|
Nokkur
rök fyrir vændisfrumvarpinu |
|
1) Í 6.grein kvennasamnings Sameinuðu þjóðanna sem tók gildi árið 1981 segir: "Aðildaríkin skulu gera allar viðeigandi ráðstafanir, þar á meðal með lagasetningu, til að hamla gegn hvers konar verslun með konur og gróðastarfsemi tengdri vændi kvenna." Sú hugmyndafræði sem liggur að baki þessari grein samningsins er að vændi sé tilkomið vegna félagslegra vandamála á borð við vanþróun, fátækt, eiturlyfjaneyslu, ólæsi og skort á menntun og atvinnutækifærum. 2) Það er ekki hægt að líkja vændi við fíkniefnasölu þar sem þá er gert ráð fyrir að enginn munur sé á dauðum hlutum og lifandi líkömum, manneskjum. Grundvallaratriði hlýtur að vera sú staðreynd að líkamar fólks eru ekki og geta aldrei verið söluvara. Við eigum ekki að gangast inn á slíkar brautir að líta á líkama fólks sem söluvöru. Þess vegna er aldrei hægt að líkja slíku saman við sölu á eiturlyfjum eða landa, eins og landbúnaðarráðherra hefur gert. Vændi er bannað með lögum á íslandi í dag en bannið kemur fram í því að sú/sá sem selur ber refsiábyrgðina. Með frumvarpinu yrði áfram í gildi bann við vændi en ábyrgðinni yrði snúið við, hún yrði sett yfir á kaupandann, sem býr til eftirspurnina, enda er hann sá aðilinn af þessum tveimur sem á val, sá/sú sem selur sig á ekkert val. 3) Ef við ætlum gera báða aðila seka verður nær ógerlegt að fá vitni til að vitna gegn þriðja aðila (millilið/hórmangara). Það eru ákveðin lögmál í sambandi við lög og refsirétt, sem gera kröfu um það að í öllum málum sé einhver sem hefur stöðu vitnis. Ef við viljum vinna gegn vændi þá þarf refsiábyrgðin að hvíla einhvers staðar og sönnunarbyrðin þarf að vera með þeim hætti að hún sé ekki vonlaus. Núna hvílir refsiábyrgðin á herðum þess sem selur sig og á milliliðnum. Það er ekki líklegt að sá/sú sem selur sig segi til milligöngumanns (pimps/dólgs) ef hún/hann á það yfir höfði sér að vera stungið í fangelsi. En þannig er staðan núna og ef að aðili sem stundar vændi verður fyrir einhversskonar ofbeldi hefur hann/hún engan möguleika á að kæra. Ef við snúum refsiábyrgðinni við, þá væri sá/sú sem selur sig komin með stöðu vitnis í málinu og gæti borið vitni gegn t.d. dólgnum án þess að eiga á hættu að vera refsað sem brotamanni. Ef allir eru sekir þá hefur enginn stöðu vitnis og sönnunarbyrðin yrði óleysanlegt vandamál, sem gerði okkur ómögulegt að vinna á raunhæfan hátt gegn vændi á íslandi. 4) Vændisskýrsla dómsmálaráðuneytisins
(2001) 5) Fara konur þá ekki bara að kæra karla í
stórum stíl fyrir að Þeir sem eru mótfallnir frumvarpinu virðast halda að það leiði til þess að konur taki að kæra karla í stórum stíl fyrir að hafa keypt af þeim kynlíf, jafnvel að tilefnislausu. Við þessu er einfalt að bregðast með því að spyrja hvort menn haldi í alvöru að konur séu svo ákafar í að allir viti að þær séu að stunda vændi að þær taki að segja frá því í stórum stíl, hvað þá að þær láti sér detta í huga að ljúga því upp á sig? Konur segja ekki frá því í dag þó þeim sé nauðgað eða þær beittar sifjaspellum. Einnig má benda á það að lögin eins og þau eru í dag bjóða upp á það að karlar kæri konur í stórum stíl (með réttu eða röngu) fyrir að taka við greiðslu fyrir kynlíf. Það hefur nú ekki verið stórt vandamál hingað til að karlar séu að kæra konur fyrir slíkt og því er vandséð að konur myndu taka upp slíka háttu verði lögunum breytt.
Það er auðvitað eðlilegt að hver og einn reyni að halda sinni reisn fram í rauðan dauðann. Það reyna líka þeir sem selja sig. En hvers vegna gerir þetta fólk ekki eitthvað annað sér til framfærslu? Það er í langflestum tilvikum vegna þess að það er ekkert annað í boði. Vændi er alltaf neyðarbrauð, en þó fólk neyðist til að stunda vændi þá reynir það auðvitað að bera höfuðið hátt, annað væri óeðlilegt. En viljum við að sumir borgarar þurfi að grípa til þessa örþrifaráðs að selja sig til að hafa í sig og á, eða sjá fyrir börnunum sínum. -það ber líka að hafa það í huga að á sama tíma og fólk reynir að halda í einhverja mannlega reisn með því að segja: ég valdi þetta!!!! Þá gengur þetta sama fólk undir fölsku nafni og hefur slitið öll tengsl við fjölskyldu sína, hvers vegna skyldi það vera? Það tengist auðvitað því að þetta fólk er ekki stolt eða ánægt með sitt val, en það hafði ekki úr neinu að velja. Eða höldum við virkilega að þetta sé spurning um að velja vændi eða lögfræði......??
|