|
Árið 2006
Femínistar
setja lit á tilveruna |
 |
Ljósberi ársins
Gísli Hrafn Atlason, ráðskona
karlahóps
Femínistafélagsins var valinn Ljósberi ársins
2006. Í umsögn frá samstarfshópi
Ljósbera sagði meðal annars:
"Að mati samstarfshópsins hefur Gísli
Hrafn sýnt frumkvæði, djörfung og baráttuanda í umræðum
og verið í forsvari í því að virkja
karlmenn til ábyrgðar gegn kynbundnu ofbeldi í samfélaginu." |
 |
Frá konum til karla
16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi var frá 25. nóvember
til 10. desember. Á fjórða tug samtaka tóku þátt árið 2006.
Karlahópur Femínistafélagsins stóð fyrir málþinginu "Frá konum
til karla" ásamt Stígamótum og Bríeti. Á málþingi karlahóps
voru fyrirlesarar þeir Gísli Hrafn Atlason, Ágúst Ólafur Ágústsson,
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson og Þórarinn
V. Hjaltason. |
 |
Pistlar kvenna í framboði
Við söfnuðum saman nokkrum stórgóðum pistlum frá konum í
framboði í prófkjöri fyrir komandi alþingiskosningar. |
 |
Stjórnmálaskóli
Ungliðahópurinn stóð fyrir stjórnmálaskóla sem lukkaðist
svona líka ljómandi vel. Stjórnmálaskólinn var aðeins opinn
konum að þessu sinni, enda markmiðið að auka hlut kvenna í
stjórnmálum. Það er þó aldrei að vita nema við höldum seinna
stjórnmálaskóla fyrir bæði kyn þar sem farið er yfir jafnrétti
og pólitík. |
 |
Femínistavikan
Femínistavikan var haldin með pompi og
prakt 24. - 28. október. Í vikunni héldum við fund með fréttafjölmiðlum,
sem eru handhafar bleiku steinanna í ár. Staðalímyndahópur
opnaði heimasíðu
með kynjuðum fréttum, sendar voru ályktanir
til atvinnurekenda og stjórnmálamanna ásamt mörgu fleiru skemmtilegu. |
 |
Sorgarfánar
Ungliðahópurinn flaggaði sorgarfánum í Bankastræti
miðvikudaginn 13. september.
Hver fáni stóð fyrir ákveðnu
málefni - þau eru: nauðganir,
heimilisofbeldi,
launamisrétti,
þöggun,
klámvæðing,
vændi,
mansal,
klám,
valdaleysi,
staðalímyndir,
ósýnileiki og
strippbúllur. |

Að sjálfsögðu máluðum við bæinn bleikan með öðrum félagasamtökum
þann 19. júní. Við veittum einnig fréttafjölmiðlum bleika
steinann þennan dag og hvöttum þá til að gæta jafnréttis
í öllu sínu starfi. |
 |
Femínistafélagið fær jafnréttisverðlaun
Reykjavíkurborg veitti jafnréttisverðlaun
í fyrsta sinn þann 1. maí. Femínistafélagið hlaut verðlaunin
að þessu sinni og erum við að sjálfsögðu bæði ánægð og stolt
með það! |
Stjórnmálavefir
Við settum upp nokkra
vefi tengdum stjórnmálum og frambjóðendum á árinu. Við byrjuðum
á að senda spurningar til frambjóðenda í prófkjöri Samfylkingarinnar
fyrir sveitarstjórnarkosningar í Reykjavík. Við settum síðan
upp kosningavef með svörum frá öllum flokkum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar
og söfnuðum saman pistlum kvenna í framboði fyrir komandi alþingiskosninar.
Smelltu á myndirnar hér fyrir neðan til að skoða spurningar,
svör og pistla. |
 |
 |
Úr ýmsum áttum
Hittin voru á sínum stað á árinu. Við sendum
frá okkur ýmsar ályktanir - sem tóku á málefnum eins og vændi,
launamismun, hlut kvenna í stjórnmálum, Konukot, stuðningi
við setuverkfallskonur og fleira. Við tókum líka þátt í Megrunarlausadeginum,
sendum frá okkur ályktun á 1. maí og skrifuðum umsagnir. |