Karlahópur
Femínistafélags Íslands




Myndir frá átaki Karlahóps við Ríkið í Austurstræti 23. apríl

Hlusta á viðtal á dægurmálaútvarpi RÚV Rás 1 23. apríl

Um verslunarmannahelgina stendur karlahópur Femínistafélagsins fyrir átakinu Karlmenn segja NEI við nauðgunum. Þetta er í þriðja sinn sem hópurinn fer af stað með átak gegn nauðgunum og eins og í fyrri skiptin er áherslan á hlutverk karlmanna í baráttunni gegn nauðgunum og þá möguleika sem karlmenn hafa til að koma í veg fyrir nauðganir.

Að þessu sinni verðum við á Umferðarmiðstöðinni, Flugstöð Reykjavíkur og í Þorlákshöfn þar sem Herjólfur leggur úr landi. Á þessum stöðum munum við ræða við karlmenn á leið á útihátíðir og dreifa barmmerkjum og bæklingum, ásamt því sem við verðum með frisbee-diska og boli með merki átaksins til sölu.

Það eru Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar, Jafnréttisnefnd Kópavogsbæjar og Hvíta Húsið auglýsingastofa sem styrkja átakið.

Frekari upplýsingar má nálgast hjá Arnari Gíslasyni (arnargi@hi.is, s.
691-9126) og Hjálmari Sigmarssyni (hjalmas@hi.is, s. 694-4799).

 

Karlmenn segja NEI við nauðgunum
Fréttatilkynning frá Karlahópi Femínistafélags Íslands:

Vikuna 19. til 23. apríl  2004 stendur Karlahópur Femínistafélags Íslands fyrir átakinu Karlmenn segja NEI við nauðgunum í samstarfi við Öryggisráð félagsins. Þetta er framhald átaksins Nauðgar vinur þinn? sem hópurinn stóð fyrir um síðustu Verslunarmannahelgi.
Líkt og í fyrra skiptið beinum við skilaboðum okkar til karlmanna.

Átakinu verður formlega hleypt af stokkunum á blaðamannafundi mánudaginn 19. apríl. Á fundinum verða fulltrúar Karlahópsins og Öryggisráðsins ásamt Þórólfi Árnasyni borgarstjóra, Hildi Jónsdóttur jafnréttisráðgjafa Reykjavíkurborgar og Hildi Björg Hafstein verkefnisstjóra Lýðheilsustöðvar. Fundurinn verður á skrifstofu borgarstjóra í Ráðhúsinu og hefst hann kl. 13.45.

Það eru Hvíta Húsið auglýsingastofa, Lýðheilsustöð og Reykjavíkurborg sem styrkja átakið.

Með þessu átaki viljum við í Karlahópi Femínistafélags Íslands fá karla til að staldra við og velta fyrir sér hvað þeir geti gert til að koma í veg fyrir nauðganir. Við teljum nauðsynlegt að karlar sýni samábyrgð í verki og taki afgerandi afstöðu gegn nauðgunum.

Með samstilltu átaki geta karlar lyft grettistaki.

Föstudaginn 23. apríl verðum við fyrir utan verslanir ÁTVR og þar munum við ræða við karla um nauðganir og reyna að virkja krafta þeirra í baráttunni gegn ofbeldi á konum. Einnig munum við dreifa barmmerkjum með merki átaksins og bæklingum með upplýsingum um nauðganir.

Frekari upplýsingar má nálgast hjá Arnari Gíslasyni (elvis@hi.is, s. 691-9126) og Hjálmari Sigmarssyni (hjalmas@hi.is, s. 694-4799)

Félagsmálaráðherra styrkir átakið „Karlmenn segja NEI við nauðgunum“


Félagsmálaráðherra tók 21.4.2004 á móti fulltrúum Femínistafélags Íslands í tilefni af átaki karlahóps félagsins „Karlmenn segja NEI við nauðgunum“, en félagsmálaráðherra er einn styrktaraðila verkefnisins.

 

Tók ráðherra á móti bol, barmmerki og plakat ásamt því að fulltrúar Femínistafélagsins báðu hann um að taka málefnið upp í sínum vinahópi.

 

 


Síðast uppfært 21-jul-05
Elísabet Ronaldsdóttir