
*****

Hægt er að kaupa
NEI boli
í öllum stærðum og gerðum í Dogma á Laugavegi 30.
Bolirnir kosta 1500 kr.
Tilvalin jólagjöf og ágóðinn rennur í áframhaldandi aðgerðir
karlahóps Femínistafélagsins
gegn nauðgunum.
*****
Viðburðardagatal á heimasíðu Jafnréttisstofu inniheldur upplýsingar um komandi atburði.
*****
Mundu að borga félagsgjöldin!
Leggðu inn á reikninginn:
Femínistafélag Íslands
kt. 6803034010
Banki 1157
Höfuðbók 26 Reikningsnúmer 544
Upphæð: 1500 kr
Skýring greiðslu: Félagsgjöld FÍ 2006
*********

*********
*********
Ljósberi 2006
Gísli Hrafn Atlason, ráðskona karlahóps Femínistafélagsins var valinn Ljósberi ársins 2006. Við óskum Gísla Hrafni hjartanlega til hamingju og erum að vonum að mjög stolt af okkar manni!
Thelma Ásdísardóttir, Ljósberi 2005, afhendir Gísla
Hrafni Atlasyni viðurkenningu sem Ljósberi 2006.
Myndin er úr Morgunblaðinu,
10. desember 2006, bls. 8.
Frá samstarfshópi Ljósbera:
"Að mati samstarfshópsins hefur Gísli Hrafn sýnt frumkvæði, djörfung og baráttuanda í umræðum og verið í forsvari í því að virkja karlmenn til ábyrgðar gegn kynbundnu ofbeldi í samfélaginu.
Hann hefur tekið virkan þátt í jafnréttismálum og vakið athygli á hlutverkaskiptingu kynjanna, samþættingu daglegs lífs og atvinnuþátttöku foreldra og hvaða áhrif það hefur á fjölskyldulíf. Þannig hefur hann verið sú sterka rödd úr röðum karla sem hvetur til heilbrigðra samskipta milli kynja, foreldra og barna.
Gísli Hrafn hefur hvatt til breytinga á lögum í samræmi við þekkingu hans á afleiðingum ofbeldisbrota. hann hefur náð að samþætta alþjóðlega og íslenska umræðu og rannsóknir og byggt þannig sannfærandi brýr með rökstuðningi sínum til almennings."
*********
EFLUM MANNRÉTTINDI - STÖÐVUM OFBELDI GEGN KONUM!
*********
*********
24. október
Áskoranir atvinnu- og stjórnmálahóps
Skorað er á atvinnurekendur að afgreiða sex aldir á einum degi og leiðrétta kynbundið launamisrétti.
Skorað er á stjórnmálaflokka, konur í framboði og kjósendur að jafna hlut kvenna og karla á þingi í komandi kosningum.
Sjá nánar hér.
*********
Smelltu á myndina hér fyrir ofan til að skoða dagskrá Stjórnmálaskólans.
Til að skrá þig sendir þú póst á netfangið feministinn@feministinn.is
*********
150 ára afmæli Bríetar Bjarnhéðinsdóttur
Þann 27. september eru liðin 150 ár frá fæðingu Bríetar Bjarnhéðinsdóttir. Bríet var ein ötulasta baráttukona okkar fyrir kosningarétti kvenna. Undir liðnum Á döfinni hér til hliðar má sjá hvaða viðburðir eru á dagskrá í tilefni af afmæli hennar. Á heimasíðu Kvennasögusafns er að finna ýmsa fróðleiksmola um baráttuna fyrir kosningarétti.
*********
Ályktun vegna Konukots
Femínistafélag Íslands skorar á formann Velferðarsviðs Reykjavíkur að endurskoða tillögur um að leggja niður Konukot, athvarf fyrir heimilislausar konur. Ástæðan fyrir því að Konukot var stofnað var sú að ekki reyndist mögulegt að tryggja öryggi kvenna í gistiskýlinu í Þingholtsstræti og telur stjórn félagsins það óásættanlegt að aftur verði horfið til fyrra ástands í þessum efnum. Reynslan af rekstri Konukots hefur verið góð og hafa starfsmenn lögreglunnar í Reykjavík og Kvennaathvarfsins talið Konukot hafa bætt til muna umhverfi og öryggi heimilislausra kvenna í borginni. Við teljum það skyldu borgaranna að styðja við heimilislausar konur og útvega þeim skjól fyrir veðri og vindum, þar sem þær eiga ekki á hættu að verða fyrir ofbeldi. Velferðarsvið borgarinnar ber ábyrgð á velferðarþjónustu fyrir íbúa borgarinnar og teljum við að til að uppfylla skyldur sínar gagnvart borgurunum sé mikilvægt að bjóða heimilislausum konum öruggt skjól.
*********
Sorgarfánar í Bankastræti
Ungliðahópur félagsins flaggaði 12 bleikum fánum í hálfa stöng í Bankastrætinu til að vekja athygli á þeim vandamálum á sviði jafnréttis sem enn eru ekki leyst í íslensku nútímaþjóðfélagi.
Sjá nánar á heimasíðu Ungliðhóps
*********
Fyrsta Hitt vetrarins
Smelltu hér til að lesa frétt af Hittinu
5. september 2006
Um daginn voru ansi fróðlegar og skemmtilegar umræður á póstlistanum okkar um alþjóðavæðingu og heimilishjálp. Á sama tíma var mikil umræða í samfélaginu um málefni tveggja erlendra kvenna sem skildu við eiginmenn sína vegna heimilisofbeldis en þeim var neitað um dvalarleyfi hér á landi. Álita- og siðferðismálin tengd alþjóðavæðingunni eru fjölmörg og því ekki úr vegi að tileinka fyrsta Hitt vetrarins þessum spennandi málum.
Hittið verður haldið þriðjudaginn 5. september kl. 20:00 á Thorvaldsen (Bertelstofu). Til okkar koma feikifróðar konur sem munu miðla okkur af visku sinni en það eru þær:
*************
Silja Bára Ómarsdóttir, forstöðumaður alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.
Hún mun fjalla um alþjóðavæðinguna og áhrif hennar á stöðu kvenna.
Tatjana Latinovic, formaður Félags kvenna af erlendum uppruna. Hún mun fjalla um stöðuna hér á landi og hvernig okkur er að takast að gera Ísland að fjölmenningarsamfélagi.
Margrét Steinarsdóttir, lögfræðingur hjá Alþjóðahúsi. Hún mun fjalla um lagalegar hliðar og hvernig mál koma til kasta Alþjóðahúss.
Á eftir erindunum er opnað fyrir umræður þannig að okkur gefst gott tækifæri til að kryfja málin, koma með okkar álit og spyrja áleitinna spurninganna.
***************
Hittið er öllum opið - aðgangur er ókeypis.
Hlökkum til að sjá ykkur!
*********
27. júní 2006
Femínistafélag Íslands óskar öllum til hamingju með stóran áfangasigur í mannréttindamálum í tilefni gildistöku laga sem leiðrétta réttarstöðu samkynhneigðra. Fullum réttindum er þó ekki náð og við lýsum yfir stuðningi við áframhaldandi baráttu.
*********
Karlmenn
segja NEI við nauðgunum - WORKSHOP
Þriðjudagskvöld 27. júní 2006
Kl. 19:00 til 22:00
Hitt Húsið kjallara (gengið inn Austurstrætis megin)
Karlahópur og ungliðahópur Femínistafélagsins verða með
Workshop 27. júní
til þess að undirbúa næsta átak: "KARLMENN SEGJA NEI VIÐ NAUÐGUNUM".
Workshopið er haldið í þeim tilgangi að hugstorma um hvernig
hægt er að þróa
átakið lengra og betur. Vonast er til þess að nýjar hugmyndir kvikni um
framkvæmd, aðferðir og framsetningu. Skipt verður upp í hópa eftir þemum
þannig að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og áhugasvið.
Einnig er þetta hugsað sem vettvangur fyrir þá sem hafa
áhuga á að leggja
þessu átaki lið til þess að kynna sér vinnuna og jafnvel taka þátt í
næsta átaki.
Allir eru velkomnir.
hlökkum til að sjá sem flesta.
Endilega sendið upplýsingar um Workshopið á áhugasama.
*********
Smelltu hér til að lesa skýrslu ráðsins fyrir starfsárið 2005 - 2006.
Við þökkum gott starfsár!
*********

19. júní 2006
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
Svona fögnum við 19. júní – auk þess að bera eitthvað bleikt allan daginn!
15:30
Dularfullt hvarf kvenna úr vísindum – hvert hafa allar ungu konurnar farið?
Fyrirlestur Önju Andersen stjarneðlisfræðings í Hátíðarsal Aðalbyggingu
Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn er fluttur á ensku og er á vegum Jafnréttisnefndar
HÍ og RIKK.
16:45 Safnast saman í Aðalbyggingu HÍ, þar sem verður boðið upp á hressingu
fyrir göngu.
17:00 Gengið af stað í Kvosina undir leiðsögn Kristínar Ástgeirsdóttur í
boði Kvennasögusafns Íslands.
18:00 Veitingar og hressandi dagskrá á Hallveigarstöðum í boði Kvenréttindafélags
Íslands, Kvenfélagasambandisins og Bandalags kvenna í Reykjavík.
20:30 Kvennamessa Kvennakirkjunnar í samvinnu við Kvenréttindafélag Íslands
og Kvenfélagasamband Íslands. Messan er við þvottalaugarnar í Laugardal.
20:00 Bleikir tónleikar Ungliðahóps Femínistafélagsins á Barnum, Laugavegi
22.
UNIFEM
á Íslandi verður með armbandasölu í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna að Laugavegi
42, World Class, Iðu, Máli og menningu Laugavegi og Body Shop í Reykjavík
og á Akureyri. Armböndin eru að sjálfsögðu bleik að lit og allur ágóði rennur
til starfs UNIFEM í Afganistan.
Kvenréttindafélag Íslands dreifir tímaritinu 19. júní frítt.
Femínistafélagið mun afhenda hvatningarverðlaunin Bleiku steinana.
Aðstandendur Málum bæinn bleikan eru:
Bríet, Kvenréttindafélag Íslands, Stígamót, Femínistafélag Íslands, Femínistafélag
Akureyrar, W.O.M.E.N., Kvennaráðgjöfin, Kvenfélagasamband Íslands, Samtök
um Kvennaathvarf, Prestur innflytjenda, Kvennasögusafn og UNIFEM á Íslandi.
Smelltu á myndina til að skoða sjónvarpsauglýsingu
Smelltu hér til að lesa meira um 19. júní
*********
*********
Reykjavíkurborg verðlaunar Femínistafélag Íslands

Femínistafélag Íslands hlaut í dag, 1. maí 2006, jafnréttisverðlaun Reykjavíkurborgar. Þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunin eru veitt og jafnframt eru þetta fyrstu verðlaunin sem Femínistafélagið hlýtur á þeim 3 árum síðan félagið var stofnað. Í rökstuðningi borgarstjóra við afhendingu verðlaunanna kom fram að þau eru veitt fyrir fjölbreytt og öflugt starf félagsins á mörgum sviðum. Meðal atriða sem talin voru upp voru póstlisti og vefsíða félagsins, vinna gegn staðalímyndum og fegurðardýrkun, átök gegn kynbundu ofbeldi, bleikar hjólbörur til forsætisráðherra, króna konunnar og ýmislegt fleira.
Verðlaunin eru 150.000 kr og hefur ráð félagsins þegar ákveðið að fara út að borða fyrir peninginn! Nei, nei. Það er að sjálfsögðu grín... Peningurinn verður nýttur vel í jafnréttistengd verkefni. Við þökkum Reykjavíkurborg þessa góðu viðurkenningu og það lýsir bæði hugrekki og framsækni hjá borginni að verðlauna félag sem vill rugga bátnum sem um munar! Og það munum við að sjálfsögðu halda áfram að gera.
Smelltu hér til að lesa frétt á vefsíðu Reykjavíkurborgar.
*********
1. maí
Við hvetjum alla femínista nær og fjær til að taka þátt í 1. maí göngunni. Við viljum tileinka láglaunakonum gönguna að þessu sinni. Króna konunnar verður seld á staðnum - á 65 kr fyrir konur og 100 kr fyrir karla. Endilega mætið með skilti með flottu slagorði á! Á eftir göngunni hvetjum við fólk til að mæta á fundi hjá stjórnmálaflokkum og verkalýðsfélögum.
Gangan hefst kl. 13:30.
Smelltu hér til að lesa 1. maí ávarp Femínistafélags Íslands
*********
Vændi er ekki íþrótt
Áskorun kvennahreyfingarinnar vegna HM 2006
*********
Femínistafélag Íslands sendi frá sér umsögn vegna frumvarps um breytingar á kynferðisbrotakafla hegningarlaga. Smelltu hér til að lesa nánar.
*********
Ályktun vegna setuverkfalls
Femínistafélag
Íslands sendi frá sér eftirfarandi ályktun 7. apríl:
Femínistafélag Íslands hvetur yfirvöld til að uppfylla launakröfur ófaglærðs
starfsfólks þeirra 10 dvalar- og hjúkrunarheimila sem nú eru í setuverkfalli.
Störf við umönnun, í eldhúsi, þvottahúsi og ræstingum eru talin til hefðbundinna
kvennastarfa sem eru hvað minnst metin í þjóðfélaginu og er það óásættanlegt.
Þegar konur gagnrýna launamun kynjanna er viðkvæðið iðulega að það sé þeim
sjálfum að kenna því þær krefjist ekki nægilega hárra launa. Nú eru fjölmargar
konur að krefjast hærri launa og er hér tækifæri fyrir yfirvöld að sína
stuðning sinn við láglaunakonur í verki með því að hækka laun þeirra þannig
að þau verði í samræmi við framlag.
Launum í hefðbundnum kvennastörfum er haldið niðri með handafli í nafni
stöðugleika í hagkerfinu og lágra skatta. Lág laun í hefðbundnum kvennastörfum
í nafni lágra skatta þýðir í raun að konur eru "neyddar" til að
greiða hlutfallslega meira til samfélagsins en karlar. Með öðrum orðum þá
er lagður óbeinn samfélagslegur skattur á konur í formi lágra launa.
Femínistafélag Íslands hvetur fjármála- og heilbrigðisráðherra að nota þetta
tækifæri og uppfylla launakröfur starfsmannanna. Það getur verið þeirra
fyrsta skref til ná fram þjóðarsátt um að hefðbundin kvennastörf séu metin
að verðleikum.
*********
Hittið 4. apríl
Síðasta Hitt vetrarins var haldið síðastliðinn þriðjudag. Rósa Björk Brynjólsdóttir, Sóley Tómasdóttir og Birna Þórarinsdóttir sögðu okkur frá ferð sinni til New York á fund Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna. Hittið var einstaklega áhugavert og vel heppnað!
*********
Hittið 7. mars
Hitt Femínistafélags Íslands
Kornhlaðan, Lækjarbrekku kl. 20:00 - 22:00
Gestir fundarins:
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri
Kristín Ólafsdóttir starfsmatsráðgjafi
Aðgangur ókeypis - Vonandi sjáum við ykkur sem flest
Hittið er okkar vettvangur til að skiptast á skoðunum og hittast í góðum félagsskap!
*********
STJÓRNARSKRÁ FYRIR OKKUR ÖLL!
Stjórnarskrá Íslenska lýðveldisins á að þjóna okkur öllum og endurspegla það samfélag sem við viljum búa í. Til að svo megi verða hafa kvennasamtök hafið undirskriftasöfnun við tillögur sína um breytingar á stjórnarskránni. Við höfum sögulegt tækifæri til að láta kröfur jafnréttissinna heyrast og breyta hornsteini íslenskra laga í átt til jafnréttis fyrir okkur öll. Nýtum tækifærið, sýnum samstöðu og lýsum yfir stuðningi við tillögurnar á www.unifem.is
*********
Prófkjör!
Nýtir þú kosningaréttinn þinn?
Eftir fjörugar umræður á póstlistanum sendi Femínistafélagið spurningar til allra frambjóðenda í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík sem fram fer helgina 11. - 12. febrúar.
Smelltu hér til að skoða svör frambjóðenda
Tekið skal fram að félagið er þverpólitískt.
Ráðgert er að vera með aðgerðir fyrir sveitarstjórnarkosningarnar.
*********
FebrúarHitt Femínistafélagsins var haldið 7. febrúar.
Smelltu hér til að lesa fréttir af Hittinu.
*********
Viltu gerast félagi ? 
Það er einfalt!
Sendu nafn, netfang og kennitölu til feministinn@feministinn.is
Skráðu þig á eða af póstlistanum hér!

Listahornið
Hér birtum við núna ljóðið
"Vísdómur æskunnar"
eftir Andreu Ólafs sem hún sendi okkur til birtingar. Takk fyrir það.
Eldra efni úr listahorninu
MJAÐMASÚLA
Við minnum á blogg ungliðahóps
ungfem.blogspot.com
Tenglasafn
Hér er vefurinn frá júní 2005
og hér er vefurinn frá 2004