![]() |
||||||||
| Ræða: Kristrún Björg Loftsdóttir og Marín Þórsdóttir | |
|||||||
Ágæta samkoma, til hamingju með daginn Við berum blendnar
tilfinningar til dagsins í dag. Annars vegar er stórkostlegt
að sjá hversu mikil samstaða er í þjóðfélaginu.
Samstaða um að gera betur og leiðrétta þann mismun
sem finnst í samfélaginu. Hinsvegar eru það vonbrigði
að þrjátíu árum eftir kvennafrídaginn
1975 er enn full ástæða til að fjölmenna á
útifundi og benda á þá staðreynd að
jafnrétti hefur enn ekki verið náð. Enn í
dag þurfum við að leggja niður störf til að
vekja athygli á mikilvægi vinnuframlags kvenna fyrir atvinnulíf
og samfélag. Stjórnvöld verða að axla meiri ábyrgð í framgangi jafnréttismála. Fleiri konur eru á atvinnuleysisskrá en karlar. Stjórnvöld verða að taka tillit til sjónarmiða og þarfa beggja kynja þegar bregðast skal við samdrætti og atvinnuleysi í byggðum landsins. Verkalýðshreyfingin hefur ávallt lagt mikla áherslu á mikilvægi samstöðunnar í baráttunni fyrir mannsæmandi lífskjörum, fyrir mannréttindum og fyrir því að geta lifað með reisn í samfélaginu. Jafnrétti snýst um mannréttinndi. Það þarf samstöðu allra, kvenna og karla, í baráttunni fyrir jafnrétti. Það er samstöðu og baráttu verkalýðsfélaganna og hinna ýmsu kvennréttindahreyfinga að þakka að við þokumst í rétta átt – þrátt fyrir, að hægt miði. Við hvetjum ungar
konur og ungu kynslóðina til að taka virkan þátt
í starfi stéttarfélaganna og kvennasamtakanna við
að bera kyndil jafnréttisins áfram. |
||||||||
| Myndskeið úr ræðunni | ||||||||
|
||||||||
![]() |
||||||||
![]() |
||||||||