Stefnuskrá Femínistafélags Íslands
FEMÍNISTAFÉLAG ÍSLANDS er umræðuvettvangur og baráttutæki íslenskra femínista. Félagið er frjáls og óháður vettvangur sem hefur það að markmiði að efla gagnrýna og femíníska umræðu á öllum sviðum þjóðlífsins.
Helstu markmið félagsins eru:
- Að vinna að jafnrétti kynjanna.
- Að vinna gegn hverskonar birtingarmyndum kynjamisréttis. Þar má nefna klámvæðinguna, ágengar, lítilsvirðandi auglýsingar, ofbeldi, mansal og vændi.
- Að uppræta staðalmyndir um hlutverk og eðli kvenna og karla.
- Að bæta stöðu kvenna á vinnumarkaði, útrýma kynbundnum launamun og auka hlut kvenna í stjórnun auðlinda og fjármagns.
- Að styrkja þátttöku kvenna í opinberu lífi, fjölmiðlum og stjórnmálum.
- Að stuðla að samfélagi sem tekur mið af mismunandi hagsmunum og sjónarmiðum karla og kvenna svo sem í atvinnu- og menntamálum, stjórnmálum, menningu og á vettvangi einkalífsins.
Markmiðum þessum skal náð með lýðræðislegri, gagnrýnni og sýnilegri umræðu á fundum, Netinu og í öðrum fjölmiðlum.