Stefnuskrá Femínistafélags Íslands
|
FEMÍNISTAFÉLAG ÍSLANDS
er umræðuvettvangur og baráttutæki íslenskra
femínista. Félagið er frjáls og óháður
vettvangur sem hefur það að markmiði að efla
gagnrýna og femíníska umræðu á öllum
sviðum þjóðlífsins.
Helstu markmið félagsins eru: |
- Að vinna að jafnrétti kynjanna.
- Að vinna gegn hverskonar birtingarmyndum kynjamisréttis. Þar
má nefna klámvæðinguna, ágengar,
lítilsvirðandi auglýsingar, ofbeldi, mansal
og vændi.
- Að uppræta staðalmyndir um hlutverk og eðli
kvenna og karla.
- Að bæta stöðu kvenna á vinnumarkaði, útrýma
kynbundnum launamun og auka hlut kvenna í stjórnun
auðlinda og fjármagns.
- Að styrkja þátttöku kvenna í opinberu
lífi, fjölmiðlum og stjórnmálum.
- Að stuðla að samfélagi sem tekur mið af
mismunandi hagsmunum og sjónarmiðum karla og kvenna
svo sem í atvinnu- og menntamálum, stjórnmálum,
menningu og á vettvangi einkalífsins.
|
Markmiðum þessum skal náð með lýðræðislegri,
gagnrýnni og sýnilegri umræðu á fundum,
Netinu og í öðrum fjölmiðlum. |
|
|
|