1. maí 2003
FEMÍNISTAFÉLAG ÍSLANDS
Kröfuganga og fundur

Ávarp Femínistafélags Íslands í tilefni 1. maí 2003->
Ef þú vilt vita meira um sögu fyrsta maí þá er það hérna

13:00 Hittast við Hallgrímskirkju.
Bolir og merki seld.
Bolur kr. 1000 og merki á kr. 100. Bolirnir eru bleikir með
svörtum stöfum. Aftan á þeim öllum stendur Femínistafélag
Íslands, www.feministinn.is Framan á eru nokkrar ólíkar
setningar sem hægt er að velja úr. Selt í nokkrum stærðum. Merkin
eru líka bleik með svörtum stöfum og með nokkrum ólíkum setningum.
PASSA AÐ KOMA MEÐ SEÐLA OG KLINK – ENGINN POSI Á STAÐNUM!

14:00 Gangan hefst
Ath. Femínistar ganga saman aftast í göngunni allir í bleiku.
Endilega að mæta með blöðrur, skilti, sápukúlur og allan varning
sem þið eigið í bleika litnum.


15:00 Fundur í Þjóðleikhúskjallaranum.
Stutt ávörp, tónlist, ljóð og leiklestur.
Frítt inn, hægt að kaupa sér kaffiveitingar.
Aðgengi til staðar fyrir hjólastóla.

Dagskrá:
Kynnir: Sigrún Edda Björnsdóttir
Ávarp: Vilborg Dagbjartsdóttir
Tónlist: Kvennakórinn. Léttsveit Reykjavíkur
Leiklestur: Úr Lýsiströtu
Tónlist: Þorsteinn Einarsson
Ljóð: Sigurbjörg Þrastardóttir
Ávarp: Halla Gunnarsdóttir
Tónlist: Hljómsveitin Kaffi
Ávarp: Katrín Anna Guðmundsdóttir


MÆTUM ÖLL!
SÝNUM SAMSTÖÐU!

Ávarp Femínistafélags Íslands í tilefni 1. maí 2003

Femínistafélag Íslands var stofnað þann 14. mars 2003 og telur nú nálægt 500 félagsmenn. Félaginu hefur á örskömmum tíma tekist að rjúfa þá kyrrstöðu sem einkennt hefur jafnréttismál og umræðu um þau í íslensku samfélagi síðastliðin ár. Í tilefni 1. maí, frídegi verkafólks, skorar Femínistafélagið á íslensk stjórnvöld, forystu atvinnulífsins og hagsmunasamtök launafólks að gera sérstaka framkvæmdaáætlun um aðgerðir til að vinna gegn kynbundnum launamun í íslensku samfélagi. Atvinnutekjur kvenna eru aðeins 57% af atvinnutekjum karla og hinn svokallaði leiðrétti launamunur kynjanna mælist um 16%.

Ljóst er að stóraukin menntun kvenna og um 80% atvinnuþátttaka þeirra hefur ekki skilað sér í jafnri stöðu kynjanna á íslenskum vinnumarkaði. Atvinnuþátttaka kvenna á Íslandi er sú mesta í hinum vestræna heimi og vinnudagur þeirra einnig lengstur. Vinnuframlag kvenna hefur skipt sköpum fyrir aukna þjóðarframleiðslu og vaxandi hagvöxt á Íslandi undanfarna áratugi. Femínistafélagið vill að konur njóti vinnu sinnar til jafns við karlmenn í launum og stöðuveitingum. Konur eru sárafáar í stjórnunarstörfum á vinnumarkaði og einungis 18,7% forstöðumanna ráðuneyta og undirstofnana þeirra. Þá eru konur ósýnilegar í forystu atvinnulífsins og í stjórn verkalýðsfélaganna.

Snúum blaðinu við, vinnum að þjóðarsátt um jafnrétti kynjanna.

Femínistafélag Íslands

 



Aftur á forsíðu->