24. nóvember

Föstudaginn 24. nóvember sendur UNIFEM á Íslandi fyrir árlegum morgunverðarfundi sínum á Hótel Loftleiðum kl. 8:15 – 9:30. Yfirskrift fundarins í ár er Kynjuð friðaruppbygging: UNIFEM og friðargæsla.

Aðalfyrirlesari fundarins verður Bjarney Friðriksdóttir, mannréttindafræðingur, sem flytur erindi um mikilvægi kynjasjónarmiða við friðaruppbyggingu, ályktun 1325 og reynslu sína sem starfsmaður Íslensku friðargæslunnar við verkefni UNIFEM á Balkanskaga á árunum 2003 til 2006. Bjarney kemur einnig til með að ræða hlutverk íslenskra stjórnvalda í verkefnum UNIFEM á Balkanskaga og aðkomu UNIFEM á Íslandi að þeim.

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Ásdís Halla Bragadóttir verndari UNIFEM á Íslandi munu einnig ávarpa fundinn.

**************

UNIFEM á Íslandi stendur einnig fyrir málþingi í Háskólanum á Akureyri föstudaginn 24. nóvember kl. 14:00. Yfirskrift málþingsins er Kynjuð friðaruppbygging: UNIFEM og friðargæsla.

Á málþinginu mun Bjarney Friðriksdóttir, mannréttindafræðingur, flytja erindi um mikilvægi kynjasjónarmiða við friðaruppbyggingu, ályktun 1325 og reynslu sína sem starfsmaður Íslensku friðargæslunnar við verkefni UNIFEM á Balkanskaga. Þá flytur Hreiðar Eiríksson, fyrrum starfsmaður Ríkislögreglustjóra í friðargæslu Sameinuðu þjóðanna í Bosníu, erindi um mansal á Balkanskaga. Einnig mun Sjöfn Vilhelmsdóttir, framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi, kynna helstu áherslur í starfi UNIFEM. Að lokum ávarpar Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, fundinn.

Málþingið er haldið í stofu L201 og stendur frá kl. 14:00 – 16:00. Það er opið öllum og aðgangur er ókeypis.

25. nóvember Alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum

Frá konum til karla, málþing í Tjarnarbíói 25.nóv. kl. 12 – 19

Stígamót, Bríet og Karlahópur femínistafélagsins munu halda tvö málþing í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi í Tjarnarbíói 25. Nóvember 2006.


kl 12:00-13:30 „Þær sem ekki passa sig þær eru sekar”

Konur hlaða táknræna steinvörðu – takið með steina!

kl 14:00-16:00 Málþing um ábyrgð karla í umræðunni um kynferðisofbeldi

kl 16:00-16:30 Tekið þátt í mótmælastöðu við Héraðsdóm Reykjavíkur.

Þrammað verður að Héraðsdómi Reykjavíkur við Lækjartorg þar sem þögul mótmæli eru í gangi vegna lélegrar nýtingar á refsiramma laganna gagnvart nauðgurum.

kl 17:00-19:00 Lokaspjall

Að mótmælastöðunni lokinni er fólki boðið aftur upp í Tjarnarbíó þar sem samantekt verður gerð á málþingunum tveimur.

Boðið verður upp á veitingar og ljúfa tóna frá trúabdorunum Lay Low og Þóri

„Þær sem ekki passa sig þær eru sekar” 12:00 til 13:30


Á málþinginu um sektarkennd kvenna verður leitast við að skilgreina sektina, hvaðan hún kemur og hvaða áhrif hún hefur á þau sem verða fyrir kynferðisofbeldi. Þá fáum við einnig innsýn í persónulega upplifun af sektinni og baráttunni við ásakanirnar. Að lokum munum við afsala okkur ábyrgðinni og setja ábyrgðina þar sem hún á heima, hjá ofbeldismönnunum.

Fyrirlesarar:
Upphafsræða Kristbjörg Kristjánsdóttir starfskona Stígamóta

Sekt kvenna Þórunn Þórarinsdóttir starfskona Stígamóta

Reynslusaga Thelma Ásdísardóttir Starfskona Stígamóta og Kvennaathvarfsins

Hver er ávinningur sektar? Sæunn Kjartansdóttir Sálgreinir og rithöfundur


Pallborð munu skipa þær Svanhvít Eygló Ingólfsdóttir, lögreglufulltrúi og tilvonandi

starfsmaður kynferðisafbrotadeildar.

Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari hjá Ríkissaksóknara

Kolbrún Halldórsdóttir þingkona Vinstri grænna

Stígamót Thelma Ásdísardóttir starfskona Stígamóta og Kvennaathvarfsins


Fundarstjóri Hugrún Hjaltadóttir Jafnréttisstofu


Við biðjum allar konur um að taka með sér stein á málþingið sem tákn um þá órökréttu skömm og sektarkennd sem konur hafa burðast með. Í lok málþingsins munum við létta af okkur birgðunum og hlaða úr steinunum vörðu sem mun standa sem minnismerki á málþingi um ábyrgð karla.


Málþing um ábyrgð karla í umræðunni um kynferðisofbeldi 14:00 til 16:00

Á málþingi um ábyrgð karla verður leitast við að svara hver ábyrgð karla er í umræðunni um kynferðisofbeldi, hvernig karlar geta tekið þátt í henni og haft áhrif á hana.

Fyrirlestrar
Upphafsræða Gísli Hrafn Atlason Ráðskona karlahóps FÍ

Lagabreytingar Ágúst Ólafur Ágústsson Þingmaður

Jafnréttisumræða Ingólfur Á. Jóhannesson Prófessor HA

Brotamenn Þórarinn V. Hjaltason sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun


Pallborð
Björn Ingi Hilmarsson Meðlimur í V-dags samtökunum

Ragnar Rael Ágústsson Meðlimur í ungliðahópi FÍ

Einar Skúlason Framkvæmdarstjóri Alþjóðahúss


Fundarstjóri Hjálmar G. Sigmarsson karlahópi Femínistafélagsins.

Mótmælastaða vegna vægra dóma yfir kynferðisbrotamönnum -við Héraðsdóm Reykjavíkur á Lækjartorgi og héraðsdómstólana á Akureyri, Ísafirði, Selfossi og Egilsstöðum kl. 16:00

Laugardaginn 25. nóvember verður þögul hópstaða kl. 16.00 fyrir framan Héraðsdóm Reykjavíkur á Lækjartorgi, sem og héraðsdómstólana á Akureyri, Ísafirði, Selfossi og Egilsstöðum. Tilgangur kröfufundarins er að lýsa yfir áhyggjum yfir dómum, sem fallið hafa í nauðgunarmálum á undanförnum árum, en margir telja þá vera langt innan leyfilegs refsiramma fyrir slíka skelfilega glæpi.

Send hefur verður áskorun til Allsherjarnefndar Alþingis, sem hefur til umfjöllunar frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á kynferðisafbrotakafla almennra hegningarlaga. Áskorunin lýtur að því að Allsherjarnefnd setji í nefndarálit sitt hvatningu til dómstóla landsins að nýta þá refsiramma sem löggjafinn hefur ákveðið að eigi að gilda í nauðgunarmálum, en ljóst er að refsiramminn fyrir nauðgun (1-16 ára fangelsi) er einungis nýttur að verulega litlu leyti og eru flestir sakfellingardómar fyrir nauðgun við lægri mörk refsirammans. Í ljósi alvarleika nauðgunar er réttlætiskennd almennings misboðið og eru allir þeir sem vilja sjá réttlátari og sanngjarnari dóma fyrir nauðganir hvattir til að mæta fyrir framan héraðsdómstólana þennan dag.

Á Lækjartorgi syngja félagar úr kvennakórnum Vox Feminae og Stúlknakór Reykjavíkur ásamt félögum úr karlakórnum Fóstbræður.

Áskorun Zontasambands Íslands til ljósvakamiðla þar sem þeir eru hvattir til að vanda val á kvikmyndum og hætta að sýna myndir sem snúast um kynbundið ofbeldi gagnvart konum

27. nóvember

Afbrotið nauðgun

Hádegisfundur Mannréttindaskrifstofu Íslands, Þjóðmenningarhúsi, Hringborðsstofu, kl. 12:15-13:00 Afbrotið nauðgun, Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir kynnir meistararitgerð sína Nauðgun frá sjónarhorni kvennaréttar. Ritgerðin er því á mörkum tveggja fræðisviða, annars vegar refsiréttar og hins vegar kvennaréttar. Meginefni ritgerðarinnar er tvíþætt. Annars vegar er leitast við að svara því hvað felst í afbrotinu nauðgun í lagalegri merkingu, en einnig er kannað að hvaða marki þolendur líta nauðgun öðrum augum en löggjafinn. Hins vegar er fjallað um hvort ástæða sé til að endurskoða skilgreiningu löggjafans á hugtakinu nauðgun.

Að loknu erindi er gefið tóm til fyrirspurna og umræðna. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.


29. nóvember

Morgunverðarfundur: Ofbeldi á heimilum

Fræðslunefnd Stéttarfélags íslenskra félagsráðgjafa stendur fyrir opnum fundi á Grand Hótel miðvikudaginn 29. nóvember kl. 8:15-10.

Fundurinn er haldinn í samvinnu við Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi sem margir hópar og félagasamtök standa að.

Dagskrá:

Kynbundið ofbeldi; Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf.
Heimili í herkví; Jenný Steingrímsdóttir og Ólafur Guðmundsson, foreldrar tveggja geðfatlaðra drengja.
,,Aungvir gráta jafn sárt". Ofbeldi gegn öldruðum; Kristjana Sigmundsdóttir, félagsráðgjafi í Útskrifta- og öldrunarteymi LSH.

Skráning á morgunverðarfundinn er hjá Margréti Jónsdóttur, gjaldkera fræðslunefndar á netfanginu: margret.sigrun.jonsdottir@reykjavik.is. Hægt er að greiða beint inn á reikning nefndarinnar á nr.1158-26-060212, kt.430775-0229, kr. 2.500. Takið daginn frá og skráið ykkur sem fyrst!

30. nóvember



Stórtónleikar Jafningjafræðslu Hins hússins í tilefni af því að átakinu ,,Nóvember gegn nauðgunum” lýkur.

Þekktar hljómsveitir s.s. Reykjavík koma fram frá 20:00 til 22:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur. Frítt er á tónleikana og Jafningjafræðslan hvetur fólk til að mæta og sýna að það lætur sig málefnið varða

1. desember Alþjóðlegi alnæmisdagurinn

Mannréttindi, ungar konur og alnæmi í Uganda

Opinn fræðslufundur á vegum Alnæmisbarna í samstarfi við Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi.

Haldinn föstudaginn 1. des. 2006 kl. 20 - 22 á Kaffi Viktor, Hafnarstræti 1-3, á annarri hæð. Hægt verður að kaupa kaffi eða aðrar veitingar á staðnum.

Dagskrá:

Kl. 20 – 21 Fyrirlestur og umræður um starf með ungum stúlkum sem hafa orðið fyrir barðinu á alnæmi í Uganda; Sigríður Baldursdóttir, mannfræðingur og mastersnemi í Stokkhólmi segir frá niðurstöðum rannsóknar sinnar og sýnir myndir. Hún dvaldi í 5 vikur á þessu ári hjá Candle Light Foundation í Uganda sem Alnæmisbörn styrkja.

Kl. 21 - 21:20 Kaffi.

Kl. 21:20 – 22 Fyrirlestur um möguleika á stofnun verkmenntaskóla fyrir ungar, alnæmishrjáðar stúlkur í Uganda; Gestur Gíslason og María J. Gunnarsdóttir segja frá niðurstöðum funda í Uganda 14. - 20. nóv.

Opið hús hjá Alnæmissamtökunum á Íslandi milli kl. 16.00-19.00, að Hverfisgötu 69. Boðið upp á kaffi og meðlæti.

Kl. 17.00 mun Margrét Pálmadóttir mæta með eðallið og taka lagið. Allir hiv-jákvæðir, vinir og velunnarar velkomnir

Endilega takið kvöldið frá! Kær kveðja, Stjórn Alnæmisbarna

2. desember

It’s in our Hands og Lives Blown Apart

Kvikmyndasýning
Aðgerðahópur hjá Amnesty International heldur sýningu á stuttmyndunum It’s in our Hands og Lives Blown Apart á þriðju hæð Alþjóðahússins kl. 20. Umræður verða að sýningu lokinni.

4. desember

Tengsl kynferðislegs ofbeldis og heimilisofbeldis seinna á ævinni

Kvennaathvarf stendur fyrir kynningu á nýrri rannsókn í stofu Jóns Sigurðssonar í Þjóðmenningarhúsi, kl. 12:15 - 13:00.

5. desember

Fyrirlestur Dorit Otzen, ”Hið blinda auga lýðræðisins”

Stígamót bjóða upp á fyrirlestur í Norræna húsinu kl. 17 þar sem Dorits Otzen, framkvæmdastýra Hreiðursins í Kaupmannahöfn, fjallar um ”Hið blinda auga lýðræðisins” Útgangspunkturinn eru ýmsar rannsóknir síðustu 25 ára á kaupendum vændis á Norðurlöndunum. Fyrirlesturinn verður á ensku.

Dorit mun einnig, ásamt Stígamótakonum, heimsækja allsherjarnefnd og tala um vændi.

7. desember

Hvert er umfang kynferðislegs ofbeldis á börnum á Netinu á Íslandi?

Barnaheill – Save the Children á Íslandi stendur fyrir hádegisfundi í Kornhlöðunni (Lækjarbrekka) um kynferðislegt ofbeldi á börnum á Netinu þann 7. desember kl. 12.00. Boðið verður upp á veitingar.

Fundurinn er öllum opinn en það er takmarkaður sætafjöldi. Skráning: raningvars@barnaheill.is

Rosita Kvikmyndasýning

Mannréttindaskrifstofa Íslands sýnir þekkta heimildamynd um kynferðisofbeldi í Rómönsku Ameríku . Fylgst er með hinni 9 ára Rositu sem verður þunguð í kjölfar nauðgunar og þeim áleitnu spurningum sem samfélagið þarf að svara í kjölfarið varðandi réttindi barnsins, fóstureyðingar, kynferðisbrot og kaþólskuna.

Að lokinni sýningu myndarinnar gefst tóm til umræðna. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.

8. desember

Tíðni heimilisofbeldis meðal íslenskra kvenna Erla Kolbrún Svavarsdóttir, dósent við Hjúkrunarfræðideild HÍ kynnir nýja rannsókn.

Hádegisfundur Mannréttindaskrifstofu Íslands, Þjóðmenningarhúsi, Hringborðsstofu, kl. 12:15-13:00

Að loknu erindi verður gefið tóm til fyrirspurna og umræðna. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.

10. desember Alþjóðlegi mannréttindadagurinn

Bréfmaraþon
Bréfamaraþon Íslandsdeildar Amnesty International verður haldið í hliðarsal Hornsins, Hafnarstræti 15 kl. 12-18. Gestum býðst tækifæri til að skrifa jólakort til þolenda kynbundins ofbeldis í Kongó, Guatemala, Zimbabwe og Darfur-héraði í Súdan.

Jólatónleikar
Jólatónleikar Amnesty International verða haldnir í Neskirkju við Hagatorg kl. 20. Meðal flytjenda eru Kolbeinn Bjarnason flautuleikari, Auður Gunnarsdóttir sópran, Helga Þórarinsdóttir víóluleikari, Einar Jóhannesson klarínettuleikari og KK og Ellen