Vídeóklipp frá fundi um launamun kynjanna
Haldið var á kvennafrídaginn með fundi um launamun kynja
--------------------------------------------------------------------------
Atvinnumálahópur stóð fyrir fundi um launamál kynjanna á upphafsdegi
femínistavikunnar á sama degi og kvennafrídagurinn var á Íslandi 24. október
1975. Þann dag lögðu langflestar konur niður störf og atvinnulífið lamaðist.
Kvenfélög og kvennasamtök stóðu fyrir útifundi á Lækjartorgi. Talið er að um
25.000 konur hafi safnast þar saman. Líklega er þetta einn stærsti útifundur
Íslandssögunnar.
Myndir af kvennafundinum 1975:
http://kona.bok.hi.is/img/kvennaf2.jpg
http://kona.bok.hi.is/img/kvennaf14.jpg
Femínistafélagið hvatti konur til að sækja um launahækkun 24 október
2003. Því er oft haldið fram að helsta ástæðan launamunar kynjanna sé að
konur fari ekki fram á hærri laun. Femínistavikan hófst þann dag á
morgunverðarfundi um launamun kynjanna á Grand Hótel.
.



Það var
troðfullt á launafundinum, það komu mörg hundruð manns.
Hópur sem einbeitir sér að launa-, efnahags- og atvinnumálum kvenna. Launa- og atvinnumál eru barna- og fjölskyldumál. Kynbundinn launamunur, kynbundið starfsval; Auka hlut kvenna í fjármála- og auðlindastjórnun.
Atvinnumálahópur starfaði náið með stjórnmálahóp fyrsta starfsár félagsins.
Ráðskona
Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur.
krast@simnet.is sími 8640493
Atvinnumálahópur stóð fyrir launafundi í upphafi femínistavikunnar.
Atvinnumálahópur starfaði ásamt stjórnmálahópi að ýmsum málum.