Vefhópurinn sér um femínistapóstlistann og Femínistaspjallið. Einnig gefur hópurinn út reglulega fréttabréf og sendir út tilkynningar um viðburði og fundi.
Vefhópur sér einnig um femínistavefinn og reynir að fá þar sem mest af upplýsingaefni fyrir femínista. Þar eru bæði greinar, myndir, hljóðskrár og vídeóklipp.
Vefhópur hefur reynt að auka netumræðu og virkni femínista og umræður um femínisk málefni á spjallborðum.
Við leitum eftir áhugasömu fólki í vefhópinn!
Sérstaklega þætti okkur vænt um að komast í samband við fólk útá landsbyggðinni sem gæti sent okkur myndir og annað efni af femínískum aðgerðum í þeirra bæjarfélagi.
Elísabet Ronaldsdóttir er ráðskona vefhóps. Hægt er að hafa samband við hana í síma 8218804 og á betar@cutandpaste.is
Femínistapóstlistinn
Femínistapóstlistinn
er bara opinn fyrir áskrifendur. Fólk getur sjálft skráð
sig á femínistapóstlistann. Meira
um póstlistann->
Femínistaspjallið
Femínistaspjallið
er opið til lestrar fyrir alla og innskráðir geta póstað
innlegg. Fólk getur sjálf
skráð sig á femínistaspjallið.
Fréttabréfið
Áskrifendum
að fréttabréfinu hefur farið jafnt og þétt
fjölgandi en þeir eru núna 962. Fólk getur sjálft
skráð sig á eða af fréttabréfslistanum.
Vefur félagsins
Vefur félagsins er uppfærður reglulega. Á vefnum eru
á annað hundrað vefsíður og mörg hundruð
myndir.
Viðburðadagatal
Færðir eru inn viðburðir um málefni sem tengjast
félaginu og jafnréttismálum almennt. Hver og er getur
skráð viðburði með að smella á nafn dags.
Pósthólf
Vefhópur hefur séð um að vakta póst til félagsins
og sendir áfram og sér um að bæta nýjum félögum
á fréttabréfslista.
Reglur fyrir femínistapóstlistann
Sömu reglur gilda um femínistaspjallið!
Markmið með póstlista oFemínistafélags Íslands er að vera vettvangur femínista til að ræða jafnrétti kynjanna og skoðanaskipta um hvaða leiðir eru vænlegastar til árangurs í jafnréttisbaráttunni.
Póstlistinn hefur þann tilgang að efla samstöðu og samtakamátt femínista.
Innan femínismans eru mismunandi straumar og stefnur sem eiga jafnan tilverurétt. Andfemíniskar umræður eiga hins vegar ekki heima á listanum og áskilur ráð Femínistafélags Íslands sér rétt til að afskrá þátttakendur á listanum sem senda inn slíkan póst.
Ráðið beinir jafnframt þeim tilmælum til þátttakenda að virða eftirfarandi:
1. Ég mun nota umræðuþráðinn eingöngu
fyrir feminísk málefni.
2. Ég mun ekki nota þráðinn fyrir auglýsingar
eða tilkynningar sem ekki tengjast femínisma.
3. Ég mun sýna þátttakendum á listanum virðingu.
4. Ég mun orða innlegg á málefnalegan og kurteisan
hátt.
5. Ég mun virða rétt annarra til að hafa aðrar femíniskar
skoðanir á málefnum heldur en ég.
6. Ég mun ekki nota blótsyrði eða senda öðrum
þátttakendum á listanum háðsglósur.
7. Ég mun skrifa fullt nafn undir innlegg á listann.
8. Ég mun ekki áframsenda eða birta innlegg sem berast á
listann annarsstaðar án leyfis höfundar.
Virðingarfyllst,
Ráð Femínistafélags Íslands
í byrjun maí 2003
Athugið að allar sömu reglur gilda um femínistaspjallið og um femínistapóstlistann nema varðandi að gefa upp fullt nafn. Ekki er amast við því að fólk noti einhver stuttnefni á vefspjallinu enda er það opið fyrir alla.