Skýrsla vefhóps 2004
Salvör Gissurardóttir tók saman 19. maí 2004
Vefhópur sér um vefmál félagsins en þau
hafa dafnað og orðið mjög viðamikil á árinu.
Vefhópur rekur vef félagsins, umræðupóstlista,
fréttabréfspóstlista, vefspjallkerfi, viðburðadagatal,
fréttapunkta,vefrit og vaktar póst til félagsins. Fáir
fundir voru haldnir í vefhópi á árinu því
samskiptin voru aðallega í tölvupósti. Ráðskona
í vefhóp er Salvör Gissurardóttir í samvinnu
við Erlu Sigurðardóttur.
Tímalína yfir þróun
Þróunin var ör á fyrsta starfsárinu. Í
febrúar 2003 var femínistapóstlistinn feministinn@hi.is
stofnaður og í mars var sett upp blogg fyrir fréttapunkta
feministinn.blogspot.com. Á framhaldsstofnfundinum 1. apríl
var vefsetur félagsins www.feministinn.is tekið í notkun.
Í byrjun júní 2003 var hafin útsending á
rafrænu fréttabréfi og í september var vefspjallkerfi
tekið í notkun. Núna í maí 2004 var hafin
útgáfa á vefriti fyrir aðsendar greinar.
Femínistapóstlistinn
http://listar.hi.is/mailman/listinfo/feministinn
Áskrifendafjöldi á póstlistanum feministinn@hi.is
er núna 506 en hefur mest verið rúmlega 600 (fyrir ári
síðan). Umræðan á póstlistann náði
hámarki í apríl 2003 en þann mánuð voru
869 skeyti send á listann. Að undanförnu hafa verið innan
við 200 skeyti á mánuði. Femínistapóstlistinn
er bara opinn fyrir áskrifendur. Fólk getur sjálft skráð
sig á femínistapóstlistann. Meira
um póstlistann->
Femínistaspjallið
http://www.feministinn.is/umraedur
Femínistaspjallið opnaði formlega haustið 2003. Femínistaspjallið
er opið til lestrar fyrir alla og innskráðir geta póstað
innlegg. Þar eru nú 460 notendur og póstuð hafa verið
yfir þrjú þúsund innlegg. Fólk getur sjálf
skráð sig á femínistaspjallið.
Fréttabréfið
http://www.yourmailinglistprovider.com/pubarchive.php?feministafrettir
Hafin var útgáfa á rafrænu fréttabréfi
í byrjun júní 2003. Það hafa verið sent
út 9 fréttabréf og fjölmargar tilkynningar um fundi.
Í femínistavikunni var sent út fréttabréf
á hverjum degi. Alls hafa útsendingar verið um 40. Áskrifendum
að fréttabréfinu hefur farið jafnt og þétt
fjölgandi en þeir eru núna 962. Fólk getur sjálft
skráð sig á eða af fréttabréfslistanum.
Vefur félagsins
www.feministinn.is
Vefur félagsins hefur verið uppfærður mjög reglulega á árinu og lagt kapp á að hafa fréttir og myndir úr starfinu á forsíðu. Á vefnum eru á annað hundrað vefsíður og mörg hundruð myndir. Heimsóknir á vefinn voru 20015 í mars 2003 og beiðnir á síður voru 495238.
Viðburðadagatal
http://my.calendars.net/feministinn
Færðir eru inn viðburðir um málefni sem tengjast félaginu og jafnréttismálum almennt. Hver og er getur skráð viðburði með að smella á nafn dags.
Fréttapunktar
http://feministinn.blogspot.com
Reglulega eru settir inn fréttapunktar m.a. tilkynningar um fundi og
ráðstefnur um jafnréttismál. Settar hafa verið
inn 157 póstar frá opnun fréttapunktabloggsins sem var
19. mars 2003.
Vefrit
Í þessum mánuði var sett á stað nýtt
vefrit fyrir aðsendar greinar til Femínistafélagsins.
http://www.feministinn.is/kveikjur
Pósthólf
feministinn@feministinn.is
Vefhópur hefur séð um að vakta póst til félagsins
og sendir áfram og sér um að bæta nýjum félögum
á fréttabréfslista.
Salvör Gissurardóttir hefur séð um vef félagsins, sett efni á vefsíður og tekið flestar myndir sem hafa birst á vefnum, samið og sent út fréttabréf.
Reglur fyrir femínistapóstlistann
Sömu reglur gilda um femínistaspjallið!
Markmið með póstlista oFemínistafélags Íslands er að vera vettvangur femínista til að ræða jafnrétti kynjanna og skoðanaskipta um hvaða leiðir eru vænlegastar til árangurs í jafnréttisbaráttunni.
Póstlistinn hefur þann tilgang að efla samstöðu og samtakamátt femínista.
Innan femínismans eru mismunandi straumar og stefnur sem eiga jafnan tilverurétt. Andfemíniskar umræður eiga hins vegar ekki heima á listanum og áskilur ráð Femínistafélags Íslands sér rétt til að afskrá þátttakendur á listanum sem senda inn slíkan póst.
Ráðið beinir jafnframt þeim tilmælum til þátttakenda að virða eftirfarandi:
1. Ég mun nota umræðuþráðinn eingöngu
fyrir feminísk málefni.
2. Ég mun ekki nota þráðinn fyrir auglýsingar
eða tilkynningar sem ekki tengjast femínisma.
3. Ég mun sýna þátttakendum á listanum virðingu.
4. Ég mun orða innlegg á málefnalegan og kurteisan
hátt.
5. Ég mun virða rétt annarra til að hafa aðrar femíniskar
skoðanir á málefnum heldur en ég.
6. Ég mun ekki nota blótsyrði eða senda öðrum
þátttakendum á listanum háðsglósur.
7. Ég mun skrifa fullt nafn undir innlegg á listann.
8. Ég mun ekki áframsenda eða birta innlegg sem berast á
listann annarsstaðar án leyfis höfundar.
Virðingarfyllst,
Ráð Femínistafélags Íslands
í byrjun maí 2003
Athugið að allar sömu reglur gilda um femínistaspjallið og um femínistapóstlistann nema varðandi að gefa upp fullt nafn. Ekki er amast við því að fólk noti einhver stuttnefni á vefspjallinu enda er það opið fyrir alla.
Femínistapóstlistinn, Femínistaspjallið og vefumræðan
-------------------------------------------------------------
Mikil umræða hefur innan félagsins og hún dreifst víða um Netið.
Umræðan heldur áfram af fullum krafti á
femínistapóstlistanum
og voru 194 skeyti þar í mars 2004. Það er ótrúlegur kraftur í þessum póstlista
sem var stofnaður í febrúar 2003. Femínistapóstlistinn er bara opinn fyrir
áskrifendur en það er auðvelt að gerast áskrifandi á vefsíðu listans og áskrifendur
geta líka skoðað það sem áður hefur verið sent á listann.
Femínistaspjallið
er hins vegar eins og er opið til
lestrar fyrir alla og innskráðir geta póstað innlegg. Það voru 528 innlegg
þar í mars 2004 þannig að þar er líka gífurlega kröftug umræða.
Einnig hefur mikil umræða verið um femínisma víða á vefmiðlum að undanförnu,
t.d. teygði umræðan "Ert
þú feminist-free?" á
spjallvefnum malefnin.com sig yfir 77 blaðsíður með 769 svörum og yfir 13
þúsund flettingum á örfáum dögum. Einnig hefur oft í fjölmiðlum undanfarið
verið umræða um femínisk málefni og hefur umræðan þá gjarnan sprottið upp
úr netmiðlum. Hér er t.d.
viðtalsbrot úr viðtali á X-ið FM977
um konur í fjölmiðlum og öfgafemínisma.
Ráðskona
Salvör Gissurardóttir lektor í samráði við Erlu Sigurðardóttur, blaðakonu.
salvor@khi.is sími 6948596
Vefhópur Femínistafélagsins sér um femínistapóstlistann og Femínistaspjallið. Einnig gefur hópurinn út reglulega fréttabréf og skrifar fréttapunkta og sendir út tilkynningar um viðburði og fundi.
Vefhópur sér einnig um femínistavefinn og reynir að fá þar sem mest af upplýsingaefni fyrir femínista. Þar eru bæði greinar, myndir, hljóðskrár og vídeóklipp.
Vefhópur hefur reynt að auka netumræðu og virkni femínista og umræður um femínisk málefni á spjallborðum, sérstaklega malefnin.com og á femínistaspjallinu.