|
Heimili
og varnarþing
- § Félagið
heitir Femínistafélag Íslands. Lögheimili
og varnarþing þess eru í Reykjavík.
Markmið
og félagsaðild
- § Markmið
Femínistafélags Íslands er að efla gagnrýna
og femíníska umræðu á öllum sviðum
þjóðlífsins og berjast gegn hverskonar birtingarmyndum
kynjamisréttis.
- § Félagið
er opið öllum femínistum sem aðhyllast markmið
félagsins.
Aðalfundur
- § Aðalfundur
félagsins skal haldinn vor hvert.
- § Allir
félagar sem skráðir hafa verið að lágmarki
5 daga í félagið hafa rétt til setu og atkvæðisrétt
á fundi.
- § Á
aðalfundi er samþykkt starfsáætlun til eins árs.
- § Á
aðalfundi skulu kosnir 9 - 12 félagar í ráð
sem fer með ákvörðunarvald félagsins milli
aðalfunda. Hver félagi má sitja í ráðinu
í fjögur ár.
- § Ráðið
hefur umboð til að álykta í nafni félagsins
enda sé ályktunin í samræmi við grundvallarmarkmið
þess.
- § Ráði
félagsins er heimilt að skipa hópa til starfa í
nafni félagsins.
- § Ráð
skiptir með sér verkum á fyrsta fundi sínum.
Skipaður skal ritari, gjaldkeri og talskona/maður félagsins.
- § Ráðið
skal funda að minnsta kosti 4 sinnum á ári eða
oftar ef þurfa þykir. Fundurinn er atkvæðisbær
ef meirihluti ráðsins mætir.
- § Dagskrá
aðalfundar skal vera eftirfarandi:
- Fundur
settur.
- Kosning
fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla
ráðs fyrir liðið starfsár.
- Reikningar
félagsins lagðir fram og samþykktir.
- Kosning
í ráð.
- Kosning
á skoðunaraðila reikninga.
- Ákvörðun
félagsgjalda.
- Lagabreytingar.
- Tillaga
ráðs um starfsáætlun næsta starfsárs.
- Önnur
mál.
- Fundarslit.
- § Aðalfundur
telst löglega boðaður ef fundarboð er sent með
tölvupósti á félaga með a.m.k. tíu
daga fyrirvara.
Reikningsár
og félagsgjöld
- § Reikningsár
félagsins er 1. maí til 30. apríl.
- § Á
aðalfundi skal kjósa einn skoðunaraðila reikninga.
- § Ráð
félagsins leggur fram tillögu um félagsgjöld
á aðalfundi félagsins.
Lagabreytingar
- § Tillögur
um lagabreytingar skal leggja fram til ráðs a.m.k. fimm daga
fyrir aðalfund.
- § Lögum
þessum má aðeins breyta á aðalfundi félagsins.
- § Lagabreytingar
teljast samþykktar ef 2/3 hluti félaga sem sækja
aðalfund samþykkja breytingarnar.
Slit
félagsins
- § Femínistafélagi
Íslands má slíta með ákvörðun
2/3 hluta skuldlausra félaga á aðalfundi eða félagsfundi.
- § Náist
ekki tilskilinn félagafjöldi á aðalfundi/félagsfundi
má halda framhaldsfund og þarf þá 2/3 hluti
fundaraðila að samþykkja slit til að félaginu
teljist slitið.
- § Við
slit félagsins skulu eignir, ef einhverjar eru, renna til styrktar
femínisks málefnis.
|