:40 - 21:00 Hlé

21:00 - 21:20 Shabana Rehman (NOR) heldur fyrirlestur um húmor, feminisma og mannréttindi.

21:20 - 21:40 Heli Suominen (FIN) heldur erindi um feminisma, jafnrétti og feminíska blaðamennsku í Finnlandi.

21:40 - 22:00 Umræður

22:00 - 22:30 Shabana Rehman - Uppistand

Kaffistofa Norræna hússins verður opin frá 19:00 - 23:30

Fyrirlesarar á ráðstefnunni:

Guðrún Margrét Guðmundsdóttirer mannfræðingur. Hún skrifaði grein í greinasafnið Píkutorfuna sem fulltrúi einstæðra mæðra og var í framhaldi af því beðin um að skrifa fasta pistla um feminisma í tímaritið Veru.
Erindi hennar nefnist: Klámvæðing og uppeldi.

Gunilla Edemo & Ulrika Westerlund eru ritstjórar greinasafnsins FEMKAMP - bang om nordisk feminism og starfa hjá sænska forlaginu Bang sem gefur út bækur um feminísk málefni og tímaritið Bang. TImaritið Bang var stofnað 1991 en fyrsta bók forlagsins, greinasafnið Hjärnsläpp - Bang om biologism, kom út 2002.
Heimasíða Bang...http://www.bang.a.se/

Heli Suominen frá Finnlandi er stjórnmálafræðingur og blaðamaður.
Hún er ritstjóri feministatímaritsins Tulva. Heli mun í erindi sínu fjalla um feminisma, jafnrétti og feminíska blaðamennsku í Finnlandi.
Nánari upplýsingar um tímaritið Tulva er að finna á vef feministafélagsins Unioni...
http://www.naisunioni.fi/English.htm

Louise Witt-Hansen frá Danmörku er dagskrárgerðarkona hjá Danmarks Radio og vinnur að gerð menningarefnis og heimildamynda. Hún skrifar pistla um feminísk málefni fyrir dagblaðið Information. Hún sat í stjórn félagsins Kvindeligt Selskab 2001-2003. Hún hóf sinn "eminíska "feril" þegar hún skrifaði grein í bókina Nu er det nok. Så er det sagt sem er danska hliðstæðan við Píkutorfuna.
Nánari upplýsingar um Kvindeligt Selskab..

Shabana Rehman frá Noregi hefur á undanförnum árum vakið mikla athygli, bæði fyrir pistla sína um málefni kvenna og sem uppistandari. Hún er fædd 1976 Karachi í Pakistan en flutti á fyrsta aldursári með foreldrum sínum til Noregs. 1996 hóf Shabana að skrifa beitta pistla í dagblaðið VG um stöðu innflytjendakvenna í Noregi. Áhugi hennar á skemmtibransanum kviknaði þegar vinur hennar bað hana um aðstoð við að skrifa nokkrar senur fyrir sig og þannig hófst ferill hennar sem uppistandari. Einn af fyrstu bröndurum hennar var um múslimakonur sem hika ekki við að stunda kynlíf fyrir giftingu og láta síðan lýtalækna búa til nýtt meyjarhaft fyrir giftinguna. Shabana vakti þó fyrst verulega athygli þegar hún kom fram nakin, máluð í norsku fánalitunum og einnig í hefðbundnum pakistönskum klæðnaði í viðtali í norsku dagblaði. Viðbrögðin létu ekki á sér standa! Shabana hefur ferðast víða með sýninguna "Á skíðum yfir Grænland" en titillinn hefur tvöfölda skírskotun, annars vegar til norsku þjóðhetjunnar Fridtjof Nansens sem ferðaðist á skíðum yfir Grænland um 1890 og hins vegar til hverfisins Grænlands í Osló þar sem mikill fjöldi innflytjenda býr.
Á ráðstefnunni mun Shabana halda erindi sem hún nefnir Fundamental - et foredrag om humor, feminisme og menneskerettigheter.
Nánari upplýsingar: www.shabana.no

Norden i fokus sem heyrir undir Norræna húsið í Reykjavík stendur fyrir ráðstefnunni.

Undirbúningsnefnd ráðstefnunnar í Reykjavík: Guðrún Dís Jónatansdóttir verkefnisstjóri Norden i fokus, Erla Hulda Halldórsdóttir sérfræðingur hjá Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum, Guðrún Margrét Guðmundsdóttir mannfræðingur, Katrín Anna Guðmundsdóttir talskona Feministafélags Íslands og Þorgerður Einarsdóttir lektor í kynjafræðum við Háskóla Íslands.

Femkamp i Norden

Feminisme med muskler (Dagsavisen 6. 3. 2004)
Duktiga döttrars deppiga domedag (Expressen 8.3.2004)

Sett á vef 10. mars -04
Salvör Gissurardóttir tók myndir og setti á vef.
Á forsíðu vefs Femínistafélags Íslands