Karlmenn segja NEI við nauðgunum 
Miðvikudaginn 27. júlí, klukkan 16:00 halda Karlahópur Femínistafélags Íslands og V-dags samtökin sameiginlegan blaðamannafund á leiksvæðinu í Hljómskálagarðinum (á horni Sóleyjargötu og Hringbrautar).
Á fundinum verður átaki karlahópsins ,,Karlmenn segja NEI við nauðgunum” ýtt úr vör með grillveislu. Þá munu karlahópurinn og V-dags samtökin, sem einnig standa fyrir átaki gegn nauðgunum nú fyrir verslunarmannahelgina, kynna stefnu sína og baráttumál.
Þetta er í fimmta sinn sem karlahópur Femínistafélagsins stendur fyrir slíku átaki. Eins og áður er markmið átaksins að virkja karlmenn í baráttunni gegn nauðgunum og fá þá til að staldra við og velta fyrir sér hvað þeir geti gert til að koma í veg fyrir nauðganir. Til að ná árangri í baráttunni gegn nauðgunum er nauðsynlegt að karlar taki skýra afstöðu og sýni afstöðu sína í verki.
Eins og áður verða fulltrúar karlahópsins á helstu brottfararstöðum ferðamanna um verslunarmannahelgina. Jafnframt því að spjalla við karla um þessi mál munu meðlimir hópsins dreifa barmmerkjum, frisbídiskum og bæklingum með upplýsingum um eðli og alvarleika nauðgana.
Styrktaraðilar átaks karlahópsins að þessu sinni eru Félagsmálaráðuneytið, Heilbrigðismálaráðuneytið, Hvíta húsið, Jafnréttisnefnd Kópavogavogsbæjar, Lýðheilsustöð og Reykjavíkurborg.
Nánari upplýsingar veita: Arnar Gíslason (s: 691 9126, ag86@sussex.ac.uk), Hjálmar Gunnar Sigmarsson (s:694 4799, hjalmarg@gmail.com) og Gísli Hrafn Atlason (s: 846 8509, gislihrafn@simnet.is).
Karlahópur Femínistafélagsins stendur
nú þriðja árið í röð fyrir aðgerðum
í kringum verslunarmannahelgina til að efla samstöðu karlmanna
gegn nauðgunum. Dreift verður plakötum, bolum og barmmerkjum
með slagorðinu "karlmenn segja NEI við nauðgunum".
Félagar í karlahóp Femínistafélagsins mundu
standa fyrir utan áfengisverslanir á fimmtudaginn 28.júlí
og á föstudaginn 29.júlí verða þeir við
BSÍ, Reykjavíkurflugvelli, Þorlákshöfn auk
fleiri staða þar sem umferð verður vegna verslunarmannahelgarinnar.
Átakið er styrkt af Félagsmálaráðuneyti, Heilbrigðisráðuneyti, Reykjavíkurborg, Lýðheilsustöð, Jafnréttisnefnd Kópavogsbæjar og Hvíta Húsið auglýsingastofa.
Allir sem áhuga hafa er velkomið að hafa samband og taka þátt, öll aðstoð er að sjálfsögðu vel þegin.
Nánari upplýsingar veita Gísli Hrafn Atlason (846 8509) og
Hjálmar Sigmarsson (694 4799)


Í karlahópnum starfa bæði konur og karlar. Hópurinn einbeitir sér að þeim hliðum femínismans sem snerta karla sérstaklega. Eitt af markmiðum okkar er að kynna körlum hugmyndafræði femínisma og að virkja þá til þátttöku í jafnréttisbaráttunni.
Karlar hafa lengi verið á hliðarlínunni í þeirri baráttu en við lítum svo á að nauðsynlegt sé að bæði kyn taki höndum saman til að raunverulegt jafnrétti kynjanna geti orðið að veruleika. Mikilvægur hluti af þessu markmiði er að karlar verði sýnilegri í jafnréttisbaráttunni en áður hefur verið.
Ímynd karlmannsins og hugmyndir um karlmennsku eru einnig viðfangsefni hópsins. Við höfum staðið fyrir Karlmennskukvöldi, þar sem 4 fyrirlesarar fluttu erindi á öldurhúsinu GrandRokk um karlmennsku í hernum; karla og vændi; karlmennsku í auglýsingum; og karla og húmor. Einnig stóð hópurinn fyrir Fyrirmyndakvöldi í Femínistavikunni, sömuleiðis á GrandRokk, þar sem 5 þjóðkunnir karlar ræddu um fyrirmyndir sínar í æsku og um fyrirmyndir dagsins í dag. Samhliða þessu var Fyrirmyndaritið gefið út, en þar ræða 7 karlar úr ýmsum áttum um fyrirmyndir sínar.
Sumarið 2003 stóð hópurinn fyrir átaki gegn nauðgunum í samstarfi við Ofbeldisvarnarhóp (nú Öryggisráð). Hugmyndin var að vekja upp umræðu um nauðganir og að fá karla sem kyn til að beita sér gegn nauðgunum, enda lítum við á nauðganir sem vandamál samfélagsins en ekki einkamál þess sem nauðgar og þess sem er nauðgað. Hópurinn fór í þessu skyni á Flugstöð Reykjavíkur og BSÍ þar sem við dreifðum frisbeediskum til ferðalanga á leið á útihátíðir. Á diskunum stóð: „Nauðgar vinur þinn?“ og var með því vísað til samábyrgðar karla og þeirra möguleika sem hver og einn hefur til að koma í veg fyrir nauðganir.
Þessa daganna eru fulltrúar úr karlahópnum, í samstarfi við fræðsluhóp og Öryggisráð félagsins, að vinna að fræðsluverkefni um femínisma og kynímyndir í grunnskólum Reykjavíkur. Verkefnið hefur verið reynt í Réttarholtsskóla og voru undirtektir ákaflega jákvæðar og greinilegt að krakkar á þessum aldri, bæði strákar og stelpur, hafa töluverða þörf fyrir að ræða þessi mál. Nú stendur til að þróa verkefnið enn frekar og fara í fleiri skóla til að ræða við unglinga.
Næst á döfinni hjá hópnum er að halda kvöld um stöðu karla
sem foreldra og einnig er í bígerð þemakvöld um karlmennsku í bókmenntum,
tónlist og kvikmyndum. Loks er fyrirhugað að halda áfram með átakið Nauðgar
vinur þinn?, enda mikilvægt að umræða um nauðganir
einskorðist ekki við Verslunarmannahelgina né við unga karlmenn.
Karlahópur Femínistafélagsins sá
um Hittið 3. febrúar 2004.
Efni kvöldsins var börnin og
nýju barnalögin,
PABBAKVÖLD
Karlahópur Feministafélags Íslands stóð fyrir umræðufundi, PABBAKVÖLDI, á
GrandRokk, miðvikudaginn 28. janúar 2004
Hægt er að fá nánari upplýsingar um hópinn með því að hafa samband við Gísla (gislihrafn@tiscali.dk) eða Arnar (elvis@hi.is).
Síðast uppfært
27-jul-05
Elísabet Ronaldsdóttir
Karlahópur Femínistafélagsins stóð fyrir átakinu "Karlmenn segja NEI við nauðgunum" í apríl 2004.
Sumarið 2003 stóð hópurinn fyrir átaki gegn nauðgunum í samstarfi við Ofbeldisvarnarhóp (nú Öryggisráð).
Karlahópur stendur fyrir fræðslu um femínisma og kynímyndir í skólum.
Í femínistavikunni í október 2004 hélt karlahópur fyrirmyndakvöld á Grand Rokk.
Karlahópur skipulagði Hitt á Sólón í febrúar 2004. Efnið var börnin og nýju barnalögin.
Karlahópur stóð fyrir umræðufundi "Pabbakvöldi´" á Grand Rokk í janúar 2004.