Konur í framboði
Konur í framboði
Þórunn Sveinbjarnardóttir
Jóhanna Sigurðardóttir
Bryndís Ísfold
Margrét Sverrisdóttir
Kolbrún Halldórsdóttir
Kolbrún Baldursdóttir
Birgitta Jónsdóttir Klasen
Andrea Ólafsdóttir
Steinunn Guðnadóttir
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Kristrún Heimisdóttir
Valgerður Bjarnadóttir
Auður Lilja Erlingsdóttir
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
   
Femínistafélag Íslands

 

 


Birgitta Jónsdóttir Klasen, Sjálfstæðisflokkurinn
Birgitta er ekki með heimasíðu svo í staðinn fyrir að vera með tengil birtum við þennan texta frá Birgittu:

Ég óska eftir ykkar stuðningi við framboð mitt. Ég býð mig fram í 5.til 6. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins i Suðurkjördæmi. Helstu baráttumál mín snúast um þjónustu við eldri borgara og að draga úr ofbeldi gegn konum og börnum.

Einnig hef ég þriggja ára nám í félagráðgjöf varðandi konur. Í þeim málum hef mikla reynslu bæði sjálfstætt og klínist í að aðstoða einstæðar konur með börn sem eiga við sálræn vandamál að stríða.

Prófkjörið fer fram 11. nóvember.

***************

Stjórnmálamenn geta alltaf getur betur

Ef þú, kæri kjósandi, hyggst ljá mér atkvæði þitt í komandi prófkjöri má ætla að sú ákvörðun þín byggist ekki aðeins á kynferði mínu heldur miklu fremur má búast við því að þú hafir sannfærst um þá réttlætiskennd, sem ég bý yfir.

Hinsvegar ætti sú staðreynd að enn einn nýr kvenframbjóðandi bætist nú í hóp þeirra kvenna, sem eru tilbúnar að taka pólitískan slag, að sjálfsögðu ekki að skaða í þeim kosningum, sem framundan eru.  Megi framboð mitt líka virka hvetjandi á aðrar konur, sem vilja hafa skoðun og vilja einhverju ráða um nánasta þjóðfélagsumhverfi sitt og barna sinna.

Mér finnst afar mikilvægt að við Íslendingar sitjum ekki bara hjá og sættum okkur við þau efnahagslegu og félagslegu vandamál, sem hér eru uppi, heldur liggur á að bæta stöðu okkar í þessum mikilvægu málaflokkum.  Það kæmi öllum til góða, konum, körlum og börnum.  Stjórnmálamenn geta alltaf gert betur.  Þeir þurfa hinsvegar fyrst og fremst að komast að sem ekki bara tala til að friðþægja lýðinn heldur þeir, sem láta verkin tala fyrir sig.

***************

Reyklaust tóbak drepur hægt

Munntóbaksneysla er orðin algeng í okkar þjóðfélagi og þurfum við mannfólkið að vera sérstaklega á varðbergi gagnvart þessu nýja gamla eiturlyfi.  Sígarettureykingar eru á undanhaldi því þeim fækkar stöðugt sem láta af þeim ósið. Hinsvegar hefur reyklaust stórhættulegt munntóbak fundið sér marga neytendur hér á landi sem segja má að séu í hópi fórnarlamba þessara ávanabindandi efna, sem eru með öllu ólögleg á Íslandi.

Ungt fólk, sér í lagi fótboltastrákar á aldrinum 18 til 26 ára, nota munntóbak til “stimulation”.  Tóbaksiðnaðurinn hóf alvöru markaðssetningu á munntóbaki og svokölluðu K tóbaki snemma á sjöunda áratugnum. Munntóbak er til í tvenns konar formi. Annað er þurrt og hitt blautt sem er nú mun algengara hjá unga fólkinu.  Tóbakinu er komið fyrir í sprautuhylki og sett undir efri vörina þar sem það er sogað í allt að þrjátíu mínútur í senn.  Þeir einstaklingar, sem eru orðinn mjög háðir efninu, endurtaka þetta jafnvel oft á dag.  Ímynd munntóbaksneyslu þykir ennþá “karlmannleg”, en alvöru karlmenn og íþróttamenn ættu auðvitað að vita að skaðsemin er margfalt meiri en tískustraumar. (suggyriet).....

Margir neytendur þekkja ekki hættur munntóbaksins.  Til dæmis er 79% nikótíninnihald í tóbakinu sem fer beint inn í blóðrásarkerfið í líkamanum sem getur haft í för með sér fjölmörg andleg og líkamleg vandamál.

Reykingamenn hafa loksins komist á snoðir um hvaða áhrif sígarettureykingar geta haft á líkamann, t.d. varðandi lungnakrabbamein.  Munntóbak nota aftur á móti yfir ein milljón ungra neytanda. Mest er neyslan í Bandaríkjunum og í Svíþjóð sem eru einu vestrænu löndin sem hafa lögleitt munntóbak.  

Líkamleg einkenni við munntóbaksneyslu eru þau að varir byrja að springa, tennur verða brúnar, vond lykt liggur frá munni, slímhúð til varnar bakteríusýkingum hverfur, tannhold rifnar og jafnvel myndar holur og krabbamein.  Hjartsláttur getur orðið of hraður og  blóðþrýsingur orðið of hár, en það versta sem fyrir getur komið er rachenkrebs krabbameini.  Munntóbaksneysla er fjórum sinnum líklegri til að valda munnholskrabbameini og 50 sinnum líklegri til að valda kehlkopfkrebs krabbameini en sígarettureykingar.

Andleg einkenni tóbaksneyslu geta engu að síður valdið alvarlegum skaða en þau líkamlegu.  Einkum á það við um skapsveiflur og ofbeldishneigð af hálfu neytandans.  Þeir eiga það til að sýna aggressiveness, gereist og uncontrol í sambandi við dagleg störf og umgengni við fjölskyldumeðlimi.

Allir þjóðfélagsþegnar verða að leggjast á eitt um að uppræta þennan vanda, ekki til að skammast heldur til að fræða unga tóbaksneytendur og fjölskyldur þeirra um hætturnar, sem neyslunni fylgja því með tíð og tíma eru tóbaksneytendur að drepa sig hægt.  

 

Femínistafélag Íslands