Hvers vegna kvennafrí? Icelandic Vietnamese Spanish Polish Serbian German Arabic English
  • Atvinnutekjur kvenna eru aðeins 64,15% af atvinnutekjum karla.
  • Konur eru með 72% af launum karla fyrir jafnlangan vinnutíma.
  • Barneignir hafa neikvæð áhrif á laun kvenna en jákvæð áhrif á laun karla.
  • Margar konur búa við öryggisleysi og ógn á heimilum sínum.
  • Ein af hverjum þremur konum verður fyrir kynbundnu ofbeldi á lífsleiðinni.
  • Konur uppskera ekki í samræmi við menntun sína.
  • Konur í fyrirtækjarekstri hafa verri aðgang að fjármagni.
  • Ábyrgð á umönnun barna og heimilisstörfum er enn að mestu á höndum kvenna.
  • Umönnunarstörf eru með lægst launuðu störfum á vinnumarkaði.
  • Rödd kvenna er veik í fjölmiðlum.
  • Litið er á líkama kvenna sem söluvöru.
  • Kona hefur aldrei verið forsætisráðherra, bankastjóri eða biskup.
  • Konur hafa aldrei verið helmingur þingmanna.Konur njóta ekki jafnréttis á við karla.
  • Þessu þarf að breyta. Ég þori, get og vil!