Information in English

 

Smelltu hér fyrir femínistaspjallið

Blogg ungliðahóps
ungfem.blogspot.com

FréttapunktarFréttabréf
PóstlistiFemínistaspjall
DagatalStarfshópar
StefnuskráUm félagið

Viltu borga félagsgjöldin?
Viltu styrkja félagið?

Leggðu inn á reikninginn:
Femínistafélag Íslands
kt. 6803034010
Banki 1157
Höfuðbók 26 Reikningsnúmer 544
Upphæð: 1500 kr
Skýring greiðslu: Félagsgjöld FÍ 2004

KarlahópurStaðalímyndir
ÖryggisráðFræðsluhópur
MenningStjórnmal
UngirVefhópur
HeilbrigðiAtvinnumál

Viltu gerast félagi ?
Það er einfalt!
Sendu nafn, netfang og kennitölu til feministinn@feministinn.is

Viltu fá fréttabréf í tölvupósti?
Skáðu þig þá hér:
Nafn:
Tölvupóstfang:
Póstkerfi frá YourMailinglistProvider.com

Nokkrar myndir

8.mars 041.maí 03
19.júní 032.okt.03
1.apríl 0325.okt. 03
27.mars 0328. júní 03
14.mars 03

Rök með vændisfrumvarpi
Vændisfundur í Versló

Útópíuráðstefna Toshimi

Áfram stelpur!
Myndir frá opnun sýningar

Hittið í Jónshúsi 2. okt. 03

Ég kaupi konur

19. júní - Málum bæinn bleikan

16. júní Karlmennskukvöld
á GRAND ROKK kl. 19 (plakat)->

Fjölgjum vændishúsa vegna Ólympíuleika mótmælt

Talblogg (í boði hex.is)
Kosningar 2003 Jafnréttisáætlanir

1. maí ganga og fundur

Stofnfundarávarp - Kristín
Stofnfundarávarp - Erla

Stofnfundarávarp - Gyða
Stofnfundarávarp - Irma

Kynjuð stjórnmál - Kristín
Kynjuð stjórnmál - Rósa
Þriðja bylgjan - Erla
Hvað höfum við gert? - Katrín

Hittið í Jónshúsi- Erla
Hittið í Jónshúsi - Gísli
Hittið á Sólón- Katrín

Lög félagsins

Greinasafn (í vinnslu)

Bókalisti (í vinnslu)

Tenglasafn (í vinnslu)
Hér er forsíða frá maí 2005

hér er gamla vefsíðan


Femínistafélag Íslands

KOSNINGARÉTTUR KVENNA Í 90 ÁR 1915-2005.

Fjöldi kvenna hefur nú sameinast um undirbúning viðburða til að minnast tímamóta í sögu íslenskra kvenna á afmælisárinu 2005. Hinn 19. júní næstkomandi eru 90 ár síðan íslenskar konur fengu kosningarétt og 24. október verða 30 ár liðin frá kvennafrídeginum sem vakti heimsathygli. Þá eru 25 ár síðan Vigdís Finnbogadóttir varð forseti og tíu ár frá því að aðgerðaáætlun Sameinuðu þjóðanna í jafnréttismálum var samþykkt í Peking. Nefndin vill nýta þetta ár til þess að brýna íslenskar konur til samstöðu og til að vinna nýja áfangasigra í átt að raunverulegu jafnrétti.

Afmælisnefndin boðar til Þingvallarfundar kvenna sunnudaginn 19. júní. Dagskráin hefst klukkan 13:00 með lúðrablæstri og söng Kvennakórs Reykjavíkur við Hakið. Gengið verður um Almannagjá en á vegi göngunnar verða listamenn sem minnast sögunnar og atburðanna við Drekkingarhyl. Um klukkan 14:30 endar gangan á Efrivöllum þar sem við tekur baráttuhátíð en hún endar með samþykkt gerðar Þingvallarfundar sem afhent verður stjórnvöldum. Kvenfélagssamband Suðurlands sér um þjóðlegar veitingar og boðið verður upp á rútuferðir til og frá höfuðborgarsvæðinu á afar hagstæðum kjörum.

Vinnsla við dagskránna er á lokastigi og verður hún send út á næstu dögum.

Sýnum samstöðu kvenna í verki og skundum allar (öll) á Þingvöll 19. júní.

Femínistafélag Íslands

Kvenfélagasamband Íslands

Kvennakirkjan

Kvenréttindafélag Íslands

Kvennasögusafn Íslands

Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands

Samtök um kvennaathvarf

Stígamót

UNIFEM á Íslandi.

Nánari upplýsingar veitir,

Rósa Erlingsdóttir

Verkefnisstjóri

Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum

Háskóli Íslands

Sími: 525 42 78 & 694 6898

Netfang: rosaerli@hi.is

www.rikk.hi.is

www.kvennaslodir.is

---------------------------------------------------------------------------------

Uppfært af Salvöru Gissurardóttur 21-jun-05