Fréttatilkynning
frá Femínistafélagi Íslands
Laugardaginn
28. júní, kl. 22:00, mun ofbeldisvarnarhópur
Femínistafélags Íslands selja barmmerki fyrir
utan nektardansstaðinn Goldfinger í Kópavogi. Merkin
eru bleik að lit og á þeim stendur: Ég
kaupi konur.Tilgangurinn
með þessu er að vekja neytendur kynlífsiðnaðarins
til umhugsunar um hlutverk sitt innan iðnaðarins þar
sem þeir mynda eftirspurn eftir kvenlíkömum.
Umfang
og eðli kynlífsiðnaðarins er orðið eitt helsta
áhyggjuefni yfirvalda um allan heim. Iðnaðurinn veltir
gríðarlegum fjárupphæðum, álíka
og vopna- og eiturlyfjaiðnaðurinn. Samkvæmt áætlunum
Sameinuðu þjóðanna eru um 4 milljónir manns
seldar mansali á milli svæða og ríkja um allan
heim á ári hverju.
Stærsti
hópurinn eru konur og börn sem eru seld til þess
að ?starfa? innan klám- og vændisiðnaðarins
með tilheyrandi mannréttindabrotum og ofbeldi.Um 500.000
konur eru seldar mansali til vestur Evrópu á hverju
ári þar sem karlar kaupa ?þjónustu? þeirra.
Grunnforsenda þessa iðnaðar er því eftirspurn
kúnnanna (karla) sem virðist vera óseðjandi.
Hér á Íslandi hefur vændi þrifist
á nektardansstöðunum (skv. Vændisskýrslu
dómsmálaráðuneytisins 2001) þar sem
líkamar erlendra og íslenskra kvenna ganga kaupum og
sölum.
Við
hvetjum fjölmiðla til að sýna uppátækinu
athygli og stuðla þannig að nauðsynlegri umræðu
um stöðu kynjanna innan kynlífsiðnaðarins.
Nánari
upplýsingar veitir Hildur Fjóla Antonsdóttir, sími
6980895.
Ofbeldisvarnarhópur
Femínistafélags Íslands
Sett
á vefsíðu 28-jun-03 - Salvör
Aftur
á forsíðu->