![]() |
|||||
***** Leitin að kvenleikanum Lokahóf Femínistavikunnar á Næsta bar. Laugardaginn 28. okt kl. 22. Bleikir drykkir á tilboði! ***** Fundur með handhöfum Bleiku steinanna Föstudagsmorguninn 27. október kl. 8:00 í Blómasal Hótel Loftleiða. Fréttafjölmiðlar segja okkur frá aðgerðum í jafnréttismálum. Heitar umræður á eftir! Aðgangur ókeypis. Hægt að fjárfesta í mogunmat á staðnum fyrir 1500 kr. ***** Kynlegur frítími Jafnréttisnefnd ÍTR stendur fyrir málþingi
um jafnrétti og frítímann föstudaginn 27. okt
kl. 13.00-16.00 í Kornhlöðunni við Lækjarbrekku. ***** Þjóðarspegillinn Næsta föstudag þann 27.
október bjóða félagsvísinda-, laga- og
viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands
til samtals um 120 sjálfstæðra fyrirlestra um nýjar
rannsóknir vegum deildanna, sjá: Þér er boðið að líta við og velja það sem þér finnst áhugavert. Fyrirlestrar Kynjafræðinnar:
|
28. október Er ekki kominn tími til að mingla í góðra femínista hópi? Sjáumst á Næsta bar! Femínistavikunni lýkur formlega laugardaginn 28. október með lokahófi á Næsta bar kl. 22:00. Bleikir drykkir verða á tilboði á barnum og þemað verður leitin að kvenleikanum. Hver veit nema hann leynist undir næsta stól? *************************************************************** 27. október Prófkjör Nú eru prófkjörin að byrja - við minnum ykkur á að kjósa. Rifjið endilega upp áskorun atvinnu- og stjórnmálahóps með því að smella hér. Hvað eru fréttir? Fundurinn með handhöfum Bleiku steinanna, fréttafjölmiðlum, sem var í morgun heppnaðist mjög vel. Það má segja það sama um þennan fund og þá með handhöfum 2003 og 2004 að fundurinn var ekki fjölsóttur en innihald hans frábært. Á fundinum fóru ritstjórar og aðstoðarritstjórar frá fréttafjölmiðlunum 6, Blaðinu, Fréttablaðinu, Morgunblaðinu, NFS, RUV og Viðskiptablaðinu, yfir hvernig staðan er hjá þeim í jafnréttismálum, hvað hefur verið gert og hvort Bleiki steininn hafi áhrif. Það er ánægjulegt að segja frá því að Bleiki steininn virðist hafa einhver áhrif þó slíkt sé auðvitað erfitt að mæla í beinum áhrifum. Konum hefur fjölgað í fjölmiðlum frá því sem áður var en þó er enn nokkuð langt í land og augljóst að karlarnir eru ríkjandi á fjölmiðlum ennþá. Á eftir erindunum voru umræður og þar bar fréttamatið hæst. Hvernig spegill eru fjölmiðlar í raun og veru? Því sjónarmiði er iðulega fleygt fram að fjölmiðlar eigi ekki að endurspegla samfélagið eins og það eigi að vera heldur eins og það er. Og það er einmitt þar sem hnífurinn stendur í kúnni - því margir vilja meina að fjölmiðlar endurspegli ekki samfélagið eins og það er. Það er spurning hvort orða mætti það sem svo að fjölmiðlar endurspegli vonir og væntingar feðraveldisins um hvernig samfélagið ætti að vera? Kannski fulldjúpt í árina tekið en ef litið er til frétta kemur í ljós að um 75% allra frétta eru um karlmenn. *************************************************************** 26. október Morgunverðarfundur með handhöfum Bleiku steinanna Við minnum á fundinn með handhöfum Bleiku steinanna á morgun, föstudag kl. 8 í Blómasal Hótel Loftleiða. Aðgangur er ókeypis en hægt er að kaupa sér morgunmat fyrir kr. 1500. Handhafa Bleiku steinanna í ár eru Fréttafjölmiðlar og ætla þeir að mæta á morgun og ræða sínar aðgerðir í jafnréttismálum og hvort Bleiku steinarnir hafi virkað sem hvatning. Á eftir erindum er opnað fyrir umræður. Þau sem mæta og halda erindi er eru frá eftirfarandi fjölmiðlum:
Við búumst við spennandi og skemmtilegum fundi enda eru
fjölmiðlar stór áhrifavaldur í samfélaginu. Framboðsfundur Í kvöld, fimmtudaginn 26. okt, er Bryndís Ísfold, fyrrum ráðskona Femínistafélagsins, með framboðsfund um jafnréttismál. Meðal framsögukvenna verður Katrín Anna Guðmundsdóttir talskona félagsins. Nánar um fundinn hér. Það er ánægjulegt að konur í framboði sinni jafnréttismálum og bjóðum við hér með formlega fram okkar aðstoð ef frambjóðendur vilja fá okkur á svæðið til að ræða okkar hugmyndir um hvað þingmenn og ráðherra geta gert í jafnréttismálum. Hlutfall kynjanna á þingi skiptir miklu máli. Í viðskiptum er sagt að sá sem á 51% hlut í fyrirtæki sé með meirihlutavald. Það sama á við um á þingi. Á meðan kynin eru þar ekki í sama mæli er sú rödd sem valdið hefur rödd karla. Konur eru háðar því að þau mál sem snerta okkur á annan hátt en karla hljóti samþykki karlmanna til að ná í gegn. Það gengur ekki og full ástæða til að hvetja konur til að hafa hátt! *************************************************************** 25. október Viðtöl Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir ráðskona atvinnu- og stjórnmálahóps fór í viðtal hjá Síðdegisútvarpinu í dag um konur og stjórnmál. Steinunn brilleraði að vanda. Hún benti á að það sé mikilvægt að konur tali sínu máli sjálfar, að það sé mikilvægt að kjósa konur og margt fleira skemmtilegt. Hlustaðu á viðtalið með því að smella hér. Er ekki svolítið skondið að lag Baggalúts þar sem femínistabeljan kemur við sögu var spilað strax á eftir viðtalinu? Katrín Anna Guðmundsdóttir talskona fór í viðtal í Kastljósið í kjölfar umjöllunar Kastljóss undanfarna daga á beauty bisnessnum. Hún og Heiðar snyrtir skiptust á skoðunum um áhrif óraunhæfra útlitskrafna á konur. Þau voru nú samt alveg merkilega sammála. Horfðu á viðtalið með því að smella hér. Hjálmar Sigmarsson karlahópi fór í Ísland í dag og ræddi um hinn hræðilega glæp nauðgun. Hann ræddi málið í víðu samhengi, m.a. um þegar gert er grín að nauðgunum, sbr listann sem birtist í skólablaði MH sem áttu að vera þau 11 bestu til að nauðga við. Hjálmar ræddi líka um nauðgunarmýturnar. Horfðu á viðtalið með því að smella hér. Staðalímyndahópur opnar heimasíðu með kynjuðum fréttum Staðalímyndahópur hefur opnað heimasíðu með kynjuðum fréttum. Slóðin er www.stadalryni.blogspot.com. Hægt er nálgast síðuna með því að smella á slóðina eða hnappinn hér til hliðar. Síðan verður uppfærð reglulega út Femínistavikuna og jafnvel lengur! *************************************************************** 24. október Áskorun á atvinnurekendur Í dag er liðið ár frá því að rúmlega
50.000 íslenskar konur gengu út af vinnustöðum
sínum til að vekja athygli á launamuni kynjanna og
krefjast leiðréttingar á honum. Á sama degi
voru atvinnurekendur hvattir til þess að leiðrétta
launamun kynjanna meðal starfsfólks síns. Í síðustu
viku voru birtar sláandi niðurstöður könnunar á vegum
Félagsmálaráðuneytisins. Þar kom fram
að á undanförnum 12 árum hefur hreinn kynbundinn
launamunur batnað um 0,3%, þ.e. úr 16% lægri launum í 15,7%. Í 3.
kafla jafnréttislaga nr. 96/2000 kemur fram að atvinnurekendum
sé skylt að greiða sömu laun fyrir sambærileg
störf. Miðað við að þróun launajafnréttis
verði með samsvarandi hætti í framtíðinni
reiknast okkur til að konur og karlar muni hafa jöfn laun árið 2634.
Nú þykja okkur 628 ár fulllangur tími og því skorum
við í atvinnu- og stjórnmálahópi Femínistafélags Íslands á atvinnurekendur
að framfylgja landslögum með því að bera
saman laun karla og kvenna í ykkar fyrirtæki og leiðrétta
muninn. Áskorun frá atvinnu- og stjórnmálahópi Femínistafélags Íslands Hinn 12. maí 2007 munu landsmenn kjósa til Alþingis. Stjórnmálaflokkarnir eru í óða önn að undirbúa prófkjör sín og uppstillingar. Ástæða þykir til að vekja athygli á því að enn er hlutur kvenna á þingi of lítill. Af þeim sökum vill atvinnu- og stjórnmálahópur Femínistafélags Íslands koma eftirfarandi áskorunum á framfæri.
Konur eru helmingur þjóðarinnar. Okkar lýðræðislega kosna Alþingi skal endurspegla það. Við skorum á ykkur öll að leggja ykkar af mörkum!
|
|
|||
|
|||||