Forsíða Femínistavefsins

FréttapunktarFréttabréf
PóstlistiFemínistaspjall
DagatalStarfshópar
StefnuskráUm félagið

 

KarlahópurStaðalímyndir
ÖryggisráðFræðsluhópur
MenningStjórnmal
UngirVefhópur
HeilbrigðiAtvinnumál
 

8.mars 041.maí 03
19.júní 032.okt.03
1.apríl 0325.okt. 03
27.mars 0328. júní 03
14.mars 03

Karlahópur
Femínistafélags Íslands




Myndir frá átaki Karlahóps við Ríkið í Austurstræti 23. apríl
Hlusta á viðtal á dægurmálaútvarpi RÚV Rás 1 23. apríl

Um verslunarmannahelgina stendur karlahópur Femínistafélagsins fyrir átakinu Karlmenn segja NEI við nauðgunum. Þetta er í þriðja sinn sem hópurinn fer af stað með átak gegn nauðgunum og eins og í fyrri skiptin er áherslan á hlutverk karlmanna í baráttunni gegn nauðgunum og þá möguleika sem karlmenn hafa til að koma í veg fyrir nauðganir.

Að þessu sinni verðum við á Umferðarmiðstöðinni, Flugstöð Reykjavíkur og í Þorlákshöfn þar sem Herjólfur leggur úr landi. Á þessum stöðum munum við ræða við karlmenn á leið á útihátíðir og dreifa barmmerkjum og bæklingum, ásamt því sem við verðum með frisbee-diska og boli með merki átaksins til sölu.

Það eru Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar, Jafnréttisnefnd Kópavogsbæjar og Hvíta Húsið auglýsingastofa sem styrkja átakið.

Frekari upplýsingar má nálgast hjá Arnari Gíslasyni (arnargi@hi.is, s.
691-9126) og Hjálmari Sigmarssyni (hjalmas@hi.is, s. 694-4799).

 

Karlmenn segja NEI við nauðgunum
Fréttatilkynning frá Karlahópi Femínistafélags Íslands:

Vikuna 19. til 23. apríl  2004 stendur Karlahópur Femínistafélags Íslands fyrir átakinu Karlmenn segja NEI við nauðgunum í samstarfi við Öryggisráð félagsins. Þetta er framhald átaksins Nauðgar vinur þinn? sem hópurinn stóð fyrir um síðustu Verslunarmannahelgi.
Líkt og í fyrra skiptið beinum við skilaboðum okkar til karlmanna.

Átakinu verður formlega hleypt af stokkunum á blaðamannafundi mánudaginn 19. apríl. Á fundinum verða fulltrúar Karlahópsins og Öryggisráðsins ásamt Þórólfi Árnasyni borgarstjóra, Hildi Jónsdóttur jafnréttisráðgjafa Reykjavíkurborgar og Hildi Björg Hafstein verkefnisstjóra Lýðheilsustöðvar. Fundurinn verður á skrifstofu borgarstjóra í Ráðhúsinu og hefst hann kl. 13.45.

Það eru Hvíta Húsið auglýsingastofa, Lýðheilsustöð og Reykjavíkurborg sem styrkja átakið.

Með þessu átaki viljum við í Karlahópi Femínistafélags Íslands fá karla til að staldra við og velta fyrir sér hvað þeir geti gert til að koma í veg fyrir nauðganir. Við teljum nauðsynlegt að karlar sýni samábyrgð í verki og taki afgerandi afstöðu gegn nauðgunum.

Með samstilltu átaki geta karlar lyft grettistaki.

Föstudaginn 23. apríl verðum við fyrir utan verslanir ÁTVR og þar munum við ræða við karla um nauðganir og reyna að virkja krafta þeirra í baráttunni gegn ofbeldi á konum. Einnig munum við dreifa barmmerkjum með merki átaksins og bæklingum með upplýsingum um nauðganir.

Frekari upplýsingar má nálgast hjá Arnari Gíslasyni (elvis@hi.is, s. 691-9126) og Hjálmari Sigmarssyni (hjalmas@hi.is, s. 694-4799)

Félagsmálaráðherra styrkir átakið „Karlmenn segja NEI við nauðgunum“


Félagsmálaráðherra tók 21.4.2004 á móti fulltrúum Femínistafélags Íslands í tilefni af átaki karlahóps félagsins „Karlmenn segja NEI við nauðgunum“, en félagsmálaráðherra er einn styrktaraðila verkefnisins.

 

Tók ráðherra á móti bol, barmmerki og plakat ásamt því að fulltrúar Femínistafélagsins báðu hann um að taka málefnið upp í sínum vinahópi.

Myndir frá Hittinu í mars og apríl og frá átaki Karlahóps
Upptökur úr útvarps- og sjónvarpsþáttum

 

 Í karlahópnum starfa bæði konur og karlar. Hópurinn einbeitir sér að þeim hliðum femínismans sem snerta karla sérstaklega. Eitt af markmiðum okkar er að kynna körlum hugmyndafræði femínisma og að virkja þá til þátttöku í jafnréttisbaráttunni.

Karlar hafa lengi verið á hliðarlínunni í þeirri baráttu en við lítum svo á að nauðsynlegt sé að bæði kyn taki höndum saman til að raunverulegt jafnrétti kynjanna geti orðið að veruleika. Mikilvægur hluti af þessu markmiði er að karlar verði sýnilegri í jafnréttisbaráttunni en áður hefur verið.

Ímynd karlmannsins og hugmyndir um karlmennsku eru einnig viðfangsefni hópsins. Við höfum staðið fyrir Karlmennskukvöldi, þar sem 4 fyrirlesarar fluttu erindi á öldurhúsinu GrandRokk um karlmennsku í hernum; karla og vændi; karlmennsku í auglýsingum; og karla og húmor. Einnig stóð hópurinn fyrir Fyrirmyndakvöldi í Femínistavikunni, sömuleiðis á GrandRokk, þar sem 5 þjóðkunnir karlar ræddu um fyrirmyndir sínar í æsku og um fyrirmyndir dagsins í dag. Samhliða þessu var Fyrirmyndaritið gefið út, en þar ræða 7 karlar úr ýmsum áttum um fyrirmyndir sínar.

Sumarið 2003 stóð hópurinn fyrir átaki gegn nauðgunum í samstarfi við Ofbeldisvarnarhóp (nú Öryggisráð). Hugmyndin var að vekja upp umræðu um nauðganir og að fá karla sem kyn til að beita sér gegn nauðgunum, enda lítum við á nauðganir sem vandamál samfélagsins en ekki einkamál þess sem nauðgar og þess sem er nauðgað. Hópurinn fór í þessu skyni á Flugstöð Reykjavíkur og BSÍ þar sem við dreifðum frisbeediskum til ferðalanga á leið á útihátíðir. Á diskunum stóð: „Nauðgar vinur þinn?“ og var með því vísað til samábyrgðar karla og þeirra möguleika sem hver og einn hefur til að koma í veg fyrir nauðganir.

Þessa daganna eru fulltrúar úr karlahópnum, í samstarfi við fræðsluhóp og Öryggisráð félagsins, að vinna að fræðsluverkefni um femínisma og kynímyndir í grunnskólum Reykjavíkur. Verkefnið hefur verið reynt í Réttarholtsskóla og voru undirtektir ákaflega jákvæðar og greinilegt að krakkar á þessum aldri, bæði strákar og stelpur, hafa töluverða þörf fyrir að ræða þessi mál. Nú stendur til að þróa verkefnið enn frekar og fara í fleiri skóla til að ræða við unglinga.

Næst á döfinni hjá hópnum er að halda kvöld um stöðu karla sem foreldra og einnig er í bígerð þemakvöld um karlmennsku í bókmenntum, tónlist og kvikmyndum. Loks er fyrirhugað að halda áfram með átakið Nauðgar vinur þinn?, enda mikilvægt að umræða um nauðganir
einskorðist ekki við Verslunarmannahelgina né við unga karlmenn.

Karlahópur Femínistafélagsins sá um Hittið 3. febrúar 2004.
Efni kvöldsins var börnin og nýju barnalögin,

PABBAKVÖLD
Karlahópur Feministafélags Íslands stóð fyrir umræðufundi, PABBAKVÖLDI, á GrandRokk, miðvikudaginn 28. janúar 2004

Hægt er að fá nánari upplýsingar um hópinn með því að hafa samband við Gísla (gislihrafn@tiscali.dk) eða Arnar (elvis@hi.is).


Sett á vef 29-jul-04
Síðast uppfært 25. apríl 2004
Salvör Gissurardóttir


 

Karlahópur Femínistafélagsins stóð fyrir  átakinu "Karlmenn segja NEI við nauðgunum" í apríl 2004.

Sumarið 2003 stóð hópurinn fyrir átaki gegn nauðgunum í samstarfi við Ofbeldisvarnarhóp (nú Öryggisráð).

Karlahópur stendur fyrir fræðslu um femínisma og kynímyndir í skólum.

Í femínistavikunni í október 2004 hélt karlahópur fyrirmyndakvöld á Grand Rokk.

Karlahópur skipulagði  Hitt á Sólón í febrúar 2004. Efnið var börnin og  nýju barnalögin.

Karlahópur stóð fyrir umræðufundi "Pabbakvöldi´" á Grand Rokk í janúar 2004.