Konur í framboði
Konur í framboði
Þórunn Sveinbjarnardóttir
Jóhanna Sigurðardóttir
Bryndís Ísfold
Margrét Sverrisdóttir
Kolbrún Halldórsdóttir
Kolbrún Baldursdóttir
Birgitta Jónsdóttir Klasen
Andrea Ólafsdóttir
Steinunn Guðnadóttir
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Kristrún Heimisdóttir
Valgerður Bjarnadóttir
Auður Lilja Erlingsdóttir
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
   
Femínistafélag Íslands

 

 


Þórunn Sveinbjarnardóttir, Samfylkingin

Smelltu hér til að skoða heimasíðu Þórunnar.

Þórunn Sveinbjarnardóttir þingkona sækist eftir 1. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi.
Prófkjör fer fram 4. nóvember.

 

Takið ykkur á, strákar!

Mikil umræða um nauðganir og annað kynferðisofbeldi hefur orðið í kjölfar hrottalegra nauðgana í húsasundum í Reykjavík. Fólk er slegið og finnur að tilfinning þess fyrir öryggi á götum fer dvínandi og hverfur jafnvel alveg. Allt er þetta skiljanlegt en það breytir því ekki að flestir kynferðisglæpir á Íslandi eru framdir í heimahúsum og oftast þekkja fórnarlömbin glæpamennina, sem eru eiginmenn, kærastar, feður, stjúpfeður, frændar, afar eða vinir.

Staðreyndirnar tala sínu máli, í lögregluskýrslum en ekki síður í sögum þeirra kvenna sem leita til neyðarmóttökunnar og Stígamóta. Það sem breyst hefur til batnaðar á undanförnum árum er að viðhorfsbreyting hefur orðið meðal almennings og hins opinbera, ekki síst lögreglunnar, til kvennanna sem tilkynna nauðganir. Það er oftast tekið mark á þeim en þannig hefur það ekki alltaf verið.

Nauðganir og aðrir kynferðisglæpir endurspegla að einhverju leyti samfélagið sem við búum í og viðhorf þess til kvenna almennt. Það eru hin óþægilegu sannindi í þessu grafalvarlega máli. Kynferðisofbeldi er því miður mælikvarði á viðhorf sumra karla til kvenna – stöðu þeirra og hlutverks í þjóðfélaginu. Það er ömurlegt að þurfa að horfast í auga við þetta en svona er þetta og það hafa konur og femínistar lengi vitað og reynt að benda öðrum á. Það er löngu tímbært að karlar taki ábyrgð á framferði meðbræðra sinna og takist á við þann mikla vanda sem ofbeldismennirnir í þeirra hópi eiga við að glíma. Þar með er ég alls ekki að segja að allir karlar séu ofbeldismenn. Því fer fjarri. Karlar geta hins vegar ekki lengur setið hjá og látið konur einar um að mótmæla ofbeldinu. Sem betur fer hefur karlahópur Femínistafélagsins og Jafningjafræðslan gengið fram fyrir skjöldu og konfronterað karlana en meira þarf til.

Takið ykkur á , strákar! Hvort sem þið eruð 16, 46 eða 76 ára gamlir, skora ég á ykkur að mómæla ofbeldi gegn konum hvar sem þið hafið tækifæri til. Það er mikið í húfi fyrir ykkur sjálfa ekki síður en eiginkonur ykkar, mæður og dætur.

***************

Meira frá Þórunni:

Þórunn Sveinbjarnardóttir alþingismaður býður sig fram í fyrsta sætið á framboðslista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi í stuðningsmannaprófkjöri sem fram fer laugardaginn 4. nóvember nk.

Þórunn er öflugur liðsmaður Samfylkingarinnar og efni í sterkan leiðtoga í Suðvesturkjördæmi. Hún hefur setið á Alþingi frá 1999 og vakið athygli fyrir skelegga framgöngu á sviði umhverfis- og utanríkismála. Þórunn er málefnalegur stjórnmálamaður sem stendur föstum fótum í arfleifð jafnaðarmanna en er jafnframt framsýn og hörkudugleg. Ég hvet þig til þess að taka þátt í prófkjörinu næsta laugardag og tryggja Þórunni fyrsta sætið á framboðslista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi.

Rétt til þess að taka þátt í prófkjörinu hafa allir sem eru skráðir eru félagsmenn í Samfylkingunni og eru orðnir 16 ára á prófkjörsdegi og eiga lögheimili í Suðvesturkjördæmi. Ennfremur allir sem hafa kosningarétt í Suðvesturkjördæmi og skrifa undir stuðningsyfirlýsingu við flokkinn.

Kjörstaðir verða auglýstir í dagblöðum en upplýsingar um þá má finna á heimasíðu Samfylkingarinnar www.samfylking.is

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er hafin.  Hún fer fram á Skrifstofu Samfylkingarinnar að Hallveigarstíg 1 í Reykjavík á skrifstofutíma til og með föstudeginum 3. nóvember. Einnig á skrifstofum Samfylkingarfélaganna að Strandgötu 43 Hafnarfirði, Hamraborg 11 Kópavogi og Þverholti 3 Mosfellsbæ á milli 17 og 19 í vikunni fyrir prófkjör.


Femínistafélag Íslands