Myndin
frá kirkjan.is
þegar Kristín og Erla afhentu biskupi bleikan stein
Kristín
Ólafsdóttir og Erla Hlynsdóttir afhentu ráðamönnum
bleiku steina 19. júní. Þær skrifuðu
þessa frásögn:
Þann 19. júní síðastliðinn, á
kvenréttindadaginn, afhenti Femínistafélag
Íslands bleiku steinana í fyrsta skipti. Slagorð
dagsins var “Styðjum jafnrétti – málum
bæinn bleikan”. Við vildum mála bæinn
bleikan í eiginlegri og óeiginlegri merkingu og málaðir
bleikir steinar varð niðurstaðan eftir töluvert
hugarflug . Bleiku steinarnir eiga að minna viðtakendur
á að hafa jafnréttissjónarmið að
leiðarljósi við ákvarðanatöku og
hvetja þá til að kynna sér femínisma.
Bleiku steinarnir voru settir á viðarplatta og á
þeim var skjöldur sem á stóð: „19.
júní 2003. Með kveðju frá Femínistafélagi
Íslands”. Þeim fylgdi innrammað skjal um
tilganginn.
Þeir
ráðamenn sem áttu að vera þess heiðurs
aðnjótandi að fá slíka steina voru
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, Davíð
Oddsson forsætisráðherra, Karl Sigurbjörnsson
biskup Íslands og Þórólfur Árnason
borgarstjóri Reykjavíkur.
Haft var samband við skrifstofur og aðstoðarfólk
þessara manna, Femínistafélag Íslands
kynnt lauslega, sagt frá ætlaðri afhendingu steinanna
og sú spurning borin upp hvort að viðkomandi ráðamaður
vildi taka við slíkum steini á sjálfan
kvenréttindadaginn.
Strax kom í ljós að forsetinn yrði erlendis
á þessum tíma þannig að ákveðið
var að tekið yrði við steininum fyrir hönd
hans á skrifstofu forseta. Karl Sigurbjörnsson tók
persónulega við erindi félagsins í gegnum
síma og tók hann vel í það. Það
var hægara sagt en gert að fá uppgefið á
hvaða tíma borgarstjóri yrði laus þennan
dag en alveg frá byrjun var það fastlega gefið
í skyn að hann myndi taka við steininum, sem hann
og gerði. Einnig var haft samband við aðstoðarmann
Davíðs Oddssonar. Hann sagði Davíð vera
mjög upptekinn mann og fékk að hafa samband síðar
til að svara erindinu. Svörin sem fengust voru á
þá leið að forsætisráðherra
væri svo upptekinn þennan dag að hann sæi
sér ekki fært að taka við steininum. Skilaboðin
frá honum voru þau að honum finndist upplagt að
hafa samband við félagsmálaráðherra
þar sem jafnréttismál snertu hann beint. Það
var reynt en þar sem sá ráðherra var í
sumarfríi var afráðið að athuga viðbrögð
heilbrigðisráðherra, Jóns Kristjánssonar,
enda skiptir kynferði töluverðu máli í
málefnum þess ráðuneytis. Það
tók innan við 5 mínútur að fá
svörin þar á bæ sem voru að það
væri honum sönn ánægja að taka við
bleikum steini frá Femínistafélagi Íslands.
Fyrsta
afhendingin fór fram kl. 10:40 hjá heilbrigðisráðherra.
Ráðherrann var í fölbleikri skyrtu og aðstoðarkona
hans var einnig klædd í bleikt. Eftir afhendinguna
ræddum við stuttlega um Femínistafélagið
og hvernig jafnréttismál koma við sögu hjá
ráðuneytinu. Kl. 11:00 lá leiðin á
skrifstofu forsetans en þar sem hann var fjarstaddur tók
ritari hans við steininum og setti á skrifborð forsetans
svo bleiki steinninn væri það fyrsta sem blasti
við forsetanum þegar hann kæmi aftur.
Biskupinn veitti bleika steininum viðtöku kl. 12:00 og
var hann í fjólubleikri skyrtu. Hann og helstu ráðgjafar
embættisins gáfu sér góðan tíma
að ræða við fulltrúa Femínistafélagsins,
m.a. um þau mál sem við berjumst sameiginlega gegn,
s.s. klámvæðingu og lítilsvirðingu kvenna.
Síðastur í röðinni var borgarstjórinn
en hann veitti steininum viðtöku kl. 13:45, rétt
áður en borgarstjórnarfundur hófst og því
lítill tími til spjalls auk þess sem fjölmiðlar
vildu hafa tal af honum við þetta tækifæri.
Áberandi var að starfsfólk Ráðhússins,
jafnt sem borgarfulltrúar á leið á borgarstjórnarfund,
klæddust bleiku og/eða báru eitthvað bleikt.
Stefán Jón Hafstein var með bleika flugu sem hann
hafði hnýtt af þessu tilefni.
Stefnt
er að því að afhending bleiku steinanna verði
árlegur viðburður.
Afhending
bleiku steinanna vakti athygli fjölmiðla, var bæði
í hádegisfréttum á Rás I og í
sjónvarpsfréttum RÚV um kvöldið. Kristín
Ólafsdóttir var svo viðmælandi í
Kastljósinu um kvöldið. Hún var í
bleikum bol.
Sett á vef 1-jul-03- Salvör Gissurardóttir
Á forsíðu vefs Femínistafélags
Íslands