|
Lög Femínistafélags Íslands
Heimili og varnarþing
- § Félagið heitir Femínistafélag Íslands.
Lögheimili og varnarþing þess eru í Reykjavík.
Markmið og félagsaðild
- § Markmið Femínistafélags Íslands
er að efla gagnrýna og femíníska
umræðu á öllum sviðum þjóðlífsins
og berjast gegn hverskonar birtingarmyndum kynjamisréttis.
- § Félagið er opið öllum femínistum
sem aðhyllast markmið félagsins.
Aðalfundur
- § Aðalfundur félagsins skal haldinn vor
hvert.
- § Allir félagar sem skráðir hafa
verið að lágmarki 5 daga í félagið hafa
rétt til setu og atkvæðisrétt á fundi.
- § Á aðalfundi er samþykkt starfsáætlun
til eins árs.
- § Á aðalfundi skulu kosnir 9 - 12 félagar í ráð sem
fer með ákvörðunarvald félagsins
milli aðalfunda. Hver félagi má sitja í ráðinu í fjögur ár.
- § Ráðið hefur umboð til að álykta í nafni
félagsins enda sé ályktunin í samræmi
við grundvallarmarkmið þess.
- § Ráði félagsins er heimilt að skipa
hópa til starfa í nafni félagsins.
- § Ráð skiptir með sér verkum á fyrsta
fundi sínum. Skipaður skal ritari, gjaldkeri og
talskona/maður félagsins.
- § Ráðið skal funda að minnsta kosti
4 sinnum á ári eða oftar ef þurfa þykir.
Fundurinn er atkvæðisbær ef meirihluti ráðsins
mætir.
- § Dagskrá aðalfundar skal vera eftirfarandi:
- Fundur settur.
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla ráðs fyrir liðið starfsár.
- Reikningar félagsins lagðir fram og samþykktir.
- Kosning í ráð.
- Kosning á skoðunaraðila reikninga.
- Ákvörðun félagsgjalda.
- Lagabreytingar.
- Tillaga ráðs um starfsáætlun
næsta starfsárs.
- Önnur mál.
- Fundarslit.
- § Aðalfundur telst löglega boðaður
ef fundarboð er sent með tölvupósti á félaga
með a.m.k. tíu daga fyrirvara.
Reikningsár og félagsgjöld
- § Reikningsár félagsins er 1. maí til
30. apríl.
- § Á aðalfundi skal kjósa einn skoðunaraðila
reikninga.
- § Ráð félagsins leggur fram tillögu
um félagsgjöld á aðalfundi félagsins.
Lagabreytingar
- § Tillögur um lagabreytingar skal leggja fram
til ráðs a.m.k. fimm daga fyrir aðalfund.
- § Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi
félagsins.
- § Lagabreytingar teljast samþykktar ef 2/3 hluti
félaga sem sækja aðalfund samþykkja
breytingarnar.
Slit félagsins
- § Femínistafélagi Íslands má slíta
með ákvörðun 2/3 hluta skuldlausra félaga á aðalfundi
eða félagsfundi.
- § Náist ekki tilskilinn félagafjöldi á aðalfundi/félagsfundi
má halda framhaldsfund og þarf þá 2/3
hluti fundaraðila að samþykkja slit til að félaginu
teljist slitið.
- § Við slit félagsins skulu eignir, ef einhverjar
eru, renna til styrktar femínisks málefnis.
|