1.
maí 2003 |
| 30. apríl var send út fréttatilkynning á fjölmiðla með fyrsta maí ávarpi Femínistafélagsins. Fjölmiðlar sýndu femínistum engan áhuga fyrsta maí og í sjónvarpsfréttum var látið eins og þeir væru ekki til. Mörgum femínistum finnst undarlegt hvernig hægt var að taka ekki eftir femínistum, þeir voru stærsti einstaki hópurinn í Fyrsta maí göngunni, giskað er á að þeir hafi verið 300-500. Femínistar fengu ekki að flytja ávarp á fundinum, hvorki í Reykjavík né á Akranesi. Hér eru nokkur bréf sem hafa verið skrifuð til fjölmiðla eða send inn á femínistapóstlistann sem lýsa hve illa femínistar telja að fjölmiðlafólk hafi staðið á vöku sinni þennan sögulega dag. Fréttamat Ég
hitti auglýsingamann í gær og kvartaði yfir fréttamati
sjónvarpsstöðvanna við hann(eins og ég geri
við nánast alla sem ég hitti þessa daganna) Þá
sagði hann mér að við hefðum átt að
kynna okkur betur fyrir 1. maí, senda út fréttatilkynningu
o.s.fr. Ég var náttúrulega alveg undrandi, hélt
að fréttamenn ættu nú að koma auga á
fréttnæmt efni ef því væri stillt upp
fyrir framan nefið á þeim. Enn að hans sögn
er það ekki svo. Fréttamenn sitja sem sagt á rassinum
og bíða eftir því að einhver sendi þeim
fréttatilkynningu um fréttnæmt efni. Oft er það
víst þannig að auglýsingastofur(á vegum
ymissa hagsmunaaðila) senda út fréttatilkynningar með
uppsettum texta og myndum, tilbúið til birtingar. Og fréttamennirnir
þurfa bara að senda þetta í prenntsmiðju eða
að lesa fréttina inn á myndina. Ef rétt er þá
er ég ekki hissa á oft skrýtnu fréttamati
fjölmiðla! Til blaðsins Það var ískalt á fyrsta maí en mörg hundruð femínista létu það ekki hindra sig í að koma og taka þátt í 1. maí göngu Femínistafélags Íslands. Það voru seldir skærbleikir bolir og menn brugðu sér í þá utan yfir úlpurnar og gangan varð þannig áberandi litrík auk þess sem þáttakendur voru áberandi ungir, karlar og konur með lítil börn og stór, mörg hundruð manns. Það lá alveg ljóst fyrir að hér er sterkt pólitískt afl komið fram. Er þetta ekki frétt? Af hverju láta bæði blöðin og sjónvarpið eins og ekkert hafi gerst? Voru allar myndavélar settar niður í tösku þegar kom að femínistunum? Ástæðan fyrir óánægju okkar er ekki sú að okkur langi svo til að sjá myndir af okkur. Sagan er hins vegar skráð af fjölmiðlunum og ef þeir þegja um atburðina "hafa þeir ekki gerst" eins og þar stendur. Femínistafélag Íslands sýndi mikið fylgi og styrk á 1. maí og það er hrein sögufölsun ef menn láta eins og eitthvað annað hafi verið tilfellið og stinga þessari frétt undir stól. Dagný Kristjánsdóttir Ekki hissa Þöggun Komiði sæl og takk fyrir góða göngu, Ekki það að öflug kynning sé ekki alltaf af hinu góða! Ósýnilega bleika höndin Ósýnileg
bleik hönd með uppþvottabursta og sápul
DV tók eftir bleika litnum Langaði
líka að benda ykkur á að inn á heimasíðu
DV kom þessi mynd og frétt Með bestu
kveðjum Bleika flóðið sem rann niður Njarðargötuna Sæl öll. Ég
fór í gönguna í dag, og mikið var gaman
að sjá bleika flóðið renna niður Bleika skottið sem sást ekki 1.maí Komið þið öll blessuð, mikið
var gaman í göngunni í dag, og ekki síst að
vera með í þessu öfluga Nema hvað,
þegar kona settist spennt fyrir framan skjáinn og horfði
á Ég
hringdi í Stöð 2 og talaði við Ólöfu
Rún Skúladóttur og lýsti undrun Við þurfum
að bregðast við þessu með sterkum og uppbyggilegum
hætti. Þetta En bregðumst
við. Annars bara bestu þakkir til ykkar allra sem lögðuð
hönd
Aðrar
leiðir til að koma boðskap 2.maí Mér
persónulega finnst ekki neitt skrýtið við það
þótt að flestir myndir sem fréttastofurnar birtust
hafi verið af fólkinu frá ASÍ og Eflingu þar
sem þetta var nú 1.maí gangan. Og vorum við ekki
með glæsilegan fulltrúa í Kastljósinu daginn
áður? En auðvitað hefði verið gaman að
sjá bleiku bolina í sjónvarpinu. Ég held samt
að við eigum ekkert að vera að æsa okkur yfir þessu,
það eru aðrar leiðir til að koma boðskap okkar
til skila heldur en að sjást í 1-2 sekúndur í
sjónvarpinu. Þöggun 2.maí Kristín Ólafsdóttir Látum ekki bjóða okkur þetta 2.maí Látum
ekki bjóða okkur þetta, sendum athugasemdir á
rúv, stöð 2 og elinh@ruv.is
- Elín Hirst, fréttastjóri Sóley feministi sem kveikti rosa spennt á sjónvarpinu í gærkvöldi og bjóst við bleikri slikju yfir öllum fréttaflutningi sem reyndist svo vera hundleiðinlegur eins og endranær og alls ekkert bleikur :o( Þetta versnar 2.maí þetta
versnar, Fréttablaðið minnist á marga í göngunni,
m.a. herstöðvarandstæðinga....sem ég held að
hafi ekki verið mjög margir, en kv. Hrafnhildur Ragnarsdóttir
|