Karlahópur
Femínistafélags Íslands

Aftur á forsíðu->

Í karlahópnum starfa bæði konur og karlar. Hópurinn einbeitir sér að þeim hliðum femínismans sem snerta karla sérstaklega. Eitt af markmiðum okkar er að kynna körlum hugmyndafræði femínisma og að virkja þá til þátttöku í jafnréttisbaráttunni.

Karlar hafa lengi verið á hliðarlínunni í þeirri baráttu en við lítum svo á að nauðsynlegt sé að bæði kyn taki höndum saman til að raunverulegt jafnrétti kynjanna geti orðið að veruleika. Mikilvægur hluti af þessu markmiði er að karlar verði sýnilegri í jafnréttisbaráttunni en áður hefur verið.

Ímynd karlmannsins og hugmyndir um karlmennsku eru einnig viðfangsefni hópsins. Við höfum staðið fyrir Karlmennskukvöldi, þar sem 4 fyrirlesarar fluttu erindi á öldurhúsinu GrandRokk um karlmennsku í hernum; karla og vændi; karlmennsku í auglýsingum; og karla og
húmor. Einnig stóð hópurinn fyrir Fyrirmyndakvöldi í Femínistavikunni, sömuleiðis á GrandRokk, þar sem 5 þjóðkunnir karlar ræddu um fyrirmyndir sínar í æsku og um fyrirmyndir dagsins í dag. Samhliða þessu var Fyrirmyndaritið gefið út, en þar ræða 7 karlar úr ýmsum áttum
um fyrirmyndir sínar.

Sumarið 2003 stóð hópurinn fyrir átaki gegn nauðgunum í samstarfi við Ofbeldisvarnarhóp (nú Öryggisráð). Hugmyndin var að vekja upp umræðu um nauðganir og að fá karla sem kyn til að beita sér gegn nauðgunum, enda lítum við á nauðganir sem vandamál samfélagsins en ekki einkamál þess sem nauðgar og þess sem er nauðgað. Hópurinn fór í þessu skyni á Flugstöð Reykjavíkur og BSÍ þar sem við dreifðum frisbeediskum til ferðalanga á leið á útihátíðir. Á diskunum stóð: „Nauðgar vinur þinn?“ og var með því vísað til samábyrgðar karla og þeirra möguleika sem hver og einn hefur til að koma í veg fyrir nauðganir.

Þessa daganna eru fulltrúar úr karlahópnum, í samstarfi við fræðsluhóp og Öryggisráð félagsins, að vinna að fræðsluverkefni um femínisma og kynímyndir í grunnskólum Reykjavíkur. Verkefnið hefur verið reynt í Réttarholtsskóla og voru undirtektir ákaflega jákvæðar og greinilegt að krakkar á þessum aldri, bæði strákar og stelpur, hafa töluverða þörf fyrir að ræða þessi mál. Nú stendur til að þróa verkefnið enn frekar og fara í fleiri skóla til að ræða við unglinga.

Næst á döfinni hjá hópnum er að halda kvöld um stöðu karla sem foreldra og einnig er í bígerð þemakvöld um karlmennsku í bókmenntum, tónlist og kvikmyndum. Loks er fyrirhugað að halda áfram með átakið Nauðgar vinur þinn?, enda mikilvægt að umræða um nauðganir
einskorðist ekki við Verslunarmannahelgina né við unga karlmenn.

Karlahópur Femínistafélagsins sá um Hittið 3. febrúar 2004.
Efni kvöldsins var börnin og nýju barnalögin,

PABBAKVÖLD
Karlahópur Feministafélags Íslands stóð fyrir umræðufundi, PABBAKVÖLDI, á GrandRokk, miðvikudaginn 28. janúar 2004

Hægt er að fá nánari upplýsingar um hópinn með því að hafa samband við Gísla (gislihrafn@tiscali.dk) eða Arnar (elvis@hi.is).


Sett á vef 2-mar-04
Síðast uppfært 2-mar-04
Salvör Gissurardóttir
Á forsíðu vefs Femínistafélags Íslands