| Stefnuskrá
Femínistafélags Íslands
FEMÍNISTAFÉLAG
ÍSLANDS er umræðuvettvangur og baráttutæki
íslenskra femínista. Félagið er frjáls
og óháður vettvangur sem hefur það að
markmiði að efla gagnrýna og femíníska umræðu
á öllum sviðum þjóðlífsins.
Helstu markmið
félagsins eru:
- Að
vinna að jafnrétti kynjanna.
- Að
vinna gegn hverskonar birtingarmyndum kynjamisréttis. Þar
má nefna klámvæðinguna, ágengar, lítilsvirðandi
auglýsingar, ofbeldi, mansal og vændi.
- Að
uppræta staðalmyndir um hlutverk og eðli kvenna og karla.
- Að
bæta stöðu kvenna á vinnumarkaði, útrýma
kynbundum launamun og auka hlut kvenna í stjórnun auðlinda
og fjármagns.
- Að
styrkja þátttöku kvenna í opinberu lífi,
fjölmiðlum og stjórnmálum.
- Að
stuðla að samfélagi sem tekur mið af mismunandi hagsmunum
og sjónarmiðum karla og kvenna svo sem í atvinnu-
og menntamálum, stjórnmálum, menningu og á
vettvangi einkalífsins.
Markmiðum
þessum skal náð með lýðræðislegri,
gagnrýnni og sýnilegri umræðu á fundum,
Netinu og í öðrum fjölmiðlum.
|