![]() |
|
|
Ragnheiður Ríkharðsdóttir býður sig fram í 3ja sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi þann 11.nóv.
|
|
Bættar samgöngur á höfuðborgarsvæðinu eru öllum landsmönnum til góðs Öflugt samgöngukerfi er stór þáttur í velferð og lífsgæðum fólksins í landinu auk þess að vera grunnforsenda hagvaxtar í hverju nútímasamfélagi. Þegar litið er til alls landsins má sjá að mikið og gott verk hefur verið unnið í þessum málaflokki þótt höfuðborgarsvæðið hafi oft verið látið sitja á hakanum. Þessvegna ber að taka undir með og fagna þeirri yfirlýsingu Sturlu Böðvarssonar, samgöngumálaráðherra, í Morgunblaðinu þann 31. október 2006, að nauðsynlegt sé að byggja sem fyrst upp þjóðvegina út frá höfuðborgarsvæðinu. Mín skoðun er að þetta þurfa að vera tveir plús tveir vegir og aðskilið á milli þarsem mikill þungi er á þessum vegum og hröð umferð. Þessar aðgerðir munu leiða til þess að alvarlegum slysum mun fækka, að ferðatími mun styttast, að kostnaður þjóðfélagsins af samgöngum og slysum mun minnka, mikill fjöldi Íslendinga mun bæta búsetukjör sín auk þess sem bættar samgöngur þýða venjulega aukinn hagvöxt. Það að búa við endurteknar skammtímalausnir á samgöngum á höfuðborgarsvæðinu er vart ásættanlegt,. Á skömmum tíma hefur Vesturlandsvegur verið í uppnámi í þrígang. Þegar Víkurvegamótin voru gerð fór hann í uppnám og daglega þurfti tugur þúsunda Íslendinga að umbera vandræðin og tafirnar í alltof langan tíma. Sama gerðist þegar tvöföldun Vesturlandsvegar uppí Mosfellsbæ var gerð og í þriðja skiptið nú þegar mislæg gatnamót milli Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar eru í framkvæmd. Allar þessar framkvæmdir bættu samgöngurnar töluvert og því ber að fagna. Það er ljóst að kröfur um bættar samgöngur eru víða og þrjár leiðir hafa verið nefndar til að fjármagna þær kröfur sem taldar eru réttmætar. Í fyrsta lagi aukið fé til vegamála beint frá ríkissjóði, í öðru lagi taka lán til tuttugu ára til að fjármagna framkvæmdir og í þriðja lagi veggjald. Hvaða ákvörðun sem verður ofan á þarf að flýta ákvörðunartöku. Rétt einsog þarf að flýta ákvörðunartöku um uppbyggingu Sundabrautar sem er stórt hagsmunamál íbúa höfuðborgarsvæðisins þarsem sá vegur mun taka við öllum þungaflutningum sem fara um Vesturlandsveginn. Það er mikilvægt að íbúar landsins
skilji og skynji að bættar samgöngur á höfuðborgarsvæðinu
er hagsmunamál okkar allra. Einnig þeirra sem nota þessa
vegi hvað minnst. Alvarlegum slysum mun fækka og þar
af leiðandi mun kostnaður þjóðfélagsins
af slysum minnka.
|
|