Femínistafélag Íslands

ÁFRAM STELPUR!
Á forsíðu->

Málþing 25. október kl. 15-17
í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, sjá nánar->
Sýning um kvennahreyfinguna síðustu fjóra áratugi

11. október til 2. nóvember 2003



Kvennasögusafn
Borgarskjalasafn

Áfram stelpur !

Sýning um kvennahreyfinguna síðustu fjóra áratugi

Aðeins fáeinir mánuðir eru síðan Femínistafélag Íslands var stofnað, en það hefur þegar vakið mikla athygli almennings og komið af stað umræðu um kynjamisrétti hverskonar. Svo virðist sem margir hafi gleymt gömlu kvennahreyfingunum og aðrir telja að ekki sé lengur þörf fyrir slíka umræðu.

Hverjar voru Úurnar? Rauðsokkur? Kvennaframboðið? Kvennalistinn? Hverjar eru Bríeturnar og hvað er Femínistafélag Íslands? Hvað gerðist á Kvennafrídaginn 24. október 1975? Þetta er hluti af þeim spurningum sem verður svarað á sýningunni “ÁFRAM STELPUR !” sem opnaði laugardaginn 11. október 2003 í Grófarhúsi Tryggvagötu 15.

Að sýningunni standa Borgarskjalasafn Reykjavíkur og Kvennasögusafn Íslands, samvinnu við Femínistafélag Íslands. Sýnd eru skjöl og munir tengdum ofangreindum kvennahreyfingum. Sýningunni er ætlað að vekja forvitni gesta á þessum hreyfingum og hvetja þá til að halda til haga gögnum sem tengjast þeim og hugleiða varðveislu þeirra fyrir komandi kynslóðir. Söfnin taka bæði á móti slíkum skjölum og munum er tengjast kvennahreyfingunni.

Sýningin er haldin á Reykjavíkurtorgi, á 1. hæð Grófarhúss, Tryggvagötu 15. Hún er opin mánudaga til fimmtudaga kl.10-20, föstudaga 11 til 19 og helgar kl.13-17. Hún stendur til 2. nóvember og er aðgangur ókeypis.

Síðast uppfært 23-oct-03 af Salvöru.