Vændi og Ólympíuleikar
FEMÍNISTAFÉLAG ÍSLANDS

Aftur á forsíðu->

Bréf frá Femínistafélagi Íslands, Kvenréttindafélagi Íslands, Kvenfélagasambandi Íslands, Kvennakirkjunni og Stígamótum til Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands

Reykjavík 25. júní 2003


Til Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands
Hr. Ellert B. Schram
Forseti.


Á ráðstefnu The European Network against Trafficking in Women for sexual exploitation sem haldin var í Reykjavík mánudaginn 23. júní sl. upplýsti frú Mata Kaloudaki frá Grikklandi ráðstefnugesti um áform borgaryfirvalda í Aþenu vegna Ólympíuleikanna á næsta ári. Til stendur að fjölga vændishúsum úr 200 í 230 og auðvelda kynlífsþjónustu á fleiri stöðum svo sem hótelum og nuddstofum, jafnvel að koma upp hreyfanlegum hópum sem yrðu til „þjónustu“ reiðubúnir nánast hvar og hvenær sem er. Svo virðist sem borgaryfirvöldum þyki sjálfsagt að slík sölustarfsemi á kynlífi/vændi standi körlum til boða.

Eftir nokkra eftirgrennslan á netinu kemur í ljós að á meðan Ólympíuleikarnir stóðu yfir í Sidney árið 2000 jókst vændi og hvers kyns kynlífsiðnaður til muna þar í borg og fengu þúsundir erlendra vændiskvenna leyfi til að flytja starfsemi sína til Ástralíu til viðbótar við þær vændiskonur sem fyrir voru. Þar í landi er vændi löglegt í allnokkrum fylkjum og borgum þar á meðal Sidney.

Á undanförnum árum hefur mikil umræða átt sér stað um allan heim um mansal og þrælahald sem tengist kynlífsiðnaðinum í heiminum. Hundruð þúsunda kvenna og barna hafa verið neydd til að stunda kynlífsþjónustu. Í Evrópu hafa konur í austur hluta álfunnar einkum átt undir högg að sækja vegna fátæktar, atvinnuleysis og þess hruns sem varð í kjölfar mikilla þjóðfélagsbreytinga fyrir rúmum áratug. Kynlífsiðnaðurinn er nátengdur eiturlyfjum, glæpastarfsemi og margföldum mannréttindabrotum. Honum fylgja mannshvörf, sjálfsvíg, kynsjúkdómar, sálrænir erfiðleikar og félagsleg útskúfun sem erfitt reynist að vinna bug á. Kynlífsiðnaðurinn er nú talinn vera þriðja stærsta „atvinnugrein“ í heiminum. Meðan nánast allar ríkisstjórnir Evrópu verja stórfé og miklum mannafla í baráttu gegn mansali og þrælahaldi er nöturlegt að heyra að borgaryfirvöld í Aþenu hyggist ýta undir kynlífsþjónustu sem að sjálfsögðu byggist á nauðung, niðurlægingu og lágkúru ef ekki mannránum, pyndingum og frelsissviptingu eins og mörg dæmi eru um, þar á meðal í Grikklandi.

Ólympíuleikar eiga að senda heiminum skilaboð um hreysti, heilbrigði, frið, jafnrétti kynjanna og samvinnu. Konur hljóta að spyrja sig að því hvort þær eigi og geti tekið þátt í heimsviðburði sem skipulega byggir upp framhlið og bakhlið keppninnar. Framhlið þar sem lögð er áhersla á jafnrétti og bakhlið þar sem konur eru misnotaðar og beittar ofbeldi. Konur hljóta að að spyrja hverjum þessi þjónusta er ætluð?

Með þessu bréfi vilja neðangreind samtök vekja athygli Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands á áformum borgaryfirvalda í Aþenu. Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur málið rækilega, hafa samband við Alþjóða Ólympíunefndina og láta vita af þeim umræðum sem átt hafa sér stað hér á landi um þetta mál. Jafnframt skorum við á ykkur að mótmæla því harðlega að við hlið Ólympíuleikanna eigi sér stað klám- og ofbeldisleikar sem ganga þvert gegn samþykktum Sameinuðu þjóðanna um baráttu gegn vændi og mansali og fela í sér slíka mannlega niðurlægingu, eymd og mannréttindabrot að vart verður með orðum lýst.

Í von um skjót viðbrögð.


Feministafélag Íslands
Kvenréttindafélag Íslands
Kvenfélagasamband Íslands
Kvennakirkjan
Stígamót

 

Sett á vefsíðu 28-jun-03 - Salvör
Aftur á forsíðu->