hér er gamla vefsíðan
Blogg ungliðahóps
ungfem.blogspot.com
Viltu borga félagsgjöldin?
Viltu styrkja félagið?
Leggðu inn á reikninginn:
Femínistafélag Íslands
kt. 6803034010
Banki 1157
Höfuðbók 26 Reikningsnúmer 544
Upphæð: 1500 kr
Skýring greiðslu: Félagsgjöld FÍ 2004
Viltu
gerast félagi ?
Það er einfalt!
Sendu nafn, netfang og kennitölu til feministinn@feministinn.is
Nokkrar myndir
Rök
með vændisfrumvarpi
Vændisfundur
í Versló
Áfram
stelpur!
Myndir
frá opnun sýningar
19. júní - Málum bæinn bleikan
16.
júní Karlmennskukvöld
á GRAND ROKK kl. 19 (plakat)->
Fjölgjum vændishúsa vegna Ólympíuleika mótmælt
Talblogg
(í boði hex.is)
Kosningar
2003 Jafnréttisáætlanir
1.
maí ganga og fundur
Stofnfundarávarp
- Kristín
Stofnfundarávarp - Erla
Stofnfundarávarp - Gyða
Stofnfundarávarp - Irma
Kynjuð
stjórnmál - Kristín
Kynjuð stjórnmál
- Rósa
Þriðja
bylgjan - Erla
Hvað
höfum við gert? - Katrín
Hittið
í Jónshúsi- Erla
Hittið
í Jónshúsi - Gísli
Hittið
á Sólón- Katrín
Greinasafn (í vinnslu)
Bókalisti (í vinnslu)
Tenglasafn (í vinnslu)
KOSNINGARÉTTUR KVENNA Í 90 ÁR 1915-2005.
Fjöldi kvenna hefur nú sameinast um undirbúning viðburða til að minnast tímamóta í sögu íslenskra kvenna á afmælisárinu 2005. Hinn 19. júní næstkomandi eru 90 ár síðan íslenskar konur fengu kosningarétt og 24. október verða 30 ár liðin frá kvennafrídeginum sem vakti heimsathygli. Þá eru 25 ár síðan Vigdís Finnbogadóttir varð forseti og tíu ár frá því að aðgerðaáætlun Sameinuðu þjóðanna í jafnréttismálum var samþykkt í Peking. Nefndin vill nýta þetta ár til þess að brýna íslenskar konur til samstöðu og til að vinna nýja áfangasigra í átt að raunverulegu jafnrétti.
Afmælisnefndin boðar til Þingvallarfundar kvenna sunnudaginn 19. júní. Dagskráin hefst klukkan 13:00 með lúðrablæstri og söng Kvennakórs Reykjavíkur við Hakið. Gengið verður um Almannagjá en á vegi göngunnar verða listamenn sem minnast sögunnar og atburðanna við Drekkingarhyl. Um klukkan 14:30 endar gangan á Efrivöllum þar sem við tekur baráttuhátíð en hún endar með samþykkt gerðar Þingvallarfundar sem afhent verður stjórnvöldum. Kvenfélagssamband Suðurlands sér um þjóðlegar veitingar og boðið verður upp á rútuferðir til og frá höfuðborgarsvæðinu á afar hagstæðum kjörum.
Vinnsla við dagskránna er á lokastigi og verður hún send út á næstu dögum.
Sýnum samstöðu kvenna í verki og skundum allar (öll) á Þingvöll 19. júní.
Femínistafélag Íslands
Kvenfélagasamband Íslands
Kvennakirkjan
Kvenréttindafélag Íslands
Kvennasögusafn Íslands
Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands
Samtök um kvennaathvarf
Stígamót
UNIFEM á Íslandi.
Nánari upplýsingar veitir,
Rósa Erlingsdóttir
Verkefnisstjóri
Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum
Háskóli Íslands
Sími: 525 42 78 & 694 6898
Netfang: rosaerli@hi.is
www.rikk.hi.is
www.kvennaslodir.is
-------------------------------------------------------------------------------
Aðalfundur 2005 verður 27. maí. Hér er vefsíða
um síðasta
aðalfund.
Síðasta HITT vetrarins var 10. maí. Það fjallaði
um stjórnarskrármálið.
Femínistar í 1. mai göngunni
Brot úr sjónvarpsfréttum
Rúv 1. maí, Viðtal við fjórar kynslóðir
femínista (Anna, Harpa, Edda Ýr og Rökkvi)
1. maí Mætið í gönguna!
1. maí Mætið í gönguna!
1. maí gangan árið 2005 fer frá Skólavörðuholti,
safnast verður saman framan við Hallgrímskirkju kl. 13.00 og
gangan leggur á stað kl. 13:30. Lúðrasveit verkalýðsins
og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngu og útifundur
verðalýðsfélaganna hefst á Ingólfstorgi
kl. 14.10

Undanfarnar vikur hefur ráð Femínistafélagsins verið að skipuleggja 1. maí. Niðurstaðan hjá okkur í ár eftir mikil heilabrot var að taka gönguna með trompi – vera vel útbúin með kröfuspjöld og í bleika litnum. Fara síðan eftir gönguna í kaffisamsæti hjá verkaðlýðsfélögum og stjórnmálaflokkum og sjá hvernig stemmingin er þar. Við vonum að þið mætið sem flest í gönguna. Það væri frábært ef sem flestar/ir gerðu kröfuspjöld og mættu með – og verði síðan auðvitað í einhverju bleiku eða með eitthvað bleikt.
Femínistar hafa frá stofnun Femínistafélagsins tekið virkan þátt í 1. maí hátíðarhöldunum, sjá þessar vefslóðir
Femínistar á 1. maí árið 2003
http://www.feministinn.is/fyrstimai/index.htm
Femínistar á 1. maí árið 2004
http://www.feministinn.is/fyrstimai04.htm
sjáumt í 1. maí göngunni í ár!
------------------------------------------------------------
Þorgerður Einarsdóttir póstaði í vikunni þessa brýningu til okkar inn á femínistapóstlistann:
Konur í rauðum sokkum! Komið í 1. maí gönguna.
Þessi auglýsing heyrðist í útvarpinu fyrir 1. maí göngu verkalýðsfélaganna í Reykjavík 1. maí 1970. Það er ekki hægt að láta þennan 1. maí líða hjá án þess að minnast þess að nú verða 35 ár síðan Rauðsokkurnar gengu sína frægu göngu niður Laugaveginn með styttuna Lýsiströtu í fylkingarbrjósti með borða um sig miðja með áletruninni:
"Manneskja ekki markaðsvara".
Þetta var upphafið að Rauðsokkahreyfingunni. Framámenn í verkalýðshreyfingunni reyndu að hrekja konurnar burt, segir Vilborg Sigurðardóttir í grein sinni "Veröld vaknar - augu opnast" (Kvennaslóðir 2001).
Þessi einkunnarorð eru í meira gildi nú en nokkru sinni fyrr: Hlutgerving, klámvæðing og mansal gerir konur að markaðsvöru í bókstaflegri merkingu orðsins - og í hnattvæddum heimi er markaðsvæðing kvenlíkamans miskunnarlausari en nokkru sinni fyrr.
Síðast í dag var rætt hér á listanum um þá hlutgervingu að auglýsa "No-name" andlit ársins í nafni eiginmannsins.
Og enn á að reka konurnar út af lóðinni:
Í mars sl. komu upp raddir innan verkalýðshreyfingarinnar (frá Rafiðnaðarsambandinu og Iðnnemasambandinu) um að haldin skyldi fjölskylduskemmtun í Laugardalnum í staðinn fyrir hefðbundin 1. maí hátíðahöld vegna þess að "öfgahópar hafi eyðilagt þá áferð sem var á þessum degi".
Hér er væntanlega átt við Femínistafélagið með kröfur um jafnrétti kynjanna, Herstöðvarandstæðinga með kröfur um frið og herlaust land, og hugsanlega samtökin Ísland - Palestína, en það eru þeir hópar sem hafa gert sig gildandi á 1. maí - fyrir utan verkalýðshreyfinguna.
Rétt eins og barátta femínista sé ekki hagsmunabarátta
vinnandi kvenna!
Rétt eins og konur séu boðflennur á vinnumarkaðnum
og í verkalýðshreyfingunni:
Konurnar sem halda uppi velferðarkerfinu, vinna í illa launuðum þjónustu- og umönnunarstörfum, á færibandinu í fiskvinnslunni, búa við glerþak og lægri laun en karlar í sambærilegum störfum - á öllum sviðum þjóðfélagsins.
Femínistar - látum ekki reka okkur út af lóðinni - rifjum upp slagorðin frá 1970:
MANNESKJA EKKI MARKAÐSVARA
VAKNAÐU KONA - NÝTTU MANNRÉTTINDI ÞÍN
Fjölmennum í 1. maí göngu!
Baráttukveðjur,
Þorgerður Einarsdóttir
-------------------------------
HITTIÐ 5. apríl kl. 20 á Sólon
Hitt með fulltrúum sem fóru á NY fundinn um framkvæmdaáætlun
SÞ um málefni kvenna
Hitt Femínistafélags Íslands verður haldið hinn 5. apríl næstkomandi, kl. 20:00 á efri hæð Kaffi Sólons. Að þessu sinni verður tekin til umræðu Peking áætlunin - framkvæmdaáætlun SÞ um málefni kvenna - sem rædd var í New York í síðasta mánuði í tilefni 10 ára afmælis áætlunarinnar. Þúsundir fulltrúa ríkisstjórna og frjálsra félagasamtaka frá öllum heimshornum sóttu tveggja vikna langan fund Kvennanefndar SÞ sem helgaður var tímamótunum.
Íslendingar eiga sæti í nefndinni nú um mundir og fór stór sendinefnd héðan til að fylgjast með fundinum. Þeirra á meðal voru fulltrúar frá UNIFEM á Íslandi, Stígamótum, KRFÍ og Femínistafélaginu. Á Hittinu munu þær segja frá fundinum í New York, helstu áherslum í jafnréttismálum á alþjóðavettvangi í dag, sigrum síðasta áratugs og eftirstandandi hindrunum. Er samhljómur milli ríkisstjórna og frjálsra félagasamtaka um málefni og árangur? Horfir fram á við eða er hætta á bakslagi á komandi misserum? Hvar stendur umræða um jafnréttismál á Íslandi í samanburði við aðrar þjóðir? Þessar og fleiri spurningar verða ræddar á athyglisverðu hitti um alþjóðastrauma á þriðjudaginn.
Þær sem munu segja okkur frá á Hittinu eru:
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastýra UNIFEM
á Íslandi.
Guðrún Jónsdóttir, hjá Stígamótum.
Friðbjörg Ingimarsdóttir, stjórn KRFÍ.
Margrét Pétursdóttir, ráðskona í Femínistafélaginu.
Dagskráin hefst kl. 20 og er aðgangur ókeypis.
Kaffi, bjór og hvítvíni á tilboði - annars geta allir pantað sér að borða eða drekka af matseðli.
Sjáumst á Sólon!
Nóbelsskáldið Elfriede Jelinek
----------------------------------
HITTIÐ í mars er helgað nóbelsskáldkonunni Elfriede
Jelinek. Dagskráin er í samvinnu Goethe Zentrum og Femínistafélag
Íslands. Hittið verður á 2. hæð á Kaffi
Sólon þriðjudaginn 1. mars og hefst kl. 20:00
Frummælendur og stutt kynning á hvað þeir fjalla um
Þorgerður E. Sigurðardóttir, Bókmenntafræðingur
---------------------------------------------------------
Í sínu fyrsta leikriti, Hvað gerðist eftir að Nóra
yfirgaf eiginmann sinn, eða Stoðir samfélagsins (Was Geschah,nachdem
Nora ihren Mann verlassen hatte oder
Stützen der Geschellschaften) vinnur Elfriede Jelinek með tvö
verk eftir Henrik Ibsen, Brúðuheimilið og Stoðir samfélagsins.
Hún veltir fyrir sér hvernig fer fyrir Nóru úr
Brúðuheimilinu eftir að hún skellir á eftir sér
og yfirgefur mann og börn eins og frægt er orðið, en saman
við þennan söguþráð fléttast svo sú
kapítalíska sýn sem birtist í Stoðum samfélagsins.
Rætt verður um þetta verk út frá hugmyndum Jelinek
um femínisma.
Alle, die glauben, sie wüssten etwas über mich, wissen nichts (Elfriede
Jelinek).
Allir sem halda að þeir viti eitthvað um mig, vita ekkert.
Jórunn Sigurðardóttir, Dagskrárgerðarmaður
---------------------------------------------------
Segja má að Elfriede Jelinek frá upphafi ferils síns
löðrunguð með lofi. Verk hennar, skáldsögur jafnt
sem ritgerðir og leikrit, hafa verið hlaðin verðlaunum og
lofuð fyrir ótrúleg tök á tungumálinu
sem tæki til að afhjúpa hvers kyns klisjur og tilraunir til
að fegra kúgun og óréttlæti. Í sömu
mund hefur þeim verið úthúðað fyrir að
vera klámfengin, lituð af mannhatri og reiði og, sem kannski
þykir verst, að erindið beri skáldskapinn ofurliði.
Ég ætla í fyrirlestri mínum að skoða svolítið
sambandið á milli skáldskapar og erindis í fáeinum
verkum Elfiede Jelinek og hvorum megin hryggjar meint tök hennar á
tungumálinu liggja. Einkum verður stuðst skáldsöguna
Die Klavierspielerin frá árinu 1983 og leikritin Clara S. frá
árinu 1981 og Wolken.Heim frá árinu 1988
Sólborg Erla Ingadóttir, Myndlistakona
--------------------------------------------
Rithöfundurinn Elfriede Jelinek i máli og myndum.
Hver er konan sem veldur þessu fjaðrafoki? Hvernig mynd fáum
við af þessari baráttukonu.
Hvaða áhrif hefur barátta hennar fyrir bættum heimi
haft í gegnum árin. Skrif hennar fá heiminn til að
standa á öndinni og yfirvöld til að bregðast við.
Hafliði Arngrímsson, Leikhúsmaður
----------------------------------------
Kannski er hægt að segja að leikritið Das Werk (Verkið,
Virkjunin) fjalli um náttúru, tækni og vinnu í
skugga ofstækis, metnaðargirni og fífldirfsku, - um hreina
náttúru andspænis tæknimartröð, um verkamanninn
andspænis túristanum og ekki síst um sannleikann andspænis
lygi og óréttlæti sem líklega er rauði þráðurinn
í starfi og lífi Elfriede Jelinek.
Peter Weiß,Goethe-Zentrum
---------------------------------
Elfriede Jelinek hefur þurft að þola útskúfun,
svívirðingar og harkalega gagnrýni á verk sín
en samt hlotið hver verðlaunin á fætur öðrum.
Peter Weiss rýnir í fjölmiðla þýskumælandi
landa: Hvernig voru viðbrögðin, þegar tilkynnt var að
Elfriede Jelinek, sem er þekkt fyrir nístandi gagnrýni,
ekki síst á föðurlandið, hlaut nóbelsverðlaunin.
Goethe centrum www.goethe.is
Femínistafélag Íslands www.feministinn.is
Hittið er öllum opið og aðgangur er ókeypis.
Á eftir fyrirlestrunum verður opnað fyrir umræður
Virðingarfyllst,
Ráð Femínistafélags Íslands
------------------------------------------------
Dagskráin hefst kl. 20 og er aðgangur ókeypis.
Kaffi, bjór og hvítvíni á tilboði
- annars geta allir pantað sér að borða eða drekka
af matseðli.
Sjáumst á Sólon!
Hittið er staður og stund…
…til að fá umræðu af stað
…til að varpa fram spurningum
…til að vera í góðum félagsskap
…til að bjóða nýliða Femínistafélags
Íslands velkomna
…til að kynna niðurstöður rannsókna sem snúast
um jafnréttismál
…til að kynna útskriftarverkefni sem snúast um jafnréttismál
…til að flytja ræður um femínisma og jafnrétti
hér heima og erlendis
…þar sem femínistum er velkomið að tjá sig
…þar sem fólk úr stjórnmálum og viðskiptalífi
getur komið og kynnt sér mál sem snúast um jafnrétti
og femínisma
…þar sem okkur gefst tækifæri til að sjá
andlitin á bak við nöfnin á netinu
…fyrir starfandi hópa innan félagsins til að hittast,
kasta fram hugmyndum og bralla eitthvað skemmtilegt og bráðnauðsynlegt.
Leshringur um femínistar bókmenntir
------------------------------------------
Fyrsti fundur leshringsins verður fimmtudaginn 17. febrúar í
Kringlusafni, bókasafninu í Kringlunni, gengið inn við
hliðina á Borgarleikhúsinu (eða veitingasal Kringlunnar)
kl. 19 og stendur til kl. 21.
Fyrsta bókin er Ekki segja frá, eftir Írisi Anítu
Hafsteinsdóttur. Skálduð frásögn um stúlku
er verður fyrir kynferðisofbeldi og síðar heimilisofbeldi.
Byggt á reynslu nokkurra íslenskra kvenna.
Skráið ykkur í leshringinnn með að senda til kristinolafs@internet.is
Skráning er ekki nauðsynleg en gerir okkur auðveldara fyrir
varðandi skipulagningu, svo vinsamlegast látið vita ef þið
ætlið að vera með.
fundur hjá öryggisráði 1. feb. kl. 17.15 á Næstabar
Breytingar í ráðinu: Sif Traustadóttir icevet1@hotmail.com
er nú ráðskona staðalímyndarhóp og Nadira
kna@hi.is
ungliðahóps
Hittið í febrúar verður haldið á 2. hæð
á Kaffi Sólon Bankastræti 7a þriðjudaginn 1.
febrúar 2005 milli kl. 20-22.
Staða fjölskyldunnar
------------------------
Staða fjölskyldunnar hefur verið þó nokkuð til umræðu eftir áramótaávörp forsætisráðherra og biskups. Það er verðugt verkefni að skoða stöðu fjölskyldunnar í nútímasamfélagi. Femínistafélagið tileinkar fyrsta Hitt ársins fjölskyldunni og stöðu hennar. Þriðjudaginn 1. febrúar, kl. 20:00 á efri hæð Kaffi Sólon munu eftirfarandi fyrirlesarar vera með erindi:
Sigrún Júlíusdóttir: Þróun og staða
fjölskyldunnar.
Hrefna Friðriksdóttir: Samkynhneigðar fjölskyldur.
Óskar Dýrmundur Ólafsson: Uppeldi er samstarf.
Linda Rut Benediktsdóttir: Hið gullna jafnvægi.
Hittið er öllum opið og aðgangur er ókeypis.
Á eftir fyrirlestrunum verður opnað fyrir umræður
um málefni fjölskyldunnar.
Virðingarfyllst,
Ráð Femínistafélags Íslands
------------------------------------------------
Dagskráin hefst kl. 20 og er aðgangur ókeypis.
Kaffi, bjór og hvítvíni á tilboði
- annars geta allir pantað sér að borða eða drekka
af matseðli.
Sjáumst á Sólon!
Hittið er staður og stund…
…til að fá umræðu af stað
…til að varpa fram spurningum
…til að vera í góðum félagsskap
…til að bjóða nýliða Femínistafélags
Íslands velkomna
…til að kynna niðurstöður rannsókna sem snúast
um jafnréttismál
…til að kynna útskriftarverkefni sem snúast um jafnréttismál
…til að flytja ræður um femínisma og jafnrétti
hér heima og erlendis
…þar sem femínistum er velkomið að tjá sig
…þar sem fólk úr stjórnmálum og viðskiptalífi
getur komið og kynnt sér mál sem snúast um jafnrétti
og femínisma
…þar sem okkur gefst tækifæri til að sjá
andlitin á bak við nöfnin á netinu
…fyrir starfandi hópa innan félagsins til að hittast,
kasta fram hugmyndum og bralla eitthvað skemmtilegt og bráðnauðsynlegt.
---------------------------------
Hugmyndasamkeppni
Jæja allir ungir femínistar,
þá er tími til að leyfa listamanninum í ykkur
að láta ljós sitt skína. Nú efnum við
til hugmyndasamkeppni um flott lógó og/eða slagorð sem
ungliðahópurinn getur staðið undir. Keppnin mun standa
út febrúar og munum við tilkynna vinningshafa inn á
þessari síðu. Það lógó sem vinnur
mun svo væntanlega verða prentað á boli og merki sem
verður svo selt. Eins og allar aðrar femínískar vörur
er hægt að selja á okkar mánaðarlegu Hittingum
sem og kannski annarsstaðar.
Allar hugmyndir skulu verða sendar til Nadiru kna@hi.is.
Vefsíða ungliðahóps er ungfem.blogspot.com
Think pink!
Kveðja Nadira
HITTIÐ 18. janúar kl. 20-22 var á vegum ungliðahóps.
Vefsíða ungliðahóps er ungfem.blogspot.com.
Það verður haldið í HINU
HÚSINU í Pósthússtræti 3 - 5
Femínistaspjallinu hefur nú verið skipt í
tvo flokka FEMÍNISTAFÉLAGIÐ
og FEMINISTINN.
Fyrra er ætlað félagsmönnum en síðari flokkurinn
er almenn umræða um femínisma og jafnréttismál.
Markmið með póstlista og vefspjalli Femínistafélags
Íslands er að vera vettvangur femínista til að ræða
jafnrétti kynjanna og skoðanaskipta um hvaða leiðir eru
vænlegastar til árangurs í jafnréttisbaráttunni.
Póstlistinn og femínistaspjallið hafa þann tilgang að efla samstöðu og samtakamátt femínista.
Innan femínismans eru mismunandi straumar og stefnur sem eiga jafnan tilverurétt. Andfemíniskar umræður eiga hins vegar hvorki heima á póstlistanum né á femínistaspjallinu og áskilur ráð Femínistafélags Íslands sér rétt til að afskrá þátttakendur á listanum eða spjallinu sem senda inn slíkan póst.
Ráðið beinir jafnframt þeim tilmælum til þátttakenda að virða eftirfarandi:
1. Ég mun nota umræðuþráðinn eingöngu
fyrir feminísk málefni.
2. Ég mun ekki nota þráðinn fyrir auglýsingar
eða tilkynningar sem ekki tengjast femínisma.
3. Ég mun sýna þátttakendum á listanum virðingu.
4. Ég mun orða innlegg á málefnalegan og kurteisan
hátt.
5. Ég mun virða rétt annarra til að hafa aðrar femíniskar
skoðanir á málefnum heldur en ég.
6. Ég mun ekki nota blótsyrði eða senda öðrum
þátttakendum á listanum háðsglósur.
7. Ég mun skrifa fullt nafn undir innlegg á listann (ekki þarf
fullt nafn undir innlegg á femínistaspjallinu)
8. Ég mun ekki áframsenda eða birta innlegg sem berast á
listann annarsstaðar án leyfis höfundar.
Ráð FÍ 2003
GLEÐILEGT NÝTT ÁR!
-----------------------------------
Umræðan: Ritsjóri Stúdentablaðsins dissar Femínistafélagið
Hitt 7. desember kl. 20-22
7 SKÁLDKONUR 7 SKÁLDSÖGUR
Menningarmálahópur sér um Hittið sem að þessu
sinni verður með jólastemmingu. Það verður eins
og alltaf á 2. hæð á Kaffi Sólon Bankastræti
7a.
7 skáldkonur lesa upp úr glænýjum skáldsögum
sínum
þriðjudaginn 7.desember.
Fram koma þær:
AUÐUR JÓNDÓTTIR
AUÐUR ÓLAFSDÓTTIR
BIRNA ANNA
GERÐUR KRISTNÝ
KRISTÍN ÓMARSDÓTTIR
KRISTÍN STEINSDÓTTIR
MARGRÉT LÓA JÓNSDÓTTIR
JÓLAGLÖGG Á TILBOÐI OG MANDARÍNUR OG PIPARKÖKUR
HANDA ÖLLUM
ALLIR VELKOMNIR
KONUR,KARLAR OG BÖRN
VONAST TIL AÐ SJÁ SEM FLESTA
4. des Vinnustofa um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi
Femínistafélag Íslands heldur vinnustofu um aðgerðir
gegn kynbundnu ofbeldi laugardaginn 4. desember milli kl. 11:00 og 14:00 í
húsnæði Listaháskólans, Skipholti 1. Í
vinnustofunni munum við gera aðgerðaáætlun gegn kynbundnu
ofbeldi til þess að starfa eftir í framhaldinu. Vinnustofan
er öllum opin og eru karlmenn sérstaklega hvattir til að koma
og veita þessu málefni lið.
Póstkort - goðsagnir um nauðganir
Félagið mun einnig standa fyrir dreifingu póstkorta sem
karlahópur félagsins hefur látið útbúa
til að vinna gegn goðsögnum um nauðganir. Póstkortin
eru byggð á hugmynd og í samstarfi við bresku samtökin
Truth About Rape.
Póstkortunum verður dreift í verslanir, á vetingastaði og víðar föstudaginn 3. og laugardaginn 4. desember. Auk þess munum við að gefnu tilefni senda póstkortin á aðila sem við teljum þurfa á því að halda.
Þessar aðgerðir eru liðir í framlagi Femínistafélags Íslands til átaks gegn kynbundnu ofbeldi sem haldið er að tilstuðlan Unifem og með aðstoð annarra félagasamtaka á Íslandi.
16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi hófst árið 1991.
Átakið hefst þann 25. nóvember, fer yfir alþjóðlega
alnæmisdaginn 1. desember og endar á mannréttindadeginum
10. desember. Síðan átakið hófst hafa 1700 samtök
í 130 löndum tekið þátt í því
til að draga athygli almennings og stjórnvalda að ofbeldi gegn
konum og óskað eftir aðgerðum til að útrýma
því. Þema 16 daganna í ár verður “For
the health of Women, for the Health of all: No more Violence”, með
sérstakri áherslu á tengsl kynbundins ofbeldis og HIV/alnæmis.
Nánari upplýsingar um 16 daga átakið hér
á landi má finna á sérstakri heimasíðu
átaksins: http://www.unifem.is/16dagar.htm
Femínistafélagið tekur þátt í átakinu
og munu póstkort gegn nauðgunum fara í dreifingu 3. des.
og 4. des. kl. 11-14 þá verður opin vinnustofa Femínistafélagsins
um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi í listaháskólanum
Skipholti 1.
Hittið í nóvember
var haldið á 2. hæð á Kaffi Sólon Bankastræti
7a þriðjudaginn 2. nóvember 2004 milli kl. 20-22.
.
Kærur, rannsóknir og réttarhöld í kynbundnu
ofbeldi
-------------------------------------------------------------
Að þessu sinni var HITTIÐ í umsjón karlahóps
og öryggisráðs Femínistafélagsins.
Fundarstjóri er Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta.
Til máls tóku:
Herdís Hallmarsdóttir lögfræðingur sem hefur
staðið í réttargæslu fyrir
fórnarlömb ofbeldis
Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri Dóms og Kirkjumálaráðuneytisins.
Einnig var óskað eftir fulltrúa frá lögregluembættinu sem sá sér ekki fært að mæta.
Laugardagurinn 23. október
Ræðumaraþon KRFÍ í einn sólarhring.
Mælskar meyjar og kjöftugar kellingar 23.-24 okt.->
Sunnudagurinn 24. október
Kvennasögusafn og Rikk með dagskrá um Kvennafrídaginn/verkfallið
1975, sýning og umræður í Þjóðarbókhlöðunni
kl. 14.00.
Kvennafrí,
kvennaverkfall 2005?->
Þriðjudagurinn 26. október
Jafnréttisráð heldur málþing um jafnréttisáætlanir
Grand Hótel kl. 14:00-16:00
Málþing
um jafnréttisáætlanir ->
Miðvikudagurinn 27. október
Ungmennahittingur um kvöldið í Hinu húsinu,Pósthússtræti
3-5 kl. 20 til miðnættis. Fundur, fræðsla og partý.
Katrín Anna Guðmundsdóttir talskona Femínistafélagsins
og Gísli Hrafn Atlason ráðskona karlahóps flytja
erindi og hljómsveitirnar Nilfisk og Bob spila. Hitt húsið
er í gamla pósthúsinu í miðbæ Reykjavíkur.
Fimmtudagurinn 28. október
Karlinn á kassanum kl. 12:30
Mótmælastaða á Arnarhóli á kl. 17:00
þar sem á að "jarða ójafnrétti gegn
konum".
Tilefnið er nýlegur
dómur Hæstaréttar Reykjaness. Fimmtán félagasamtök
og aðilar standa að þessum viðburði og er Femínistafélagið
eitt þeirra.
Föstudagurinn 29. október
Morgunverðarfundur með handhöfum bleiku steinanna
kl. 8.15 á Hótel Sögu, 2. hæð.
Gestir fundarins verða:
Geir Þorsteinsson framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands
Íslands,
Samúel Örn Erlingsson, yfirmaður íþróttadeildar
RÚV
Helena Ólafsdóttir, þjálfari kvennalandliðsins
í knattspyrnu og
Ingólfur Guðmundsson frá Landsbanka Íslands.
Við munum ræða um stefnuna í jafnréttismálum
kynjanna innan
íþróttahreyfingarinnar, hvaða er verið að
gera í þeim málum, það misvægi
sem nú er að finna innan íþrótta, inntak íþróttfrétta
o.s.frv. Þetta er
mikilvægt umræðuefni og við skorum áykkur að
mæta og taka þátt.
Morgunverðurinn kostar 1500 kr.
Aðgerð staðalímyndahóps og öryggisráðs.
Föstudagurinn 29. október
Lokaball á efri hæðinni á Viktor, Hafnarstræti
1-3 milli kl 22-01. bleikir drykkir á tilboði.
Laugardagur 30.október
Málþing um Coline Serreau í andyri Borgarleikhúsinu
KL.16-18. Málþingið er á vegum Borgarleikhússins
og Femínistafélagsins. Coline Serreau sem er höfundur leikritsins
Héri Hérason sem nú er sýnt í Borgarleikhúsinu
verður sérstakur gestur málþingsins. Að loknu
málþinginu verður formlega stofnaður leshringur með
áherslu á femínískar bókmenntir.
Karlinn á kassanum Mánudagur-föstudags:
Alþingiskarlar fjalla um jafnréttismál á Súfistanum
við Laugaveg í hádeginu, 12.30-13.30 alla daga.
Karlinn
á kassanum->
Kynning ungliðahóps í HÍ Mánudagur
kl. 11-13 . Ungliðahópur kynnir Femínistafélagið
og starfsemi ungliðahóps í nokkrum byggingum Háskóla
Íslands.
Sjá vefsíðu ungfem.blogspot.com
----------------------------------------------
Fjármálaráðherra gagnrýndur fyrir
að skipa aðeins karla í nefnd
Jafnréttisáætlun
ríkisstjórnarinnar->
Við fengum sent í pósti þetta plakat um málið->
Við viljum benda á að Jafnréttisráð hefur óskað eftir tilnefningum um jafnréttisviðurkenningu. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, hópar, fyrirtæki eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Tilnefningum skal skila fyrir 1. október. Málþing um jafnréttisáætlanir verður svo 25. október.
Frummælendur:
Jónína Bjartmarz - alþingiskona fyrir Framsóknarflokk
Margrét Frímannsdóttir alþingiskona og Þingflokksformaður
fyrir Samfylkingu
Gunnar Örlygsson alþingismaður fyrir Frjálslyndaflokkinn
Ögmundur Jónasson alþingismaður fyrir Vinstri græna
Einar Kristinn Guðfinnsson alþingismaður og þingflokksformaður
fyrir Sjálfstæðisflokk
Fundastjóri : Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
Þingmenn munu fjalla um hvað er að gerast í sambandi
við veturinn á þinginu, hvort þeirra flokkur sé
að leggja fyrir þingið einhver frumvörp sem snúa
að jafnrétti sem þau eru til í að upplýsa
okkur um, hvaða staða er uppi núna út af vali á
ráðherrum hjá Framsóknarflokknum og hvaða
aðferðafræði leggja flokkarnir til við að ná
fram jafnrétti í framtíðinni.
Dagskráin hefst kl. 20 og er aðgangur ókeypis.
Kaffi, bjór og hvítvíni á tilboði - annars geta allir pantað sér að borða eða drekka af matseðli.
Sjáumst á Sólon!
Hittið er staður og stund…
…til að fá umræðu af stað
…til að varpa fram spurningum
…til að vera í góðum félagsskap
…til að bjóða nýliða Femínistafélags
Íslands velkomna
…til að kynna niðurstöður rannsókna sem snúast
um jafnréttismál
…til að kynna útskriftarverkefni sem snúast um jafnréttismál
…til að flytja ræður um femínisma og jafnrétti
hér heima og erlendis
…þar sem femínistum er velkomið að tjá sig
…þar sem fólk úr stjórnmálum og viðskiptalífi
getur komið og kynnt sér mál sem snúast um jafnrétti
og femínisma
…þar sem okkur gefst tækifæri til að sjá
andlitin á bak við nöfnin á netinu
…fyrir starfandi hópa innan félagsins til að hittast,
kasta fram hugmyndum og bralla eitthvað skemmtilegt og bráðnauðsynlegt.
---------------------------------------------------
Ályktun Femínistafélagsins um baráttu kvenna í Framsóknarflokknum
Um
verslunarmannahelgina stendur karlahópur Femínistafélagsins
fyrir átakinu Karlmenn segja NEI við nauðgunum. Þetta
er í þriðja sinn sem hópurinn fer af stað með
átak gegn nauðgunum og eins og í fyrri skiptin er áherslan
á hlutverk karlmanna í baráttunni gegn nauðgunum
og þá möguleika sem karlmenn hafa til að koma í
veg fyrir nauðganir.Að þessu sinni verðum við á Umferðarmiðstöðinni, Flugstöð Reykjavíkur og í Þorlákshöfn þar sem Herjólfur leggur úr landi. Á þessum stöðum munum við ræða við karlmenn á leið á útihátíðir og dreifa barmmerkjum og bæklingum, ásamt því sem við verðum með frisbee-diska og boli með merki átaksins til sölu. NEI-bolirnir verða einnig til sölu í versluninni Dogma á Laugavegi 30.
Það eru Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar, Jafnréttisnefnd Kópavogsbæjar og Hvíta Húsið auglýsingastofa sem styrkja átakið.
Frekari upplýsingar má nálgast hjá Arnari Gíslasyni
(arnargi@hi.is, s.
691-9126) og Hjálmari Sigmarssyni (hjalmas@hi.is, s. 694-4799).


Viltu skreyta vefsíðuna þína 19. júní?
Þú getur valið úr
alls konar borðum og skiltum á þessari síðu.
Kvennahlaups
ÍSÍ Femínistafélagið verður með kompusölu í Kolaportinu helgina 5.-6. júní frá 11-17 báða dagana. Allir femínistar eru hvattir til að kíkja í Kolaportið, gera reyfarakaup og jafnvel kaupa sér femínista. Sjá nánar hér
Myndir frá afmælishátíð - Skýrsla ráðsins 2004

Staðalímyndahópur með
mótmæli fyrir utan (frétt af mbl.is) Ungfrú
Ísland keppnina á Broadway 29. maí og bauð fólki
að máta sig við Ungfrú Staðalímynd. Meira
- >
Ályktun Femínistafélagsins og annarra jafnréttissamtaka um Vændisfrumvarpið
Nýtt Ráð Femínistafélags Íslands kosið á aðalfundi 19. maí
Atvinnu- og stjórnmálahópur
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir 697-3040 isfold1@heimsnet.is
Magga Pé gundog@mmedia.is 6910038
Fræðsluhópur
Berglind Rós Magnúsdóttir 846-7514 / 551-4224 brm@hi.is
Heilbrigðishópur
Sóley Tómasdóttir 895-8285 soley@skaparinn.is
Karlahópur
Arnar Gíslason 691-9126 elvis@hi.is
Gísli Hrafn Atlason 0045-4636-4714 gislihrafn@tiscali.dk
Menningarhópur
Sólborg Ingadóttir 695-1609 solborgi@mmedia.is
Staðalímyndahópur Sóley Stefánsdóttir
698-4300 soley@mi.is / soleystefans@lhi.is
Ungir femínistar Eva Bjarnadóttir 860-2252 evab@hi.is
Vefhópur Salvör Gissurardóttir 694-8596 salvor@khi.is
Öryggisráð Hrafnhildur Hjaltadóttir hrafnhj@hi.is 8650068
Gjaldkeri Erla Hlynsdóttir 6987887 erlahlyns@simnet.is
Ritari Kristín Ástgeirsdóttir 8640493 krast@simnet.is
Talskona Katrín Anna Guðmundsdóttir 6981002 katrinc@hi.is
Fréttabréf
nr. 9 hefur verið sent út í tölvupósti.
Nýtt vefrit Kveikjur
hefur hafið göngu sína. Það er ætlað fyrir
aðsendar greinar. Slóðin er www.feministinn.is/kveikjur
Helga Valdís sýnir verkefni sitt Óþæg eða þæg? frá 15 til 31. maí. Það er umræða um verkefnið á Femínistaspjallinu.



23. apríl 2004.Vikuna 19. til 23. apríl 2004 stóð Karlahópur Femínistafélags Íslands fyrir átakinu Karlmenn segja NEI við nauðgunum í samstarfi við Öryggisráð félagsins. Skoðaðu meira um átakið á vefsíðu karlahóps og hlustaðu á þetta útvarpsviðtal.

Myndir
frá Hittinu í mars og apríl og frá átaki Karlahóps
Upptökur úr útvarps-
og sjónvarpsþáttum
Þetta er ný uppfærsla á vef Femínistafélagsins. Ef þú finnur ekki eitthvað þá getur þú farið á gömlu vefsíðuna.
Uppfært af Salvöru Gissurardóttur
1-jun-05

HITT á Sólón
fyrsta þriðjudag í mánuði í umsjón
hópanna:
heilbrigðishópur 5. okt karlahópur 2. nóv
menningarhópur 7.des
óþæg eða þæg?

Fundur Femínistafélagsins að lokinni kröfugöngu 1. maí 2004
var haldinn á Kaffi Reykjavík kl. 15.00.
Hér eru ávörp og myndir frá
fundinum
Hér er vídeó frá
göngunni
Ávörp fluttu:
Katrín Anna Guðmundsdóttir
Þórhildur Þorleifsdóttir og
Þorgerður Einarsdóttir
Myndir frá 1. maí í fyrra
