19. júní 2004

FEMÍNISTAFÉLAG ÍSLANDS

Aftur á forsíðu->
Salvör Gissurardóttir setti upp á vef. Lógómynd er frá Hvíta Húsinu.

Sjónvarpsauglýsing (QuickTime, 3.567 mb) og blaðaauglýsing (8 k)


Þann 19. júní fögnum við því að hátt í níutíu ár eru síðan konur fengu kosningarétt á Íslandi. Allir sem styðja jafnrétti eru hvattir til að klæðast bleiku eða bera eitthvað bleikt þennan dag. Femínistafélagið, Kvenréttindafélagið, Kvennakirkjan, Bríet, Vera, Rannsóknarstofa í kvenna- og kynjafræðum ,Kvennasögusafnið ,Félag kvenna af erlendum uppruna, Kvennaathvarfið og Stígamót standa saman að þessu átaki.

 

 

Viðburðir dagsins árið 2004 verða:

Kl. 10:30 Ganga um kvennasöguslóðir í miðbænum með Kristínu Ástgeirsdóttur. Safnast saman við andyri Ráðhússins. Hér er texti um gönguslóðirnar 2003. (Kvennasögusafnið)
Kl. 11:40 Afhending bleiku steinanna á Austurvelli
Kl. 12:00 Hádegisamkoma á Hallveigarstöðum. Sif Friðleifsdóttir umhverfisráðherra flytur ávarp. Anna Pálína syngur. (Kvenréttindafélagið)
Kl. 14.00 Kvennahlaupið í Garðabæ. Hér eru upplýsingar um hlaupið
(ÍSÍ)
Kl. 16:00 Ljóðaupplestur á Kaffi Rósenberg, Lækjargötu 2. Glymskrattarnir munu spila. Ljóðin lesa Urður Snædal, Eva Hauksdóttir, Myrra Rós Þrastardóttir, Hildur Viggósdóttir ,Kristín Svava Tómasdóttir og Þorgerður Mattía Kristjansen. (Malbik ljóðahópur)
Kl. 16:00 Stofnfundur Félags um tafllist kvenna á Hótel Borg

Kl. 20:30 Messa við þvottalaugarnar í Laugardal (Kvennakirkjan)
Frá Kl. 22:00 Femínistar hittast um kvöldið á kaffi Rósenberg, Lækjargata 2. Bleikir drykkir á 350 kr. Lifandi tónlist og stuð fram á nótt...

15 ára afmæli Kvennahlaups ÍSÍ
Kvennahlaup ÍSÍ mun fagna 15 ára afmæli laugardaginn 19. júní næstkomandi. Í tilefni af afmælinu er bolurinn í hátíðarútgáfu, fagurbleikur með V-hálsmáli.
Meginmarkmið Kvennahlaups ÍSÍ hefur frá upphafið verið að vekja áhuga kvenna á öllum aldri á reglulegri hreyfingu og heilsusamlegu líferni almennt.
Í ár hafa ÍSÍ og Lýðheilsustöð ákveðið að taka saman höndum og nýta styrk Kvennahlaups ÍSÍ til að vekja athygli á heilsufarsmálefnum sem snerta ekki síst konur. Þetta árið verður áherslan á mikilvægi hreyfingar fyrir andlega heilsu og af því tilefni er yfirskrift hlaupsins; ,,Hreyfingin eflir andann. Gefðu þér tíma".
Rannsóknir hafa sýnt að regluleg hreyfing bætir andlega líðan og dregur úr streitu kvíða og depurð. Hreyfing styrkir einnig sjálfsmyndina og er því tilvalin geðrækt sem mikilvægt er að gefa sér tíma til að iðka.
Hlaupið var fyrst árið 1990 og voru þá 2500 þátttakendur á 8 stöðum um landið. Núna er hlaupið á yfir 100 stöðum hérlendis og erlendis og eru þátttakendur um 20.000 konur á öllum aldri. Í Garðabæ verður hlaupið kl. 14, í Mosfellsbæ kl. 12 og á Akureyri kl. 11.
Sjá nánar á síðu ÍSÍ

Málum bæinn bleikan með ljóðum!

Ljóðahópurinn Malbik http://malbik.ljod.is ætlar að dreifa ljóðum á bleikum blöðum og standa fyrir ljóðaupplestri skáldkvenna 19. júní á Kaffi Rósenberg kl. 16. (myndin eru frá Malbikshópnum) Glymskrattarnir munu spila. Ljóðin lesa Urður Snædal, Eva Hauksdóttir, Myrra Rós Þrastardóttir, Hildur Viggósdóttir ,Kristín Svava Tómasdóttir og Þorgerður Mattía Kristjansen.

 

 

Bleiku steinarnir

11:40 Afhending bleiku steinanna á Austurvelli

Femínistafélag Íslands veitir nú í annað skipti Bleiku steinana á kvenréttindadeginum, 19. júní. Femínistafélagið vill minna á mikilvægi þess að hafa jafnréttissjónarmið í huga við ákvarðanatöku og hvetja handhafa steinanna til að kynna sér femínisma.

19. júní 2004 mun Femínistafélag Íslands afhenda Bleiku steinanna í annað sinn. Í fyrra hlutu forseti Íslands, borgarstjóri Reykjavíkur, biskup Íslands og heilbrigðismálaráðherra Bleiku steinana.
Bleiku steinarnir eru hvatningarverðlaun og eru veittir aðilum sem eru í aðstöðu til að hafa áhrif á gang jafnréttismála. Í ár tengjum við Bleiku steinana við íþróttir, og þá sérstaklega kvennaknattspyrnu. Undanfarin ár hefur mikil vinna verið lögð í að auka veg og vanda kvennaknattspyrnunnar til að hún standi jafnfætis karlaknattspyrnu. Enn er töluvert langt í land með að það náist eins og umræður síðustu vikna hafa sýnt. Í ár eru Bleiku steinarnir veittir fólki sem er í lykilstöðum til að hafa áhrif á gang mála og útnefnir Femínistafélag Íslands þau sem handhafa Bleiku steinanna í ár með þá hvatningu í huga að hafa jafnréttismál að leiðarljósi við alla ákvarðanatöku.

Handhafar Bleiku steinanna í ár eru:

Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
RUV, Markús Örn Antonsson
Landsbanki Íslands, Ingólfur Guðmundsson
Landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, Helena Ólafsdóttir
KSÍ, Eggert Magnússon.

Konur í baráttu
Dagana 18. og 19. júní n.k. verður haldin í Reykjavík ráðstefnan: Konur í baráttu: Óður til kvenfrelsiskvenna Rómönsku Ameríku á tuttugustu öld. [Mujeres en movimiento: Homenaje a las feministas latinoamericanas del siglo XX].

Dagskráin fer aðallega fram á spænsku en er öllum opin. Fyrirlestrar verða haldnir í Öskju, stofu 130 (Nýju húsnæði Háskóla Íslands í Vatnsmýrinni) og hefst hún báða dagana kl. 10 f.h. og svo aftur kl. 14.00 e.h. Sjá nánar->

Skákfélag kvenna
19. júní kl. 16.00 á Hótel Borg verður stofnað sérstakt skákfélag kvenna, hið fyrsta í sögu landsins. Allar stúlkur og konur sem áhuga hafa á að efla og styðja skákiðkun íslenskra kvenna eru hvattar til að mæta og sýna samstöðu á kvennadaginn við stofnun félagsins. Nýja félaginu, sem enn sem komið er gengur undir nafninu "Félag um tafllist kvenna", er ætlað að virkja ólíkar konur samfélagsins og mynda eins konar breiðfylkingu til að hvetja íslenskar stúlkur og konur til að tefla og styðja við skákiðkun, áhuga og þekkingu íslenskra kvenna á skák. Konum sem enn ekki kunna mannganginn er sérstaklega fagnað í félagsskapinn, þar eð hugmyndin er sú að virkja allar þær konur sem eru jákvæðar gagnvart skáklistinni jafnvel þótt þær séu ekki vel að sér í skákfræðunum. Félaginu er þannig ætlað að endurspegla breiðan hóp sem er áhugasamur um útbreiðslu skáklistarinnar á meðal íslenskra stúlkna og kvenna, óháð skákgetu og aldri.

Vonast er til að félagið muni í framtíðinni bjóða upp á sérstök stúlkna- og kvennaskákmót á léttum nótum, bjóða upp á kennslu og námskeið fyrir fullorðna byrjendur og stuðla að því að gera sögu og tafllist kvenna á Íslandi skil. Á morgun 19. júní er stofnfundinum ætlað að vekja athygli á málstaðnum með léttri og skemmtilegri dagskrá, skákpælingum og söng.

Vefsetur og bloggarar ! Málið bæinn bleikan!

Letur og borðar
þú getur líka sett bleikt letur á 19. júní
Litakóðinn er þá
#FF00CC
Borðar sem þú getur notað til að setja á vefsíður.
Settu eftirfarandi html kóða í bloggið þitt eða vefsíðuna þína.

<img src="http://www.feministinn.is/myndir/19juni2004/19jun_banner_500px.gif">

<img src="http://www.feministinn.is/myndir/19juni2004/19jun_banner_180px.gif">

<img src="http://www.feministinn.is/myndir/19juni2004/malum_baeinn_banner.gif">

 

19. júní árið 2003

Kvennasaga á vefnum

Kosningaréttur og konur


Þann 19. júní 1915 fengu konur sem voru 40 ára og eldri kosningarétt til Alþingis. Aldurstakmarkið skyldi lækka um eitt ár næstu 15 árin, eða þar til 25 ára aldri væri náð en það voru þau mörk sem almennur kosningaréttur karla miðaðist við. Sama dag fengu þeir karlar sem voru vistráðin hjú kosningarétt með sömu skilyrðum og konur. Ástæðan fyrir aldurstakmarkinu var sú að stjórnvöld (karlar) töldu hina nýju kjósendur ekki nægilega þroskaða til að takast á við kosningaréttinn og töldu að ef þeim yrði öllum hleypt að kosningaborðinu í einu gæti það haft ófyrirsjáanleg áhrif á niðurstöður kosninga.

Þessar takmarkanir voru á kosningarétt voru síðar felldar niður og árið 1920 verða karlar og konur jöfn að lögum að því er snertir kosningarétt og kjörgengi til Alþingis.

Konur á listum
Árið 1908 sameinuðust kvenfélögin í Reykjavík um fyrsta kvennaframboðið á Íslandi. Fjórar konur skipuðu listann, þar á meðal Bríet Bjarnhéðinsdóttir, og komust þær allar í bæjarstjórn - fyrstar kvenna hér á landi.

Árið 1922 hlaut Ingibjörg H. Bjarnason skólastýra kosningu til Alþingis, fyrst kvenna.

Árið 2003 eru konur á Íslandi kallaðar minnihlutahópur og í stærsta þingflokknum eru eingöngu 18% þingmanna konur.

 

Sett á vefsíðu 12. júní 2003
Síðast lagfært 16-jun-04
Salvör Gissurardóttir
Á forsíðu vefs Femínistafélags Íslands