Femínistafélag Íslands
Femínistavikan - Byggjum brýr

Áfram stelpur – Málþing
Á forsíðu->

Laugardagur   25. október

Staður:  Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsinu

Stund:  15.00-17.00

Videoklipp frá fundinum:

http://www.feministinn.is/feministavikan/sarsauki2.wmv
http://www.feministinn.is/feministavikan/timinn2.wmv
http://www.feministinn.is/feministavikan/umraedur2.wmv

Þetta málþing fjallar um sögu nýju kvennahreyfingarinnar og spurt verður:  Hvað tókst?  Hvað mistókst?  En kannski fyrst og fremst:  Hvað gerðist og hvað getum við lært af því?

Málþingið er haldið í tengslum við sýninguna Áfram stelpur sem opnuð var 11. október í Borgarbókasafninu, 1. hæð en að henni standa Borgarskjalasafn, Kvennasögusafn og Femínistafélag Íslands.

Málþingið skiptist í tvo hluta:

1.      Minningar úr kvennabaráttunni.  Nokkrar baráttukonur rifja upp blíðar og stríðar minningar úr kvennabaráttunni frá Úum, Rauðsokkum, Kvennalistakonum, Bríetum og Femínistafélagi.  Þátttakendur verða meðal annarra:  Ásdís Skúladóttir, Rannveig Jónsdóttir, Silja Aðalsteinsdóttir, Dagný Kristjánsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Helga Thorberg, Guðný Guðbjörnsdóttir, Ingibjörg Hafstað o.fl.

2.      Pallborðsumræður.  Þátttakendur verða:  Helga Ólafsdóttir, Hildur Jónsdóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir og Gyða Margrét Pétursdóttir.  Stjórnandi verður Kristín Jónsdóttir.

Femínistar í göngunni 1. maí 2003.


Lilja skoðar mynd af sér og öðrum konum sem tóku þátt í 1. maí kröfugöngunni 1970

Síðast uppfært 27-oct-03 af SG.