Femínistafélag Íslands
Femínistavikan - Byggjum brýr

Kvennakirkjan og Femínistafélag Íslands

Messa í Neskirkju 26. október 2003

Kristín Ástgeirsdóttir las ritningarlestur, Katrín Anna Guðmundsdóttir flutti ávarp og Auður Magndís Leiknisdóttir kveðjuorð. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikaði. Eftir messuna var kaffi í safnaðarheimilinu.

Stuttar vídeoupptökur:

Úr ávarpi Katrínar Önnu
Kór Kvennakirkjunnar syngur Dómar Heimsins

Dómar Heimsins, dóttir góð
munu reynast margvíslegir
Glímdu sjálf við sannleikann
hvað sem hver segir.

Gakktu einatt eigin slóð
hálir eru hversmannsvegir
Skeyttu ekki um boð né bann
hvað sem hver segir.

Inn í brjóst þitt ein og hljóð
rýndu fast ef röddin þegir.
Treystu á þinn inni mann
hvað sem hver segir.

lag: Valgeir Guðjónsson - ljóð: Jóhannes úr Kötlum.

Síðast breytt 22-jun-05 af Salvöru