Smelltu hér til að fara á forsíðu kosningavefs FÍ

Smelltu hér til að skoða svör Framsóknarflokksins

Smelltu hér til að skoða svör Frjálslynda flokksins

Smelltu hér til að lesa svör frá Samfylkingunni

Smelltu hér til að skoða svör Sjálfstæðisflokksins

Smelltu hér til að skoða svör Vinstri grænna

 

Svör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

Hver er jafnréttisstefna framboðsins?

Sjálfstæðisflokkurinn hafnar allri mismunun gagnvart einstaklingum af hvaða kyni, trú, kynhneigð eða þjóðfélagshópi sem þeir eru og leggur sig fram við að tryggja að allir hafi sömu tækifæri í þjóðfélaginu. Ábyrgð á jafnrétti borgara landsins hvílir á öllum Íslendingum en þó er mikilvægt að hið opinbera sýni gott fordæmi í jafnréttismálum. Eitt mikilvægasta hlutverk borgarinnar er því að tryggja jöfn tækifæri og jafnan rétt borgaranna.

Hvernig mun flokkurinn beita sér fyrir því að ná fram launajafnrétti í borginni að afloknum kosningum?

Sjálfstæðisflokkurinn mun leitast við að tryggja að konur og karlar sem starfa hjá borginni fái sömu laun fyrir sambærileg störf. Atvinnurekendur og aðrir borgarar hafa ekki hag af því að starfsmönnum sé mismunað af ómálefnalegum ástæðum eins og kynferði, kynhneigð, trúarbrögðum eða litarháttar. Launaákvarðanir og aukin ábyrgð einstaklinga eiga þannig að endurspegla starf, ábyrgð, vinnuframlag, frammistöðu og hæfni viðkomandi starfsmanns. Í samkeppni um fólk, framleiðni og þjónustu verða hæfni, þekking og frammistaða starfsfólks, svo og önnur málefnaleg sjónarmið að ráða ákvörðunum stjórnenda ellegar er líklegt að samkeppnishæfni fyrirtækja dvíni.

Nú blasir við að umönnum bæði ungbarna, foreldra og veikra fjölskyldumeðlima er að færast meira yfir á heimilin sökum skorts á úrræðum í borginni. Hvernig hyggst þinn flokkur bregðast við vandanum og koma í veg fyrir að þessi ólaunaða vinna falli á konur í meira mæli en karla?

Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að ganga til verks í málefnum aldraðra strax ef hann fær stuðning til starfans. Sveitarfélögin geta gert mjög margt til að efla þjónustu við eldri Reykvíkinga, t.d. með því að byggja þjónustuíbúðir, fjölga dagvistarúrræðum og efla heimaþjónustu. Mikil þörf er einnig á úrræðum fyrir foreldra með ung börn og Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að hækka greiðslur til dagmæðra og búa til ungbarnadeildir í hverju hverfi til að bæta þjónustu við foreldra.

Klámvæðingin er sífellt að aukast með tilheyrandi skaðlegum afleiðingum fyrir ungt fólk. Hvernig hyggst þinn flokkur taka á þessum vanda að afloknum kosningum?
Sjálfstæðisflokkurinn ?Munuð þið gera eitthvað til að fækka nektarstöðum í borginni ef þið komist í meirihluta og hversu alvarlegum augum lítið þið klámvæðinguna?

Sjálfstæðisflokkurinn lítur þetta alvarlegum augum og telur það hluta af forvarnarstefnu sinni að sporna gegn henni. Það er t.d. ekki borginni til sóma að í miðborginni starfi nektarstaðir og Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík mun ekki leyfa fleiri slíka staði í miðbænum.

Hvaða leið teljið þið árangursríkasta til að auka þátttöku kvenna í stjórnmálum?

Við teljum mikilvægt að konur taki þátt í stjórnmálum til að koma reynslu þeirra og skoðunum áleiðis í stefnumótun. Þátttaka kvenna í stjórnmálum er aukin með ólíkum átaksverkefnum, skilaboðum um tengsl þátttöku og framkvæmda, jafnri þátttöku kynja í nefndum og ýmsum öðrum hugmyndum.

Er framboðið skilgreint sem femínískt framboð? Ef nei, hvers vegna ekki?

Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík stendur fyrir jafnrétti og hafnar allri mismunun gagnvart einstaklingum, óháð því hvaða kyni þeir eru.

Skiptir kyn máli? Hvers vegna eða hvers vegna ekki?

Kyn skiptir máli. Einstaklingar eru almennt ólíkir og búa yfir ólíkri reynslu. Flest allar rannsóknir staðfesta að konur og karlar hafa ólíka reynslu að baki. Það er mikilvægt að sjónarmið beggja kynja sé til grundvallar við ákvarðanatöku og stefnumótun á sem flestum stöðum í samfélaginu.

Hvernig hyggst þitt framboð beita sér fyrir úrlausn á dagvistunarvanda barna frá 9 - 24 mánaða aldurs?

Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja dagvistun frá því að fæðingarorlofi lýkur. Mikil þörf er á úrræðum fyrir foreldra með ung börn og Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að hækka greiðslur til dagmæðra og búa til ungbarnadeildir við leikskóla í hverju hverfi til að bæta þjónustu við foreldra. Að auki vill Sjálfstæðisflokkurinn fjölga tækifærum foreldra til að nýta sér þjónustu leikskóla, með því að tryggja að öll börn njóti sama stuðnings óháð því hvort þau sækja þjónustu í borgarrekinn eða einkarekinn leikskóla.

Telur þitt framboð þörf á að jafnrétti sé ávallt haft í fyrirrúmi í hverri kennslustund sem fram fer í grunnskólum (og öllum skólastigum) og ef svo er hvernig? Sérðu fyrir þér að þörf sé á að endurskoða námsskrá og útfærslu kennslu barna með þetta í huga?

Samkvæmt lögum, reglugerðum og stefnumótun bæði ríkis og sveitarfélaga á jafnrétti að vera í fyrirrúmi í hverri kennslustund á öllum skólastigum. Nú stendur yfir endurskoðun á námskrá hjá menntamálaráðuneytinu þar sem þessi sjónarmið eru ítrekuð.

Hvernig jafnrétti er framfylgt er verkefni hvers skóla fyrir sig. Borgin getur þó beitt sér fyrir könnunum og rannsóknum á því hvernig skólar ná þessu markmiði sem þeir setja sér í skólanámskrá.

 

******************************************************************************************
Viðbótarspurning - Sjálfstæðisflokkurinn

Nú liggur fyrir að ein ástæða fyrir hinum mikla launamun kynjanna á Íslandi er fjöldi kvenna sem sinnir illa launuðum umönnunarstörfum. Þrátt fyrir að laun sumra þeirra hafi verið hækkuð nýlega liggur fyrir að ófaglært starfsfólk sem sinnir ræstingum o.þ.h. hlaut ekki sambærilegar hækkanir. Stór hluti þeirra sem þessum störfum gegna eru konur af erlendum uppruna. Munið þið beita ykkur fyrir hækkunum á lægst launuðu störfum, hvernig og mun verða haft til hliðsjónar að draga úr launamun kynjanna?

Fjölmargar ástæður liggja til grundvallar launamun kynjanna og ein ástæðan er án efa sú að konur sinna fremur umönnunarstörfum en karlar. Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins eru sammála um að mikilvægt sé að tryggja betri launakjör þeirra sem sinna þessum mikilvægu störfum á vettvangi borgarinnar, auk þess sem nauðsynlegt er að tryggja að konur og karlar sem starfa hjá borginni fá sömu laun fyrir sambærileg störf.