Skráning

Hér fyrir neðan eru upplýsingar um hvernig á að skrá sig í félagið, á fréttabréfspóstlista og á umræðupóstlista.


Skráning á fréttabréfspóstlista

Til að skrá þig á fréttabréfspóstlistann fyllir þú út reitina hér fyrir neðan. Femínistafélagið er að miklu leyti starfrækt á netinu – allar tilkynningar um fundi (þ.m.t. aðalfundi) og viðburði á vegum félagsins eru sendar á fréttabréfspóstlistann. Reynt er að halda póstsendingum í lágmarki og áskrifendur þurfa ekki að óttast að drukkna í pósti – í mesta lagi koma örfáar tilkynningar í hverjum mánuði.

Nafn:
Tölvupóstfang:

Skráning á umræðupóstlista

Umræðupóstlistinn er okkar vettvangur fyrir femínískar umræður. Eftirfarandi reglur gilda um listann:

„Þessi póstlisti er vettvangur femínista til að ræða jafnrétti kynjanna og femínísk málefni. Ekki má nota þráðinn fyrir auglýsingar eða tilkynningar sem ekki tengjast femínisma. Þátttakendur skulu sýna öðrum þátttakendum virðingu og orða innlegg sín á málefnalegan og kurteisan hátt. Skrifa skal fullt nafn undir innlegg á listann. Óheimilt er að áframsenda eða birta innlegg sem berast á listann annarsstaðar án leyfis höfundar.“

Skráning bæði á og af listanum er rafræn, þ.e. áskrifendur sjá sjálfir um að skrá sig á og af listanum.

Til að skrá þig á listann smellir þú hér og fyllir út umbeðna reiti.

Athugið að töluvert magn af pósti getur borist á listann. Við mælum með að fólk stofni sér möppu í póstforritinu sínu til að halda utan um póstinn.