Icelandic Vietnamese Spanish Polish Serbian German Arabic English

Konur sýnum samstöðu!

Kvennafrídagurinn var haldinn 24. október 2005. Tilefnið var að 30 ár eru liðin frá Kvennafrídeginum 1975 þegar konur á Íslandi sýndu einstæða samstöðu og lögðu niður vinnu til að sýna fram á verðmæti vinnuframlags kvenna í íslensku samfélagi. Markmiðið með Kvennafrídeginum 2005 var það sama.

Dagurinn var nefndur baráttuhátíð – til að undirstrika að við eigum enn í baráttu og til að heiðra þær konur sem tóku þátt í Kvennafrídeginum 1975.

Samstaða kvenna var síst minni nú en 1975. Talið er að um 60.000 konur alls staðar af á landinu hafi tekið þátt í baráttuhátíðinni. Um 50.000 konur söfnuðust saman í miðborg Reykjavíkur og víðast hvar á landinu var troðfullt út að dyrum.