<%@LANGUAGE="JAVASCRIPT" CODEPAGE="1252"%> Femínistafélag Íslands

Það er mikil gróska í grasrótinni og bleikir aðgerðahópar spretta upp um allt. Á 19.júní fengum við að kynnast bleiku skæruliðunum (pink gorillas) og nú gengur um póstur frá bleika foreldrinu (pink parent).

Ástæða aðgerða bleika foreldrisins eru ummæli þessara ágætu leikkvenna í tímariti Morgunblaðsins, 19.júní 2005, þar sem þær ala á staðalímyndinni um fúla, bitra, húmorslausa femínista, í annars vel femínísku viðtali.

Hér er brot :

Gulla: Ég hef ekki stúderað femínisma sem slíkan, en þekki að sjálfsögðu kröfuna um jafnan rétt og að konur njóti sömu launakjara og karlar. Ég viðurkenni hins vegar að þegar ég lendi í samræðum við fólk og viðra mínar skoðanir, leiðist mér óskaplega þegar þeim er pakkað inn og sagt við mig: Þú ert greinilega bara svona mikill femínisti. Ég lýsi mínum skoðunum en nenni ekki að láta stinga þeim ofan í skúffu sem heyrir undir tiltekna skilgreiningu. Þínar skoðanir falla undir þennan hatt, gjörðu svo vel.

Edda: Hvað er að vera femínisti? Maður sér fyrir sér konur í hópi með spjöld, ofsalega bitrar, reiðar og fúlar.

Gulla: Já, kannski er það málið. Maður tengir femínisma við rauðsokkur og fúlar konur með mótmælaspjöld. En það er leiðinlegt að sú mynd skuli strax koma upp í kollinn á manni.

Svo mörg voru þau orð. Nú er bara að vona að þær séu sjálfar með húmorinn í lagi og að fólk hætti að gera lítið úr skoðunum þeirra með því að kalla þær femínista.



Pink Parent mótmælir Snoop Dog.