Femínistafréttir
FEMÍNISTAFÉLAG ÍSLANDS

Aftur á forsíðu->
Salvör Gissurardóttir setti upp á vef

Viltu fá fréttabréf í tölvupósti?
Skáðu þig þá hér:
Nafn:
Tölvupóstfang:
Póstkerfi frá YourMailinglistProvider.com

Þú getur skoðað allar eldri útsendingar á þessari vefslóð:
http://www.yourmailinglistprovider.com/pubarchive.php?feministafrettir

-----------------------------------------------------------------------------
Fréttabréf frá Femínistafélagi Íslands – Nr. 6 - Femínistavikan
-----------------------------------------------------------------------------
Vefur Femínistafélagsins er http://www.feministinn.is

Velkomin á femínistavikuna sem byrjar á morgun 24. október.
Dagskráin er öllum opin. Sjá nánar dagskrána
http://www.feministinn.is/feministavikan/dagskra.htm


Dagskrá föstudaginn 24. október
------------------------------------------
kl. 8:15-10 Morgunverðarfundur á Grand Hótel um launamun kynjanna
kl. 16:00-18:00 ECCE FEMINA sýning opnar í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu

Dagskrá laugardaginn 25. október
------------------------------------------
kl. 15:00 – 17:00 í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu
Áfram stelpur! Málþing um kvennabaráttu síðustu áratuga. Í tengslum við samnefnda sýningu í Borgarbókasafni.

Sjá nánar um sýninguna ECCE FEMINA
http://www.feministinn.is/feministavikan/eccefemina.htm

Sjá nánar um málþingið 25. október:
http://www.feministinn.is/feministavikan/aframstelpur/malthing.htm


Brúum bilið - byggjum brýr.
------------------------------------------

Föstudaginn 24. okt. hefst viku dagskrá Feministafélags Íslands -
feministavikan 24. okt. - 1. nóv. Þann dag verður haldinn fundur um
launamun kynjanna og skorar Feministafélagið á konur um allt land að ganga á fund vinnuveitenda síns og biðja um launahækkun. Jafnframt skorar félagið á atvinnurekendur að skoða launamun kynjanna innan síns fyrirtækis eða stofnunar, leggja spilin á borðið og setja fram áætlun um hvernig launabilið skuli brúað. TÖKUM ALLAR ÞÁTT.

Því hefur verið haldið fram að launamisrétti kynjanna sé konum sjálfum að
kenna. Þær krefjist einfaldlega ekki hærri launa. Ef þetta er rétt þá er ekkert annað að gera en að fara og biðja um launahækkun. Hvernig bregðast atvinnurekendur við? Látum á það reyna föstudaginn 24. okt.

Krefjumst launajafnréttis - látum verkin tala

Feministafélag Íslands.


Fréttir úr félagsstarfinu
-----------------------------------------------------
Það er búið að vera mikið að gerast hjá Femínistafélaginu undanfarið.

Hér eru myndir frá síðasta Hitti á Sólón 7. október 2003
http://www.feministinn.is/myndir/hittid7okt03

En íslenskir femínistar eru ekki bara í Reykjavík, femínistar í Kaupmannahöfn hittust í Jónshúsi 2. október. Þar mættu um fjörutíu manns frá Svíþjóð og Danmörku og lögðu grunn að Eyrarsundsdeild Femínistafélagsins. Hér eru myndir og erindi Erlu og Gísla Hrafns frá fundinum í Jónshúsi
http://www.feministinn.is/danmork/jonshus2okt03.htm

Svo opnaði sýningin Áfram stelpur þann 11. október. Sýningin er á 1. hæð Grófarhúss á Tryggvagötu 15. Sjá nánar:
http://www.feministinn.is/feministavikan/aframstelpur

Svo hefur Femínistafélagið hafið samstarf við aðra aðila gegn óábyrgum auglýsingum, sjá nánar þessa frétt í viðskiptablaði Morgunblaðsins:
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1052904

Það sem af er október hafa verið snarpar umræður á Femínistaspjallinu
http://www.feministinn.is/umraedur
og það hefur líka verið mikill umræða á femínistapóstlistanum
http://listar.hi.is/mailman/listinfo/feministinn
Vonandi verður fjörug og málefnaleg umræða á bæði á vefspjallinu og á póstlistanum alla femínistavikuna!

Vanalega kemur þetta fréttabréf ekki út nema svona einu eða tvisvar í mánuði. En við bregðum út af vananum í femínistavikunni 24. október til 1. nóvember. Þá daga verður sent út fréttabréf alla daga.

Skoðið einnig vef félagsins http://www.feministinn.is
og fréttapunkta á vefnum http://feministinn.blogspot.com fyrir fréttir og tilkynningar varðandi femínistavikuna.

Viltu styrkja félagið?
------------------------
Öll vinna við femínistavikuna og í kringum Femínistafélagið er unnin í sjálfboðaliðavinnu en það er samt alltaf ýmis konar kostnaður sem fellur til. Við viljum því hvetja alla sem geta og vilja til að leggja félaginu lið. Fjárframlög má leggja inn á reikning félagsins : Femínistafélag íslands kt. 680303-4010 og númer bankareiknings er 1157-26-544
Einnig viljum við hvetja þá sem vilja leggja fram vinnu eða aðra aðstoð til að hafa samband annað hvort beint við félagið feministinn@feministinn.is eða beint við ráðskonur í hópum.
-------------------------------------------------------------------
Salvör Gissurardóttir sér um fréttabréf Femínistafélagsins
Póstfang félagsins er feministinn@feministinn.is

 

-----------------------------------------------------------------------------
Fréttabréf frá Femínistafélagi Íslands – Nr. 5 - Október 2003
-----------------------------------------------------------------------------
http://www.feministinn.is

Efni: Hittið í Jónshúsi í Kaupmannahöfn, Hittið á Sólón, Myndir frá Hittinu í
september, Myndir og frásögn frá Grand Hótel fundi, Breytingar á hópum/ráðkonum,
Vera, Hvað höfum við gert?
Fundir á næstunni –Hittið í Kaupmannahöfn 2. okt. og Hittið á Sólon í Reykjavík
7.október. Femínistavikan byrjar svo 24. október.

Hittið í Jónshúsi 2.október
**********************
Nú hafa femínistar í Kaupmannahöfn ákveðið að hittast og það verður fundur í
Jónshúsi fimmtudaginn 2. október kl. 20:00

Dagskrá:

* Gísli Hrafn Atlason, ráðskona og mannfræðinemi, kynnir félagið og starfsemi
þess.
* Erla Sigurðardóttir, ritstjóri, fjallar um bakgrunn félagsins og
femínistabylgjuna sem hefur riðið yfir Ísland í ár.
*Ingibjörg Stefánsdóttir, nemi og fyrrum framkvæmdarstýra Kvennalistans,
stjórnar umræðum.

Veitingar á vægu verði.
Allir velkomnir

Hittið á Sólón 7. október
*******************
Hittið er svaðaleg samkoma femínista á 2. hæð á Kaffi Sólon Bankastræti 7a
fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði milli kl. 20-22. Næsta Hitt verður 7. október.
Andrea Róberts skipuleggur Hittið.

Hittið er staður og stund…

…til að fá umræðu af stað
…til að varpa fram spurningum
…til að vera í góðum félagsskap
…til að bjóða nýliða Femínistafélags Íslands velkomna
…til að kynna niðurstöður rannsókna sem snúast um jafnréttismál
…til að kynna útskriftarverkefni sem snúast um jafnréttismál
…til að flytja ræður um femínisma og jafnrétti hér heima og erlendis
…þar sem femínistum er velkomið að tjá sig
…þar sem fólk úr stjórnmálum og viðskiptalífi getur komið og kynnt sér mál sem
snúast um jafnrétti og femínisma
…þar sem okkur gefst tækifæri til að sjá andlitin á bak við nöfnin á netinu
…fyrir starfandi hópa innan félagsins til að hittast, kasta fram hugmyndum og
bralla eitthvað skemmtilegt og bráðnauðsynlegt.

Myndir og frásögn frá Hittinu 2. september
*********************************
Fyrsta hittið heppnaðist feikivel, það var fullt út úr dyrum og þar var vígð
bleik ponta sem verður alltaf til staðar á Hittinu. Katrín Anna sagði frá
starfinu og hvað væri framundan og Kristín Ástgeirs frá Evrópuráðstefnu í Lundi
sem margir íslenskir femínistar fóru á. Svo var bara spjallað fram á nótt.
Myndir frá Hittinu 2.sept
http://www.feministinn.is/myndir/hittid2sep03/index.htm
Ræða Katrínar Önnu á Hittinu 2. sept.
http://www.feministinn.is/myndir/hittid2sep03/katrin-raeda.htm

Myndir og frásögn frá fundi með Margaretu Winberg
*****************************************
Margareta Winberg jafnréttisráðherra Svíþjóðar og varaforsætisráðherra kom til
Íslands og hélt fund með 11 íslenskum kvennahreyfingum á Grand Hótel 6.
september
Myndir og frásögn frá fundinum:
http://www.feministinn.is/myndir/winberg9sept/index.htm
Ræða Margaretu Winberg á fundinum 6. sept:
http://www.feministinn.is/winberg/winberg6sept2003.htm
Ræða Margaretu Winberg á fundi 5. sept.
http://www.feministinn.is/winberg/winberg5sept2003.htm

Breytingar á hópum og ráðskonum femínistafélagsins
******************************************
Lagt er til að breyta nöfnum hópa þ.e. ofbeldisvarnarhópur-> öryggisráð og
útgáfuhópur-> vefhópur. Lagt er til að sameina margbreytileikahóp öðrum hópum.
Þessar breytingar hafa orðið á ráðskonum: Halla hefur tekið við af Andreu sem
ráðskona í öryggisráði, Auður Magndís hefur tekið við Kristínu Ásu í
fræðsluhópi, Svanborg hefur tekið við af Rósu í stjórnmálahópi, Bryndís Ísold
hefur tekið við af Birnu í hópi ungra femínista.

Vera
****
Femínistatímaritið Vera er komið út. Sjá http://www.vera.is Í þessu tölublaði er
sagt frá ofbeldisvarnarhópi Femínistafélagsins (nú öryggisráði), í síðasta
tölublaði var sagt frá staðalímyndahópi.

Hvað höfum við gert?
****************
Hér er brot úr ræðu Katrínar Önnu talskonu félagsins á Hittinu 2. september:

"Femínistafélag Íslands fór af stað með miklu meiri krafti heldur en nokkur
okkar þorði að vona. Þjóðfélagið hefur sýnt því sem við erum að gera mikinn
áhuga og það segir okkur að það er mikil þörf á félagi eins og Femínistafélaginu
– vettvangi fyrir þá sem vilja stuðla að jafnrétti kynjanna, vettvang þar sem
við getum sýnt samtakamátt okkar í verki.

Frá stofnun félagsins hefur verið svo mikið í gangi að ég hef ekki nægan tíma
til að telja það allt upp.

Ég ætla samt að stikla á stóru. Starfsemin fór af stað rétt fyrir kosningar og
er óhætt að segja að tilurð félagsins hafi gert það að verkum að
jafnréttismálin fengu mun stærri sess í kosningabaráttunni en annars hefði
verið. Haldnir voru fundir með stjórnmálaflokkunumbæði fyrir og eftirkosningar.

Við ákváðum líka að láta í okkur heyra fyrir fegurðarsamkeppnirnar. Gáfum út
bækling til að efla sjáflstyrkingu kvenna, fórum í viðtal í beinni útsendingu á
keppninni Ungfrú Ísland.is, sýndum myndina Í skóm drekans og síðast en ekki síst
þá settum við upp sýninguna Afbrigði af fegurð sem er sýning á sögu
mótmælaaðgerða gegn fegurðarsamkeppnum frá árinu 1970 til dagsins í dag.

Við marseruðum í bleiku 1. maí og héldum veglega dagskrá í
Þjóðleikhúskjallaranum. Þar var troðið út úr dyrum. Við héldum 19. júní
hátíðlegan – fengum önnur kvenréttindafélög í lið með okkur og tókst að virkja
stóran hluta þjóðarinnar til að mála bæinn bleikan. Við seldum merki sem á stóð
“Ég kaupi konur” fyrir utan nektarstaðinn Goldfinger. Við höfum haft samband við
auglýsendur og birtingaraðila auglýsinga vegna auglýsinga sem við teljum
lítilsvirðandi fyrir kynin.

Við sendum frá okkur ályktun vegna hæstaréttardóms þar sem manni var talið það
til refsilækkunar í líkamsárásarmáli að fyrrum sambýliskona hans hafði ítrekað
reitt hann til reiði. Við sendum jafnframt frá okkur ályktun vegna uppsagna
fréttakvenna á Stöð 2.

Karlmennskukvöld var haldið fyrir fullu húsi á Grand Rock Café.
Fyrir verslunarmannahelgina var öflugt forvarnarstarf í gangi, gefnir
frisbeediskar með áletruninni “Nauðgar vinur þinn” og tóku nokkrar vinsælustu
hljómsveitir landsins þátt í því átaki.

Við vorum í Stígamótum og í Skífunni á menningarnótt – annars vegar með
kærleiksboðskap og hins vegar með sýnishorn af karlmennskuímyndinni. Við vöktum
líka athygli á áætlunum um að fjölga vændishúsum í Grikklandi vegna
Olympíuleikanna sem halda á á næsta ári og hrófluðum við því máli í
heimspressunni. Til viðbótar eru ótal útvarps-, sjónvarps- og blaðaviðtöl sem
femínistar hafa farið í þar sem tækifæri hefur gefist til að ræða málin og koma
umræðunni af stað.

Að auki er félagið með öfluga útgáfustarfsemi. Heimasíðan
http://www.feministinn.is er uppfærð reglulega, rafrænt fréttabréf er sent út í
hverjum mánuði og félagið starfrækir póstlistann sem ég minnist á í upphafi.

Einnig er búið að setja upp umræðukerfi á vefnum sem ég hvet ykkur öll til að
kíkja á. Slóðin þangað er http://www.feministinn.is/umraedur Umræðukerfið er
mjög auðvelt í notkun þannig að ég vona að sem flest ykkar skráið ykkur þar inn
og takið virkan þátt í urmæðunni. Af nógum málefnum er að taka, svo mikið er
víst."


Núna eru 800 áskrifendur að þessu fréttabréfi.
Hægt er að skrá sig á fréttabréfspóstlistann á vefsíðu félagsins
http://www.feministinn.is
Netfang félagsins er feministinn@feministinn.is
Salvör Gissurardóttir sér um fréttabréf félagsins

-----------------------------------------------------------------------------
Fréttabréf frá Femínistafélagi Íslands – Nr. 4 - September 2003
-----------------------------------------------------------------------------
http://www.feministinn.is

Efni: Hittið á Sólón, Margareta á GrandHótel, femínistaspjall, femínistavikan
Fundir á næstunni – Munið Hittið í kvöld 2. september !


Hittið á Sólon 2. september kl. 20
-----------------------------------------
Hittið er samkoma femínista á 2. hæð á Kaffi Sólon Bankastræti 7a fyrsta
þriðjudag í hverjum mánuði milli kl. 20-22.
Hittið er staður og stund…

…til að fá umræðu af stað
…til að varpa fram spurningum
…til að vera í góðum félagsskap
…til að bjóða nýliða Femínistafélags Íslands velkomna
…til að kynna niðurstöður rannsókna sem snúast um jafnréttismál
…til að kynna útskriftarverkefni sem snúast um jafnréttismál
…til að flytja ræður um femínisma og jafnrétti hér heima og erlendis
…þar sem femínistum er velkomið að tjá sig
…þar sem fólk úr stjórnmálum og viðskiptalífi getur komið og kynnt sér mál sem snúast um jafnrétti og femínisma
…þar sem okkur gefst tækifæri til að sjá andlitin á bak við nöfnin á netinu
…fyrir starfandi hópa innan félagsins til að hittast, kasta fram hugmyndum og bralla eitthvað skemmtilegt og bráðnauðsynlegt.

Sjá nánar:
http://feministinn.blogspot.com/2003_08_01_feministinn_archive.html#106225300828356135

Fundur með Margareta Winberg á Grandhótel 6.september kl. 10
----------------------------------------------------------------------------------
Margareta Winberg varaforsætis- og jafnréttisráðherra Svíþjóðar flytur erindi á vegum íslenskrar kvennahreyfingar á Grandhóteli Sigtúni 38, laugardaginn 6. sept. Kl. 10-12.
Sjá nánar:
http://feministinn.blogspot.com/2003_08_01_feministinn_archive.html#106192514010728522


FEMINISTASPJALL - VEFUMRÆÐUKERFI
-------------------------------------------------
http://www.feministinn.is/umraedur

Við höfum tekið í notkun vefspjall Femínistafélagsins - Femínistaspjall. Við höfum prófa það í sumar og það virðast reynast ágætlega. Vefumræða er mun aðgengilegri en umræða á póstlista, það er auðveldara að hafa yfirsýn yfirumræðuna þar og hafa marga umræðuhópa í gangi í einu og það fyllir ekki pósthólfin. Við viljumhvetja alla femínista til skrá sig inn ífemínistaspjallið og taka þátt í vefumræðunni. Núna í byrjun september eru þegar 144 skráðir og það hafa verið send inn 256 innlegg.

Slóðin er: http://www.feministinn.is/umraedur

Það þarf að velja nýskráning í fyrsta skipti en eftir það Innskráning. Leiðbeiningar eru á íslensku. Þú getur skrifað fullt nafn t.d. "Jóna Jónsdóttir" sem notendanafn. Þegar þú ert búin(n) að skrá þig þarftu að fara í "þín uppsetning" og fylla út nafnið þitt í undirskrift. Við gerum ráð fyrir að sömu reglur gildi í vefumræðum og á póstlistanum þ.e. að öll innlegg verði með nafni.

Femínistavikan
--------------------
Femínistafélagið stefnir að því að hafa femínistaviku 24. október til 1. nóvember. Núna er leitað eftir hugmyndum um hvað á að gera þessa viku. Meiningin er að hafa eitthvað í gangi alla þessa daga. Þegar eru komnar fram nokkrar hugmyndir m.a. um sýningu á vegum menningarhópsins, ráðstefnu, heilbrigðishópurinn stefnir að málþingi o.s.frv. En núna er hugmyndavinnan í fullum gangi. Allir sem hafa hugmyndir, ekki síst hvernig við getum virkjað femínista í útlöndum og utan höfuðborgarsvæðis. Það er kominn umræðuflokkur um þetta á á vefumræðulistanum, endilega kastið fram hugmyndum!!!

Sjá nánar
http://www.feministinn.is/umraedur/viewforum.php?f=3&sid=039f8bf2b673972e5268231753baf4bb

Athugið að vefumræðukerfið er opið núna, allir geta lesið umræður en einungis þeir sem eru innskráðir geta tekið þátt í umræðum. Endilega skráið ykkur og komið með hugmyndir:
http://www.feministinn.is/umraedur

Nánar verður greint frá starfinu í sumar og undirbúningi femínistavikunnar í næsta fréttabréfi.

Salvör Gissurardóttir tók saman þetta fréttabréf Femínistafélags Íslands
póstfang félagsins: feministinn@feministinn.is

---------------------------------------------------
Fréttabréf frá Femínistafélagi Íslands – Nr. 3- Júlí 2003
--------------------------------------------------
http://www.feministinn.is

Efni: Vefumræðukerfi, Goldfinger, hópastarf, 19.júní, ályktanir og bréf, starfið framundan, femínistar í útvarpi

Vefumræðukerfi
***********
Útgáfuhópur er búinn að setja upp vefumræðukerfi og við erum að prófa það. Við viljum hvetja félagsmenn til að skrá sig inn og prófa. Vefslóðin er http://www.feministinn.is/umraedur og þar undir á að velja nýskráning í fyrsta skipti en síðar alltaf innskráning. Leiðbeiningar eru allar á íslensku. Núna eru tvær umræður í gangi, Prófanir (til að læra á kerfið) og Femínistinn (ýmis konar femínisk umræða). Við gerum ráð fyrir að það séu sömu siðareglur og eru um feministapóstlistann og allir verða að koma fram undir eigin nafni. Okkur líst vel á þetta kerfi, vonandi verða fjörugar og kraftmiklar umræður í því. Endilega prófið það í sumar!

Goldfinger 28. júní
**************
*Ofbeldisvarnarhópur seldi barmmerki fyrir utan nektardansstaðinn Goldfinger í Kópavogi 28. júní. Merkin voru bleik að lit og á þeim stóð: "Ég kaupi konur". Tilgangurinn var að vekja neytendur kynlífsiðnaðarins til umhugsunar. Ofbeldisvarnarhópur stóð sig vel í þessu og það varð mikil fjölmiðlaumræða. Það söfnuðust kr. 14.400 í Kristínarsjóð Sjá nánar á vef: http://www.feministinn.is/eg-kaupi-konur.htm
* Við prófuðum í fyrsta skipti svona talblogg á vettvangi.
Það má hlusta á það á vefsíðu: http://blog.hex.is/feminist
* Myndir frá merkjasölunni á Goldfinger eru á vef:
http://www.feministinn.is/myndir/goldfinger/index.htm

Hópastarf
********
Ungir femínistar funduðu 30 júní og ofbeldirvarnarhópur og margbreytileikahópur funduðu 24.júní.
Fundir í hópum eru auglýstir á umræðulistanum feministinn@hi.is og/eða á fréttablogginu feministinn.blogspot.com og femínistadagatalinu http://my.calendars.net/feministinn
Ef þú vilt starfa í hópi getur þú líka haft beint samband við ráðskonu í viðkomandi hóp.

Innan Femínistarfélagsins starfa ellefu starfshópar.
Sjá nánar á vefsíðu: http://www.feministinn.is/starfshopar.htm

Í þessu fréttabréfi kynnum við starf Staðalímyndahóps:
Staðalímyndahópur hefur staðið fyrir mótmælaaðgerðum gegn fegurðarsamkeppnum, bæði Ungfrú Ísland.is og Ungfrú Ísland. Í sambandi við síðari keppnina var sett upp sýningin Afbrigði af fegurð sem er saga mótmælaaðgerða gegn fegurðarsamkeppnum frá árinu 1970 til dagsins í dag. Hópurinn hefur einnig fylgst með auglýsingum og sent bréf til auglýsenda, birtingaraðila og Jafnréttisstofu vegna auglýsinga sem hópurinn telur ekki vera í samræmi við 18. grein jafnréttislaga. Framundan hjá Staðalímyndahóp er að undirbúa aðgerðir vegna keppninnar Herra Ísland sem fram fer í haust, áframhaldandi fjölmiðlavakt vegna auglýsinga og einnig er verið að skoða netheima. Þau ykkar sem viljið bætast í hópinn er bent á að hafa samband við ráðskonu hópsins, Katrínu Önnu Guðmundsdóttir, katrinc@hi.is

19. júní
******
Við máluðum svo sannarlega bæinn bleikan! Til hamingju með daginn öll sem tókuð þátt og voruð í bleiku. Femínistafélagið afhenti í fyrsta skipti bleiku steinana og það var stuð á Prikinu langt fram á nótt.
* Myndir frá 19. júní
http://www.feministinn.is/bleikur
* Frásögn af bleiku steinunum 19. júní
http://www.feministinn.is/bleikirsteinar.htm
* Viðburðir og upplýsingar um 19. júní
http://www.feministinn.is/bleikur19juni.htm

Ályktanir og bréf:
*************
* Femínistafélagið sendi frá sér ályktun vegna Hæstaréttardóms Nr. 98/2003 frá 12. júní 2003 en þar var maður dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps. Dómurinn virti honum til refsilækkunar að fórnarlamb hans (fyrrum sambýliskona) hefði vísvitandi reitt hann til reiði.
Sjá nánar á vef: http://feministinn.blogspot.com/2003_06_08_feministinn_archive.html#95654256

* Femínistafélagið sendi ásamt öðrum samtökum bréf til að mótmæla vændi í tengslum við Ólympíuleika.
Sjá nánar á vef: http://www.feministinn.is/vaendi-a-olympiuleikum.htm

Starfið fram undan
***************
Rætt er um að femínistar verði sýnilegir í Gaypride 9. ágúst, rætt er um að femínistar taki þátt í menningarnótt 16. ágúst með einhverjum viðburði, rætt er um að halda femínistaviku í október. Einnig munu hópar hyggja á aðgerðir varðandi verslunarmannahelgi og þegar skýrsla um ungt fólk í vændi kemur út.

Femínistar í útvarpi
***************
Femínistafélag Íslands og Létt 96,7 eru í samstarfi í sumar. Fulltrúi frá Femínistafélaginu mæta í létt spjall hjá Siggu Lund á þriðjudögum upp úr kl. 16:00. Þar eru tekin fyrir ýmis málefni, m.a. hefur verið rætt um óæskileg áhrif fegurðarsamkeppna, átakið Málum bæinn bleikan, karla og femínisma og hvort að það sé hollt fyrir konur að sleppa blæðingum - eða ekki.

Femínistafélag Íslands hvetur fólk til að hlusta á Víðsjá á fimmtudögum þar sem jafnréttismál eru rædd. Víðsjá er á dagskrá Rásar 1 milli kl. 17:00 - 18:00 í umsjá Ævars Kjartanssonar. Í síðustu viku var rætt um vændi og Olympíuleikana í Aþenu á næsta ári.

Salvör Gissurardóttir tók saman þetta fréttabréf Femínistafélags Íslands
póstfang félagsins: feministinn@feministinn.is

*****************************************

 

 

18.6.03

19. júní Málum bæinn bleikan!

---------------------------------------------------
Fréttabréf frá Femínistafélagi Íslands – Nr. 2 - Júní 2003
--------------------------------------------------
http://www.feministinn.is


19. júní Málum bæinn bleikan!


Sjá nánar á vefsíðu
http://www.feministinn.is/bleikur19juni.htm

Kæru femínistar.


Á morgun, 19. júní eru hátt í 90 ár síðan konur hlutu kosningarétt. Í tilefni dagsins ætlum við að Mála bæinn bleikan. Allir sem styðja jafnrétti(jafnt konur sem karlar) eru hvattir til að sýna stuðning í verki með því að bera bleikt á morgun. T.d. bleika flík, bleik gleraugu, bleikt blóm í hári, bleikt bindi, bleikt merki eða bara rífa horn af bleiku blaði og næla í barminn.


Að átakinu Málum bæinn bleikan standa:
Femínistafélag Íslands
Kvenréttindafélag Íslands
Vera
Kvennakirkjan
Bríet
Kvennasögusafn Íslands
Bandalag kvenna í Reykjavík
Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum


Sýnum samstöðu á morgun, styðjum jafnrétti og málum bæinn bleikan :)
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á:
http://www.feministinn.is/bleikur19juni.htm

Viðburðir dagsins verða:


kl. ?? Femínistar afhenda ráðamönnum bleika steina
Femínistafélag Íslands veitir nú í fyrsta sinn Bleiku steinana á kvenréttindadeginum, 19. júní. Þá hljóta að þessu sinni helstu ráðamenn þjóðarinnar. Femínistafélagið vill þannig minna á mikilvægi þess að hafa jafnréttissjónarmið í huga við ákvarðanatöku og hvetja ráðamenn til að kynna sér femínisma.


Kl. 16:30 Ganga um kvennaslóðir (Kvennasögusafnið)
Gangan byrjar frá Ráðhúsinu og endar við Hallveigarstaði
Kl. 17:30 Kaffi og dagskrá á Hallveigarstöðum(Kvenréttindafélagið)
Kl. 20:30 Messa við þvottalaugarnar í Laugardal (Kvennakirkjan)
Kl. 22:00 til 01.00 Feminínistar koma saman á Prikinu, Páll Óskar o.fl. verða dj og spila sögu kvennapoppsins. Staðurinn verður skreyttur bleiku og sýningin "Afbrigði af fegurð" verður áfram.


Þetta eru viðburðir á höfuðborgarsvæðinu en víða um land halda femínistar daginn hátíðlegan, Gísli Hrafn talar fyrir hönd Femínistafélagsins á samkomu á Laugum í Sælingsdal.


Fólk með Sirrý 18. júní kl. 21.00
---------------------------------------------
Femínistar mæta í Fólk með Sirrý í beina útsendingu í kvöld 18. júní og skoða bæinn með kynjagleraugum. Sjá nánar á http://www.strik.is/folk
Það vantar fleiri femínista í salinn, þeir sem vilja vera með hafið samband við sirry@fjoltengi.is

16. júní Karlmennskukvöld á Grand Rokk
----------------------------------------------------------
"Femínista- og karlahópur" femínistafélagsins hélt karlmennskukvöld á Grandrokk þann 16. júní. Það tókst sérlega vel. Gestir voru yfir 100 og ansi mikil fjölmiðlaathygli: Létt, Ísland í dag, tilkynning í Mogga, viðtal í DV, viðtal í Fréttablaðinu og tilkynning á forsíðu í sama blaði, viðtal á X-inu og viðtal í dægurmálaútvarpinu á rás 2 o.fl., Ingólfur kom í hádegisfréttunum og Mbl.


Bleikir bolir
-------------
Margir skrifa til Femínistafélagsins og spyrja um bleika boli. Við bendum á að þeir verða til sölu bráðlega í nýjum sniðum (vonandi frá og með morgundeginum) í Spútnik Laugavegi 51, Spútnik Kringlunni og GK Laugavegi 66.


Félagsgjöld
--------------
Það er mikið að gerast hjá femínistum og þó að allt starf sé unnið í sjálfboðaliðsvinnu þá hleðst á okkur ýmis konar kosnaður. Við minnum því alla á að greiða félagsgjöld kr 1500. Vinsamlegast greiðið inn á reikningsnúmer Femínistafélagsis 1157-26-544 (Kennitala félagsins er 680303-4010). Mikilvægt er að kennitala félaga komi fram á innleggi.


Salvör Gissurardóttir tók saman þetta fréttabréf.


Fréttabréf Feministafélagsins sem send eru til félagsmanna eru aðgengileg hérna:
http://www.yourmailinglistprovider.com/pubarchive.php?feministafrettir

skrifar Salvor | 1:15 PM
--------------------------------------------------------------------------------

 

Eftirfarandi var sent út til félaga í tölvupósti um miðjan júní:

Ágæti femínisti,
Hér er fyrsta fréttabréfið okkar.
Stiklað er á stóru um viðburði í maí og júní.
Vefur: http://www.feministinn.is
póstur: feministinn@feministinn.is
Salvör Gissurardóttir tók saman þetta fréttabréf.

-----------------------------------------------------------------

19. júní Málum bæinn bleikan!

Sjá nánar á vefsíðu
http://www.feministinn.is/bleikur19juni.htm
Þann 19. júní fögnum við því að hátt í níutíu ár eru síðan konur fengu kosningarétt á Íslandi. Allir sem styðja jafnrétti eru hvattir til að klæðast bleiku eða bera eitthvað bleikt þennan dag. Femínistafélagið, Kvenréttindafélagið, Kvennakirkjan, Bríet, Vera, Rannsóknarstofa í kvenna- og kynjafræðum og Kvennasögusafnið standa saman að þessu átaki.

Viðburðir dagsins verða:
Kl. 16:30 Ganga um kvennaslóðir (Kvennasögusafnið)
Kl. 17:15 Kaffi og dagskrá á Hallveigarstöðum(Kvenréttindafélagið)
Kl. 20:30 Messa við þvottalaugarnar í Laugardal (Kvennakirkjan)
Kl. ???? Feminínistar hittast á einhverjum bar (nánar auglýst síðar)

Femínistar mæta í Fólk með Sirrý 18. júní og skoða bæinn með kynjagleraugum. Sjá nánar á http://www.strik.is/folk
-----------------------------------------------------------------

16. júní Karlmennskukvöld á Grand Rokk

"Femínista- og karlahópur" femínistafélagsins stendur fyrir karlmennskukvöldi á Grandrokk þann 16. júní kl. 19:00.
Dagskrá:
Gísli Hrafn Atlason (framhaldsnemi í mannfræði): "Kynlífskaup karla"
Ingólfur V. Gíslason (Félagsfræðingur): "Karlmennska í her"
Jóhannes Holm (grafískur hönnuður): "Karlmennskan í auglýsingum og sjónvarpi"
Sigurjón Kjartansson (húmoristi): "Karlmennska og húmor"
Þorgerður Einarsdóttir félagsfræðingur og hvatakona póstlistans stýrir umræðum. Súpa verður seld á vægu verði og drykkjarföng eru heldur ekki dýr.
-----------------------------------------------------------------

Viðburðir í maí

Þrír stórir viðburðir voru í maí: Fysti maí var ganga og baráttufundur, sýningin Afbrigði af fegurð var opnuð 23. maí og haldin var fundur með fulltrúum stjórnmálaflokka um kynjuð stjórnmál þann 28.maí. Einnig héldu nokkrir málefnahópar fundi m.a. ungliðahópur 26 maí og menningarhópur 27 maí.

* Femínistar tóku þátt í 1. maí göngunni í Reykjavík og héldu eigin baráttufund í Þjóðleikhúskjallaranum. Það voru nokkur hundruð femínistar í göngunni, margir klæddir bleikum bolum með ýmis konar femínistum áletrunum. Sjá nánar um 1. maí hjá Femínistafélaginu á:
http://www.feministinn.is/fyrstimai/index.htm

* Sýningin Afbrigði af fegurð var opnuð 23. maí. Við viljum hvetja alla til að skoða sýninguna sem ennþá stendur yfir á kaffihúsinu Prikinu.
Sjá nánar um sýninguna.
http://www.feministinn.is/myndir/fegurdmai03/fegurdmai03.htm

* Kynjuð stjórnmál 28. maí
Erindi og frásögn af fundinum eru á þessari vefslóð:
http://www.feministinn.is/myndir/kynjud-stjornmal/index.htm
Við viljum einnig benda á yfirlit yfir jafnréttisáætlanir flokkanna
http://www.feministinn.is/stjornmal/kosningar2003.htm

-----------------------------------------------------------------
* Mikil fjölmiðlaumræða hefur verið um femínistafélagið í maí, ráðskonur hafa verið tíðir gestir í útvarps- og sjónvarpsviðtölum auk opnuviðtala í dagblöðum og tímaritum.
-----------------------------------------------------------------

Póstlistinn feministinn@hi.is

Það hafa verið logandi umræður á póstlistanum alveg frá stofnun. Nú eru umræður þar ”moderated” sem þýðir að öll skeyti sem send eru á listann eru yfirfarin og send áfram amk einu sinni á dag. Áskrifendafjöldi fór yfir 600 þann 1. maí og hefur verið um það síðan.
Hér er yfirlit yfir send skeyti á listann:
febrúar 150
mars 697
april 869
maí 566
Sjá nánar reglur um póstlistann
http://listar.hi.is/mailman/listinfo/feministinn
Stefnt er að því að setja einnig upp vefumræðukerfi með haustinu.
-----------------------------------------------------------------
Bleikir bolir fyrir sumarið!

Hægt er að kaupa bleiku-1.maí-femínista-bolina í
Spútnik Laugavegi 51 s. 561-7060
Spútnik Kringlunni s. 533-3080
Einnig verður hægt að fá þá í versluninni GK Laugavegi 66

-----------------------------------------------------------------

Félagsmenn
Félagsmenn eru komnir á sjötta hundrað og fjölgar stöðugt, það gengu 96 nýir félagsmenn í félagið í maí með að skrifa til feministinn@feministinn.is

-----------------------------------------------------------------
Félagsgjöld

Félagsgjöld voru ákveðið kr. 1500 á stofnfundinum. Við þurfum mikið á peningunum að halda í starfsemina. Til að forðast yfirbyggingu og kostnað við innheimtu og biðjum við alla um að leggja félagsgjöldin beint inn á reikning Femínistafélags Íslands.
Reikningsnúmer:
1157-26-544
Kennitala:
680303-4010

Mikilvægt er að kennitala félaga komi fram á innleggi til að hægt sé að
fylgjast með hvaða félagar hafa greitt félagsgjöld.
-----------------------------------------------------------------
Besta leiðin til að fylgjast með starfi Femínistafélagins núna:
* Vera áskrifandi að póstlistanum feministinn@hi.is
* Skoða fréttir á http://feministinn.blogspot.com
* Skoða vef félagsins http://www.feministinn.is

Femínistafélag Íslands
póstur: feministinn@feministinn.is


Frá 1. maí


Frá fundi um kynjuð stjórnmál 28. maí.


Frá opnun sýningar afbrigði af fegurð 23. maí.

 


Sett á vef 14-jun-03 - Salvör Gissurardóttir
Á forsíðu vefs Femínistafélags Íslands