Lög

Lög Femínistafélags Íslands

Heimili og varnarþing

§ Félagið heitir Femínistafélag Íslands. Lögheimili og varnarþing þess eru í Reykjavík.

Markmið og félagsaðild

§ Markmið Femínistafélags Íslands er að efla gagnrýna og femíníska umræðu á öllum sviðum þjóðlífsins og berjast gegn hverskonar birtingarmyndum kynjamisréttis.
§ Félagið er opið öllum femínistum sem aðhyllast markmið félagsins.

Aðalfundur

§ Aðalfundur félagsins skal haldinn vor hvert.
§ Allir félagar sem skráðir hafa verið að lágmarki 5 daga í félagið hafa rétt til setu og atkvæðisrétt á fundi.
§ Á aðalfundi er samþykkt starfsáætlun til eins árs.
§ Á aðalfundi skulu kosnir 9 – 12 félagar í ráð sem fer með ákvörðunarvald félagsins milli aðalfunda. Hver félagi má sitja í ráðinu í fjögur ár.
§ Ráðið hefur umboð til að álykta í nafni félagsins enda sé ályktunin í samræmi við grundvallarmarkmið þess.
§ Ráði félagsins er heimilt að skipa hópa til starfa í nafni félagsins.
§ Ráð skiptir með sér verkum á fyrsta fundi sínum. Skipaður skal ritari, gjaldkeri og talskona/maður félagsins.
§ Ráðið skal funda að minnsta kosti 4 sinnum á ári eða oftar ef þurfa þykir. Fundurinn er atkvæðisbær ef meirihluti ráðsins mætir.
§ Dagskrá aðalfundar skal vera eftirfarandi:

  1. Fundur settur.
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  3. Skýrsla ráðs fyrir liðið starfsár.
  4. Reikningar félagsins lagðir fram og samþykktir.
  5. Kosning í ráð.
  6. Kosning á skoðunaraðila reikninga.
  7. Ákvörðun félagsgjalda.
  8. Lagabreytingar.
  9. Tillaga ráðs um starfsáætlun næsta starfsárs.
  10. Önnur mál.
  11. Fundarslit.

§ Aðalfundur telst löglega boðaður ef fundarboð er sent með tölvupósti á félaga með a.m.k. tíu daga fyrirvara.

Reikningsár og félagsgjöld

§ Reikningsár félagsins er 1. maí til 30. apríl.
§ Á aðalfundi skal kjósa einn skoðunaraðila reikninga.
§ Ráð félagsins leggur fram tillögu um félagsgjöld á aðalfundi félagsins.

Lagabreytingar

§ Tillögur um lagabreytingar skal leggja fram til ráðs a.m.k. fimm daga fyrir aðalfund.
§ Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi félagsins.
§ Lagabreytingar teljast samþykktar ef 2/3 hluti félaga sem sækja aðalfund samþykkja breytingarnar.

Slit félagsins

§ Femínistafélagi Íslands má slíta með ákvörðun 2/3 hluta skuldlausra félaga á aðalfundi eða félagsfundi.
§ Náist ekki tilskilinn félagafjöldi á aðalfundi/félagsfundi má halda framhaldsfund og þarf þá 2/3 hluti fundaraðila að samþykkja slit til að félaginu teljist slitið.
§ Við slit félagsins skulu eignir, ef einhverjar eru, renna til styrktar femínisks málefnis.